Spurði forsætisráðherra hvort landinu væri stjórnað af hagsmunahópum

Þing­maður Við­reisnar spurði for­sæt­is­ráð­herra hvort að hún væri sam­mála seðla­banka­stjóra sem sagði land­inu stjórnað að miklu leyti af hags­muna­hópum. For­sæt­is­ráð­herra hefði viljað að seðla­banka­stjóri nefndi dæmi í við­tal­inu þar sem hann lét orðin falla.

„Hefði ég verið blaða­maður hefði ég beðið seðla­banka­stjór­ann um dæmi, ég verð nú að við­ur­kenna að ég hefði kosið að hann færi yfir það hvað hann nákvæm­lega ætti við með þessu,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, um orð sem Ásgeir Jónsson, seðla­banka­stjóri lét falla í við­tali við Stundina sem birt­ist fyrir helgi. Þetta sagði Katrín í svari sínu við fyr­ir­spurn Þor­gerðar K. Gunn­ars­dóttur, þing­manns Við­reisnar.

Í fyr­ir­spurn sinni vitn­aði Þor­gerður í áður­nefnt við­tal við Ásgeir þar sem hann sagði meðal ann­ars að Íslandi væri að miklu leyti stjórnað af hags­muna­hópum. Þor­gerður spurði Katrínu í kjöl­farið hvort hún væri sam­mála full­yrð­ingu seðla­banka­stjór­ans eða hvort hún teldi Ásgeir fara með rangt mál.

Löggjafinn fari ekki varhluta af hagsmunavörðum

Katrín sagði í svari sínu að hags­muna­öfl reyni að hafa áhrif á ýmis­legt sem gert er, eitt­hvað sem þing­menn ættu að þekkja vel enda senda hags­muna­öfl inn umsagnir við þing­mál, auk þess sem full­trúar hags­muna­afla mæti á fundi þing­nefnda og ráða­manna. Katrín sagði að hún hefði beitt sér fyrir því að sam­skipti hags­muna­varða við stjórn­völd yrðu gerð gagn­særri. [links]

„Ég hef einmitt beitt mér fyrir því sem for­sæt­is­ráð­herra að draga öll þessi sam­skipti upp á yfir­borðið hvað varðar fram­kvæmda­valdið með nýsam­þykktum lögum um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum þar sem hags­muna­vörðum er gert skylt að skrá sig og stjórn­ar­ráð­inu er gert skylt að skrá þau sam­skipti. Ég vil segja það líka sem for­maður stjórn­mála­flokks að ég tel ekki að minn flokkur, sem er auð­vitað hluti lög­gjafans, stjórn­ist af hags­muna­öflum.“

Katrín nefndi einnig auð­linda­á­kvæðið sem þingið á eftir að taka afstöðu til en hags­muna­verðir og allir helstu tals­menn atvinnu­lífs­ins hafa lagst gegn. „Það er hins vegar mik­il­vægt að við séum með þau sam­skipti upp á borðum og um þau ríki gagn­sæi og þar hefur sú sem hér stendur svo sann­ar­lega beitt sér,“ sagði Katrín.

Ríkisstjórn hafi veitt hagsmunahópum skjól

„Seðla­banka­stjóri sem sagði sér­hags­muna­hópa hafa mikil völd, og hann sagði þetta vera skýrt, hann myndi varla vera að setja þetta fram ef hér léki allt í lyndi. Rík­is­stjórn­inni hefur hins vegar alger­lega mis­tek­ist í því að koma í veg fyrir að hags­muna­hópar ráði hér svo miklu og það má alveg segja að rík­is­stjórnin hafi að vissu leyti veitt þessum hags­muna­hópum skjól,“ sagði Þor­gerður er hún steig upp í pontu öðru sinni.

Hún sagði Viðreisn hafa lagt fram til­lögur þess efnis að almanna­hags­munir yrðu teknir fram yfir sér­hags­muni. Hún sagði að sér­reglur ættu ekki að gilda í sam­keppn­is­málum helstu hags­muna­hópa og bak­hjarla stjórn­ar­flokk­anna. Þá hafi hennar flokkur einnig talað fyrir auknu gegn­sæi varð­andi afla­heim­ildir og eign­ar­hlut­deild sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja og að útgerðin ætti ekki að hafa ævar­andi ein­ok­unar aðgang að auð­lind­inni. Þessi mál hefðu ekki fengið afgreiðslu eða verið felld.

Vill frekari skýringar seðlabankastjóra

Katrín sagði að áhuga­vert yrði að fá nán­ari skýr­ingar á orðum seðla­banka­stjóra þegar hún svar­aði fyr­ir­spurn Þor­gerðar öðru sinni.

„Því þetta er auð­vitað mjög stór stað­hæf­ing sem hann fer með og það skiptir máli einmitt að við ræðum þessi mál, hvernig hags­muna­að­ilar beita sér og hvaða gagn­sæi ríkir um það. Þar hef ég og rík­is­stjórnin beitt okkur fyrir auknu gagn­sæi sem veitir ekki af í þessu litla sam­fé­lagi okkar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár