Horft til þess að öllum takmörkunum verði aflétt fyrir lok júní

Rík­is­stjórnin ræddi um aflétt­ing­ar­á­ætlun sótt­varna­tak­mark­ana á fundi sínum í morgun. Fjórar vörður eru teikn­aðar upp á leið­inni að hömlu­lausu sam­fé­lagi, sú síð­asta fyrir lok júní­mán­aðar.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra á blaðamannafundi þar sem fyrsta samkomubannið var tilkynnt, 16. mars í fyrra. Nú er búið að teikna upp áætlun um afléttingar og verður hún kynnt í dag.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra á blaða­manna­fundi þar sem fyrsta sam­komu­bannið var til­kynnt, 16. mars í fyrra. Nú er búið að teikna upp áætlun um aflétt­ingar og verður hún kynnt í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra fór yfir aflétt­ing­ar­á­ætlun varð­andi sótt­varna­ráð­staf­anir og sam­komu­tak­mark­anir á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í morgun.

Horft er til þess að öllum tak­mörk­unum inn­an­lands verði aflétt í lok júní, eða þegar um 75 pró­sent lands­manna yfir 16 ára aldri hafa fengið að minnsta kosti eina sprautu af bólu­efni.

Svandís sagði í sam­tali við Vísi eftir rík­is­stjórn­ar­fund dags­ins að það búið væri að teikna upp „fjórar vörður á leið­inni“ að aflétt­ingu sótt­varna­ráð­staf­ana í sam­fé­lagi, í takt við þann árangur sem væri að nást í bólu­setn­ingu.

Fyrsta varðan hafi þegar náðst, nú um miðjan mán­uð­inn, þegar yfir 25 pró­sent lands­manna höfðu fengið að minnsta kosti einn skammt af bólu­setn­ing. Síðan þegar fleiri verða bólu­settir að minnsta kosti einu sinni verði slakað enn frekar á aðgerðum, í þremur skrefum.

Svandís sagði að aflétt­ing­ar­á­ætl­unin yrði útskýrð nánar í frétta­til­kynn­ingu sem nú hefur borist, „með það skýrum hætti að allir sjái á hvaða leið við erum, þannig að við höfum veg­vísi fyrir þessar síð­ustu vikur.“

Hér að neðan má sjá þennan veg­vísi.

Í til­kynn­ingu frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu segir að aflétt­ing­ar­á­ætl­unin verði til umsagnar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda, þar verði hægt að koma á fram­færi umsögnum og athuga­semdum til 3. maí.

Áætlun ráðu­neyt­is­ins sé sett fram með hlið­sjón af því hversu hratt gangi að bólu­setja lands­menn og jafn­framt með fyr­ir­vara um mat sótt­varna­læknis á aðstæðum og stöðu far­ald­urs­ins á hverjum tíma.

Sextán smit greindust inn­an­lands í gær, en þar af voru þrettán manns í sótt­kví.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár