AGS vill hærri skatta á þá sem hafa grætt á kreppunni

Styðja ætti við þá sem verst hafa orðið úti í efna­hag­skrepp­unni vegna heims­far­ald­urs­ins með því að skatt­leggja ein­stak­linga og fyr­ir­tæki sem grætt hafa á ástand­inu, sam­kvæmt Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum.

Gita Gopinath, aðalhagfræðingur AGS
Gita Gopinath, aðal­hag­fræð­ingur AGS Mynd: EPA

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn (AGS) mælir með tíma­bund­inni hækkun skatta á tekju­háa ein­stak­linga og fyr­ir­tæki sem högn­uð­ust á heims­far­aldr­inum. Samkvæmt sjóðnum ætti slík skatt­lagn­ing að draga úr félags­legum ójöfn­uði sem hefur auk­ist í yfir­stand­andi kreppu og aukið sam­stöðu í sam­fé­lag­inu.

Í skýrslu sinni um rík­is­fjár­mál, sem birt var í síð­ustu viku, sagði AGS að far­ald­ur­inn hefði aukið ójöfnuð til muna í dreif­ingu tekna, auðs og efna­hags­legra mögu­leika. Samkvæmt sjóðnum tengj­ast þessar þrjár teg­undir ójafn­aðar hverri annarri og skapað víta­hring mis­skipt­ingar, en því þyrftu stjórn­völd að bregð­ast við öllum þeirra.

Lagði sjóð­ur­inn því til auk­innar þrepa­skipt­ingar í skatt­kerf­inu í iðn­ríkjum, auk hærri eigna­skatta og skatt­lagn­ingar á umfram­hagn­aði fyr­ir­tækja. Skatt­tekj­urnar mætti nýta til að auka opin­bera þjón­ustu, en þannig mætti auka traust og sam­stöðu innan þjóð­fé­lags­ins.

Í við­tali við Financial Times sagði Vitor Gaspar, yfir­maður rann­sókna um rík­is­fjár­mál innan AGS að ekki þyrfti að líta á aukna skatt­lagn­ingu á þá sem grætt hefðu á krepp­unni sem fjár­öfl­un­ar­leið fyrir rík­is­sjóð, hún hefði einnig tákn­rænt gildi. Lönd víða um heim ættu að íhuga slíka skatt­lagn­ingu í afmark­aðan tíma þar sem hún myndi styrkja hug­mynd­ina um að allir legðu sitt af mörkum í við­spyrn­unni gegn COVID-19.

Í nýju hag­spánni sinni er AGS bjart­sýnn á að yfir­stand­andi kreppa muni hafa lítil áhrif á efna­hags­lífið til lengri tíma. Aðal­hag­fræð­ingur sjóðs­ins, Gita Gopinath, segir að þessi kreppa sé frá­brugð­inn þeirri síð­ustu, til dæmis sú engin merki uppi um að kerf­is­læg skulda­kreppa sé í aðsigi í rík­is­fjár­málum þessa stund­ina í við­tali við Bloomberg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ags

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár