Drápsgasið í Pompei

Árið 79 varð mikið gos í eld­fjall­inu Vesúvíusi á Ítalíu. Bærinn Pompei grófst undir ösku og tvö þús­und lét­ust úr gaseitrun. Ný rann­sókn sýnir að það tók gasið aðeins 17 mín­útur að gera út af við íbú­ana.

Úr íbúðarhúsi í Pompei. Þarna hefur ekki verið skreytt með ódýrum veggspjöldum
Úr íbúð­ar­húsi í Pompei. Þarna hefur ekki verið skreytt með ódýrum vegg­spjöldum Mynd: EPA

Á síð­ari hluta árs 79, lík­lega í októ­ber, urðu íbúar Pompei varir við að jörðin skalf undir fótum þeirra. Þetta voru litlir skjálftar en margir bæj­ar­búar ótt­uð­ust hið versta. Þeir voru minnugir þess að 17 árum fyrr hafði mjög snarpur jarð­skjálfti lagt stóran hluta bæj­ar­ins í rúst og upp­bygg­ing enn í gangi. Sá skjálfti tengd­ist gosi í Vesúvíusi, um átta kíló­metrum norð­vestan við bæinn.

Árið 79 voru íbúar Pompei um 20 þús­und. Bærinn var vin­sæll sum­ar­dval­ar­staður efn­aðra Ítala, ekki síst íbúa Rómar, og meðal ann­ars hafði Nero keis­ari átt hús í bænum. Til marks um öfl­ugt mann­líf í Pompei má nefna að í bænum voru um 600 versl­anir, ótal barir, bak­arí og veit­inga­hús auk fjöl­margra gisti­húsa, og húsa þar sem port­konur seldu þjón­ustu sína. Jörðin í nágrenni Pompei var frjósöm, landið undir og í hlíðum Vesúví­usar hent­aði einkar vel til rækt­unar á ólífum og vín­viði.

Aska færði allt í kaf

Eins og áður sagði skutu jarð­skjálft­arnir, sem stóðu yfir í fjóra daga haustið 79, íbúum Pompei skelk í bringu. Stærstur hluti íbú­anna, um það bil 18 þús­und, forð­uðu sér úr bænum, en um 2 þús­und fóru hvergi.

Um hádeg­is­bil í októ­ber (dag­setn­ing er ekki vituð) hófst gos í Vesúvíusi. Gosið var mjög kraft­mikið og ösk­unni rigndi yfir Pompei. Þá var orðið of seint fyrir íbú­ana að forða sér. Askan sem Vesúvíus sendi frá sér færði allt í kaf, hús­þök gáfu sig undan þung­anum. Bæj­ar­búar í Pompei leit­uðu skjóls í kjöll­urum, til að skýla sér fyrir ösk­unni og líka vegna hit­ans frá henni. Eftir að rann­sóknir á dauða íbú­anna hófust var talið að þetta tvennt, askan og hit­inn, hefðu orsakað dauða íbú­anna. Síðari tíma rann­sóknir leiddu í ljós að skýr­ingin um ösk­una og hit­ann væri senni­lega ekki rétt. Þótt askan hafi verið um 115 gráðu heit hafi hún ekki banað fólk­inu. Gosið, sem stóð ekki mjög lengi, heim­ildir segja 1 – 7 sól­ar­hringa var mjög kröft­ugt. Þegar því lauk var ösku­lagið yfir Pompei 6-7 metra þykkt.

Eiturgasið

Snemma morg­uns á öðrum degi goss­ins barst gas­ský yfir Pompei. Gasið var ban­eitrað og allir sem voru í bænum, um 2 þús­und manns, lét­ust. Langt er síðan vís­inda­menn töldu sig vita að það hefði verið gasið sem gerði út af við bæj­ar­búa og fram til þessa hefur verið talið að gasið hafi legið yfir bænum í heilan dag, eða jafn­vel lengur.

Nýbirt rann­sókn hefur leitt í ljós að gasið lá yfir bænum í 17 mín­útur en ekki heilan dag eða lengur. Gasið var hins vegar svo eitrað að fólk sem and­aði því að sér lifði í mesta lagi í 5 mín­útur. Í heimi vís­ind­anna þykir þessi kenn­ing vís­inda­mann­anna, sem byggir á flóknum útreikn­ingum, sem lesa má um á síð­unni nat­ure.com, mjög merki­leg.

Herkúlaneum

Bærinn Herkúla­neum stóð mun nær Vesúvíusi en Pompei, nán­ast í norð­vest­ur­hlíðum eld­fjalls­ins. Árið 79 bjuggu þar um 5 þús­und manns. Íbúar Herkúla­neum voru efn­aðri en þeir sem bjuggu í Pompei og bygg­ingar íburð­ar­meiri. Talið er að þegar askan lagð­ist yfir bæinn hafi hún verið meira en 500 gráðu heit, sumir vís­inda­menn telja hana jafn­vel hafa verið 850 gráðu heita. Ösku­lagið yfir Herkúla­neum var mun þykk­ara en það sem huldi Pompei, allt að 20 metra þykkt.

Gleymt og grafið

Þótt okkur sem nú lifum þyki það und­ar­legt voru bæði Pompei og Herkúla­neum nán­ast gleymd öldum saman. Vitað var að þessi bæir hefðu graf­ist í ösku en þar við sat. Það var ekki fyrr en um miðja 18. öld að forn­leifa­fræð­ingar fóru að sýna Pompei og Herkúla­neum áhuga. Það var forn­leifa­fræð­ing­ur­inn Giuseppe Fiorelli sem hóf skipu­legan upp­gröft í Pompei. Rann­sóknir hans sýndu að föt og hlutir höfðu ekki brunnið og það þótti sanna að gasið, en ekki hit­inn, hefði gert út af við fólkið.

Í Herkúla­neum var hins vegar allt brunnið sem brunnið gat. Þar var það hit­inn sem varð fólki að bana.

Sífellt fleira kemur í ljós

Þótt nú séu 1942 ár síðan Pompei og Herkúla­neum gróf­ust í ösku er stöðugt unnið að rann­sóknum og upp­grefti. Einkum í Pompei enda bær­inn stærri og eyði­legg­ingin minni, eins og áður var sagt. Og sífellt kemur fleira í ljós. Seint í des­em­ber á síð­asta ári greindu fjöl­miðlar frá því að vís­inda­menn hefðu grafið upp mat­sölu­stað í borg­inni, nánar til­tekið það sem við í dag köllum skyndi­bita­stað. Þar fund­ust leifar af svínum, anda- og geita­bein, sniglar og fleira. Ótrúlega heil­legar veggskreyt­ingar og eld­stæði bera vott um að ekk­ert hafi verið til sparað. Fyrir mán­uði, í lok febr­úar birt­ust fréttir af hest­vagni, sem fund­ist hafði í næsta nágrenni Pompei. Sér­fræð­ingar sögðu vagn­inn, sem væri ótrú­lega heil­legur, greini­lega hátíð­ar­vagn sem not­aður hefði verið í skrúð­göngum og við sér­stök tæki­færi.

Sér­fræð­ingar segja að þótt margt for­vitni­legt hafi komið upp í Pompei megi full­yrða að enn leyn­ist margt í ösk­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fornleifafræði

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár