Lilja segir Samherja hafa gengið of langt í sínum vörnum

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra styður Rík­is­út­varpið í þeirri „orra­hríð“ sem Samherji hefur háð gegn stofn­un­inni. Töluvert var rætt um við­brögð Samherja við frétta­flutn­ingi RÚV í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma í dag.

Samherji gekk of langt í við­brögðum sínum við frétta­flutn­ingi Rík­is­út­varps­ins að mati Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Þetta kom fram í svari Lilju við fyr­ir­spurn Guð­mundar Andra Thors­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag.

Lilja sagði það mik­il­vægt að fjöl­miðlar séu frjálsir og geti fjallað um mál­efni líð­andi stundar og að hún styddi Rík­is­út­varpið „í þess­ari umfjöllun og í þess­ari orra­hríð. Ég vil líka segja að mér finnst Samherji ganga of langt í við­brögðum sínum.“

Að mati Lilju hafi stjórn RÚV tekið rétt á mál­unum. „Ég tel að stjórn Rík­is­út­varps­ins hafi brugð­ist rétt við, hvernig þau hafa tekið á þessu máli. Það er mín skoðun að það skipti öllu máli að fjöl­miðlar séu frjálsir og að við styðjum að sjálf­sögðu við Rík­is­út­varpið okkar, og ég tel að Samherji hafi gengið of langt.“

Sérstaklega sé vegið að Helga Seljan

Guð­mundur Andri sagði í fyr­ir­spurn sinni frjálsa fjöl­miðla sem sinna vand­aðri og gagn­rýnni umfjöllun vera eina af mik­il­væg­ustu auð­lindum hverju lýð­ræð­is­sam­fé­lagi. Sem dæmi um slíka umfjöllun nefndi Guð­mundur Andri umfjöllun Kveiks um starfs­hætti Samherja í Namibíu en hann gagn­rýndi við­brögð fyr­ir­tæk­is­ins.

„Varnir fyr­ir­tæk­is­ins hafa ekki falist í því að hrekja það efn­is­lega sem kom fram í þessum þáttum heldur í því að sverta heim­ild­ar­menn og veit­ast að frétta­mönnum sem efnið unnu með kæru­málum til siða­nefndar og dreif­ingu á áróð­urs­mynd­böndum þar sem sér­stak­lega hefur verið vegið að Helga Seljan, frétta­mann­inum sem bar hit­ann og þung­ann af þess­ari þátta­gerð.“

Ekki fari á milli mála að ætlun for­svars­manna fyr­ir­tæk­is­ins sé að hræða frétta­menn frá því að sinna vinnu sinni að sögn Guð­mundar Andra.

Í síð­ari ræðu sinni spurði Guð­mundur Lilju að því hvort hún teldi að fram­ganga Samherja gagn­vart Rík­is­út­varp­inu og Seðla­bank­anum væri eðli­leg hags­muna­varsla.

Fjölmiðlar á Íslandi hafi staðið sig vel

Lilja sagði fjöl­miðla­menn hafa staðið sig vel. „Ég tel að allt þetta mál sýni í raun og veru að við erum hér í frjálsu og opnu sam­fé­lagi, það er að segja þegar málið er tekið til umfjöll­unar er það gert á mjög gagn­rýn­inn hátt og fjöl­miðla­menn­irnir fara í málið og hika ekki við það. Þegar við erum að fjalla um fjöl­miðla á Íslandi finnst mér þeir standa sig býsna vel, eins og við höfum séð núna.“

Hún ætti hins vegar erfitt með að flokka þessa fram­göngu á ein­hvern til­tek­inn hátt. Margt fólk hafi skoðun á mál­inu og það hafi fengið tæki­færi til þess að tjá sig um það sem sé til marks um hversu opið og lýð­ræð­is­legt sam­fé­lagið sé. „Það gerir það líka hér í þing­inu. Ég tel að það sé eft­ir­sókn­ar­vert sam­fé­lag þar sem við getum farið yfir málin eins og við erum að gera hér,“ sagði Lilja.

Auðlindarenta notuð í „rógburðarherferð“

Málefni Samherja voru einnig til umræðu í næstu fyr­ir­spurn. Olga Margrét Cilia, þing­maður Pírata, spurði Katrínu Jak­obs­dóttur hvort hún teldi eðli­legt að auð­lind­arenta sé notuð til þess í „róg­burð­ar­her­ferð“ gegn Helga Seljan.

„Ætlar hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra að láta það óátalið að verið sé að nota auð­lind­arentu þjóð­ar­innar í róg­burð­ar­her­ferð og mann­orðs­morð á fjöl­miðla­manni sem gerði það sem fag­stétt hans á einmitt að gera og benti á spill­ingu Samherja? Telur ráð­herra fram­ferði Samherja gagn­vart Helga Seljan eðli­leg afskipti af fjöl­miðlaum­fjöllun? Hvaða aðgerða ætlar hæst­virtur ráð­herra að grípa til svo að unnt sé að koma í veg fyrir að slíkar árásir á fjöl­miðla­fólk muni eiga sér stað aftur?“ spurði Olga Cilia

Flókið að setja tjáningarfrelsinu skorður

Katrín sagði þrennt skipta máli í sam­bandi við spurn­ingu Olgu. Fyrst Olga hafði nefnt auð­lind­arentu nefndi Katrín í fyrsta lagi nýtt auð­linda­á­kvæði stjórn­ar­skrár. „Það er auð­vitað engin til­viljun að hags­muna­verðir stór­út­gerð­ar­innar hafi lagst gegn því auð­linda­á­kvæði sem nú er til umfjöll­unar í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd,“ sagði Katrín og bætti því við að hún teldi það mik­il­vægt að Alþingi svari kalli þjóð­ar­innar um þessi mál.

Í öðru lagi nefndi Katrín frum­varp um auk­inn stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla sem sé mik­il­vægt að verði að lögum að hennar mati. „Það skiptir mjög miklu máli fyrir fjöl­miðla­frelsi á Íslandi að við styðjum betur við einka­rekna fjöl­miðla sam­hliða því að við styðjum við öfl­ugt almanna­út­varp.“

Í þriðja lagi sagði Katrín það flókið að setja tján­ing­ar­frels­inu skorður og að sam­fé­lagið sé fært um að taka afstöðu til ummæla. „Ef stór­fyr­ir­tæki sem mikil ítök hafa í sam­fé­lag­inu mis­bjóða sam­fé­lag­inu með mál­flutn­ingi sínum munu þau missa virð­ingu þess sama sam­fé­lags. Ég held að það sé mjög flókið að setja tján­ing­ar­frels­inu skorður í þeim efnum. Við getum sett skýrar reglur um auð­linda­notk­un­ina og stutt betur við fjöl­miðla til að sinna hlut­verki sínu. En ég held líka að ef menn mis­bjóða sam­fé­lag­inu með mál­flutn­ingi sínum þá muni það hafa áhrif á stöðu þeirra í sam­fé­lag­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár