Nýir frumbyggjar Ameríku finnast í Alaska

Nýjar upp­lýs­ingar, byggðar á forn­leifum, benda til þess að dreif­ing mann­skepn­unnar um heim­inn sé öðru­vísi en áður var haldið.

Sú mynd sem við höfum af dreif­ingu mann­skepn­unnar um jörð­ina er að hluta til glopp­ótt. Það er margt sem við vitum en að sama skapi er margt sem við vitum ekki, þó með fleiri og fleiri rann­sóknum reynum við að fylla upp í götin og fá þannig heild­stæða mynd. Stundum vill svo skemmti­lega til að við vitum ekki betur en að sagan heil, þegar nýjar vís­bend­ingar koma svo til sög­unnar sem benda til að myndin er kannski ekki eins og við höfum teiknað hana upp í fyrstu.

Það er einmitt raunin með nið­ur­stöður erfða­grein­inga á forn­leifa­sýnum sem unnin voru við Uni­versity of Alaska Fair­banks. Rann­sóknin sem leidd er að Ben Potter, pró­fessor við háskól­ann hefur staðið yfir í nokkur ár þar sem unnið hefur verið að rann­sóknum á forn­leifum sem fund­ust við Upward Sun River í Alaska í kringum 2006. Þessi forn­leifa­staður er stað­settur nálægt þeim stað þar sem íshella mynd­aði brú yfir Ber­ings­haf á ísöld og tengdi saman Síberíu og Alaska.

Talið er lík­legt að upp­runa­legir íbúar Ameríku hafi komið frá Asíu, yfir Bering-sbrúnna svo­nefndu. Þessi hópur fólks sett­ist þó ekki að svo norð­ar­lega heldur ferð­að­ist sunnar og hefur verið kall­aður Native Americans eða frum­byggjar Ameríku. Forn­leifa­rann­sókn­irnar við Upward Sun River gefa þó nýja mynd á þetta ferða­lag.

Hluti af forn­leif­unum eru lík­ams­leifar tveggja ungra stúlkna sem náð­ist að ein­angra erfða­efni úr til rað­grein­ingar. Rað­grein­ing erfða­efn­is­ins leiddi í ljós að senni­lega er ekki um að ræða skyld­menni þeirra frum­byggja sem hingað til hefur verið talið að hafi einir byggt Ameríku. Þar sem erfða­efnið gefur til kynna að um algjör­lega óskyldan flokk hafi verið að ræða þá hefur rann­sókn­ar­hóp­ur­inn gefið fólk­inu sem þarna bjó nafnið Ancient Ber­ingi­ans.

Rann­sókn­ar­hópur Ben Potters telur að um tvær sviðs­myndir gæti verið að ræða. Önnur er sú að tveir hópar fólks hafi ferð­ast yfir Bering-sbrúnna á mis­mun­andi tíma­punktum. Annar hópanna hefur sest að norð­ar­lega meðan hinn hefur ferð­ast lengra suður. Hinn mögu­leik­inn er að einn hópur hafi komið frá Asíu en síðan skipst í tvennt, þar sem hluti hóps­ins sett­ist að á svæð­inu við Upward Sun River meðan aðrir ferð­uð­ust lengra suður.

Hvort sem hefur gerst þarna í upp­hafi er lík­legt að sá hópur sem áður var tal­inn eini frum­byggja­hópur Ameríku hefur svo ferð­ast aftur norður eftir álf­unni og þar hafa hóp­arnir hist á ný. Þannig hefur að öllum lík­indum aftur orðið blöndun á hópnum sem gerir það að verkum að erfða­efni Ancient Ber­ing­ans er ekki hægt að finna sem slíkt í neinum núlif­andi þjóð­ar­hópum.

Þessar nið­ur­stöður breyta óneit­an­lega sýn okkar á ferða­lag manns­ins um heim­inn og dreif­ingu hans um jörð­ina. Það verður spenn­andi að sjá hvaða fleiri upp­lýs­ingar verður hægt að finna í Upward Sun River forn­leifa­upp­greftrinum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fornleifafræði

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár