Áfram grímur á viðburðum og hömlur á opnunartíma veitingastaða

300 manns mega koma saman frá og með 15. júní og almenn nánd­ar­regla verður færð úr 2 metrum í einn. Sótt­varna­læknir telur að mikil til­slökun á fjölda­tak­mörk­unum myndi senda röng skila­boð út í sam­fé­lagið.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Frá og með 15. júní mega 300 manns koma saman í stað 150 manns áður og tveggja metra reglan breyt­ist í eins meintra reglu. Á sitj­andi við­burðum eins og íþrótta­við­burðum og leik­hús­sýn­ingum verður hins vegar engin nánd­ar­regla lengur, en öllum verður áfram skylt að bera grímu.

Opn­un­ar­tími veit­inga­staða leng­ist um klukku­stund og mega staðir nú hleypa gestum inn til mið­nættis, en þurfa að vísa þeim út kl. 1.

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur ákveðið þessar breyt­ingar á reglu­gerð um sam­komu­tak­mark­anir, en breyt­ing­arnar eru í sam­ræmi við til­lögur Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis, sam­kvæmt því sem segir í til­kynn­ingu heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins.

Þessar reglur eiga að gilda til 29. júní næst­kom­andi, en sam­kvæmt því sem rík­is­stjórnin boð­aði í aflétt­ing­ar­á­ætlun sinni á vor­dögum var stefnt að því að aflétta öllum sótt­varna­ráð­stöf­unum inn­an­lands seinni part júní.[links]

Nokkuð í land að góðu hjarðónæmi yngri hópa

Þórólfur segir í minn­is­blaði sínu að „allt útlit“ sé fyrir að það verði hægt að aflétta aðgerðum frekar undir lok mán­að­ar­ins. En hann er líka á því að fara þurfi hægt í aflétt­ingar þangað til búið verður að bólu­setja enn fleiri lands­menn.

Nærri 200 þús­und manns hafa nú fengið a.m.k. eina bólu­efna­sprautu og rúm­lega hund­rað þús­und manns eru þegar full­bólu­sett. Rúmlega 90 pró­sent þeirra sem eru 50 ára og eldri hafa fengið a.m.k. eina sprautu en tæp­lega 50 pró­sent þeirra sem eru yngri en 50 ára.

Þórólfur sótt­varna­læknir segir í minn­is­blaði sínu að enn sé „nokkuð í land með að góðu hjarð­ó­næmi verði náð meðal yngri ein­stak­linga“ en að útlit sé fyrir að 410 þús­und skammtar af bólu­efni muni hafa borist hingað til lands fyrir lok júní, sem ætti að duga fyrir fullri bólu­setn­ingu 220 þús­und manns. Það væru um 60 pró­sent þjóð­ar­innar í heild.

[adspot]

Í minn­is­blaði Þórólfs segir að það þurfi að fara rólega í aflétt­ingar á sótt­varna­að­gerðum inn­an­lands þar til hærra hlut­fall yngra fólks hefur verið bólu­sett – og bent er á að það taki um þrjár vikur að fá góða vernd eftir fyrstu bólu­setn­ingu.

Þórólfur seg­ist telja mik­il­væg­ara að slaka á nánd­ar­regl­unni en að auka mjög þann fjölda sem má koma saman. Hann lýsir í minn­is­blað­inu yfir nokkrum áhyggjum af bæði svoköll­uðum bresku og ind­verskum afbrigðum kór­ónu­veirunnar og nefnir sér­stak­lega að það ind­verska „virð­ist vera að valda nýjum bylgjum víða“ eins og sjá­ist á fréttum frá Bret­landi.

„Mikil til­slökun á fjölda­tak­mörk­unum getur gefið þau röngu skila­boð út í sam­fé­lagið að far­aldr­inum sé lokið og það getur haft alvar­legar afleið­ingar í för með sér hvað varðar útbreiðslu COVID-19,“ segir Þórólfur í minn­is­blaði sínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár