Samþykkt að hækka þak kaupréttarsamninga starfsmanna Arion banka verulega

Bónus­kerfi Arion banka var sam­þykkt á aðal­fundi. Þar var líka sam­þykkt að hækka kaup­rétti starfs­manna úr 600 þús­und í allt að 1,5 milljón króna á ári. Alls munu starfs­menn geta keypt í bank­anum fyrir millj­arða króna gangi áformin eftir.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka. Mynd: Arion banki

Stjórn Arion banka var veitt heim­ild á aðal­fundi bank­ans í gær til að breyta kaup­rétt­ar­á­ætlun hans þannig að hámark þess sem hver fast­ráð­inn starfs­maður má kaupa á ári var hækkað um 150 pró­sent, í sam­ræmi við breytt ákvæði tekju­skatts­laga. Að mati stjórnar var æski­legt að hafa heim­ild til að „nýta hið nýja hámark til að kaup­rétt­ar­á­ætl­unin nái því mark­miði að sam­þætta hags­muni starfs­manna við hags­muni bank­ans með mark­tækum hætti.“

[links]Kaup­rétt­­ar­á­ætl­­un­in, sem nær til allra fast­ráð­inna starfs­­manna, var fyrst sam­­þykkt á aðal­­fundi Arion banka í mars í fyrra og mark­mið hennar er sagt vera að „sam­þætta hags­muni starfs­­fólks við lang­­tíma­hags­muni bank­ans.“

Í febr­úar síð­ast­liðnum var svo greint frá því að allir 628 fast­ráðnir starfs­­menn Arion banka sem eiga rétt á að gerð kaup­rétt­­ar­­samn­ing við bank­ann hafi gert slík­­­an. Í samn­ingnum felst að starfs­­menn­irnir áttu að geta keypt hluta­bréf í bank­­anum fyrir alls 600 þús­und krónur einu sinni á ári í fimm ár. Fyrsti nýt­ing­­ar­­dagur er í febr­­úar á næsta ári en sá síð­­­asti í febr­­úar 2026.

Aðal­fundur Arion banka sam­þykkti hins vegar í gær að veita stjórn bank­ans heim­ild til breyt­inga á áður gerðri kaup­rétt­ar­á­ætlun þannig að bank­anum verði heim­ilað að gera kaup­rétt­ar­samn­inga við fast­ráðna starfs­menn félags­ins um kaup á hlutum í bank­anum fyrir allt að 1,5 milljón króna á ári.

Verði kaup­rétt­irnir full­nýttir munu starfs­menn­irnir 628 geta keypt bréf fyrir 942 millj­ónir króna á ári.

[adspot]Kaup­verð starfs­­manna Arion banka á hlutum í bank­­anum er vegið með­­al­verð í við­­skiptum með hluta­bréf félags­­ins tíu við­­skipta­daga fyrir samn­ings­dag, sem er 3. febr­­úar 2021, eða 95,5 krónur hver hlut­­ur. Það er 24 pró­sent undir núver­andi mark­aðs­gengi Arion banka.

Kaupaukakerfið samþykkt

Kaupauka­kerfi Arion banka var einnig sam­þykkt eins og hún var lögð fram af stjórn bank­ans á aðal­fundi hans sem fram fór í gær.

Í því felst að öllu fast­ráðnu starfs­­­fólki Arion banka mun standa til boða að geta fengið allt að tíu pró­­­sent af föstum árs­­­launum sínum á árinu 2021 í kaupauka þegar árs­­­reikn­ingur bank­ans fyrir árið 2021 liggur fyr­ir, ef þau mark­mið sem nýtt kaupauka­­­kerfi til­­­­­greinir nást.

Þeir stjórn­­­endur og það starfs­­­fólk sem hefur hvað mest áhrif á tekjur og kostnað bank­ans mun geta fengið allt að 25 pró­­­sent af föstum árs­­­launum í kaupauka­greiðslu, en þá í formi hluta­bréfa í bank­­­anum sem verða ekki laus til ráð­­­stöf­unar fyrr en að þremur árum liðn­­­­­um.

Þau mark­mið sem Arion banki þarf að ná til að kaupa­auka­­­kerfið fari í gang fela í sér að arð­­­semi bank­ans verðir að vera hærri en vegið með­­­al­­­tal arð­­­semi helstu keppi­­­nauta bank­ans: Íslands­­­­­banka, Lands­­­banka og Kviku. „Ná­ist þetta mark­mið ekki, verður ekki greiddur út kaup­­­auki. Heild­­­ar­fjár­­­hæðin sem veitt verður til kaupauka­greiðslna verður þó aldrei hærri en sem nemur arð­­­semi bank­ans umfram vegið með­­­al­­­tal arð­­­semi sam­keppn­is­að­ila,“ segir í til­­­kynn­ingu frá Arion banka til þeirra hluta­bréfa­­­mark­aða sem bank­inn er skráður á, en hann er tví­­­­­skráður á Íslandi og í Sví­­­þjóð.

Stærsti eigandinn var á móti

Gildi líf­eyr­is­sjóður, stærsti hlut­haf­inn í Arion banka með 9,61 pró­sent hlut, til­kynnti nýverið að hann myndi greiða atkvæði gegn til­lögu stjórnar Arion banka um starfs­kjara­stefnu bank­ans. Í bókun sem sjóð­ur­inn lagði fram sagði að hann teldi að stjórnin hafi ekki „með full­nægj­andi hætti rök­stutt þörf­ina og til­gang þess að nýta heim­ild til að koma á fót árang­urstengdu launa­kerfi, aukn­ingu kaup­rétta og áskrift­ar­rétt­ind­um. Laun stjórn­enda bank­ans virð­ast að mati sjóðs­ins, þegar til­lit er tekið til mögu­leika á árang­urstengdum greiðsl­um, kaup­réttum og áskrift­ar­rétt­ind­um, hærri en það sem gengur og ger­ist hjá öðrum íslenskum bönkum og skráðum fyr­ir­tækjum sem starfa á íslenskum mark­að­i.“

Mik­il­vægt er að mati Gildis að ef félög ákveði að not­ast við árang­urstengd launa­kerfi sé gætt heild­ar­sam­heng­is. Til dæmis að föst laun séu þá lægri sam­an­borið við félög þar sem slík kerfi eru ekki til stað­ar. „Þá er mik­il­vægt að slíkt kerfi hvetji ekki til óeðli­legar áhættu­töku,“ sagði í bók­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár