Stjórnarlaun í Arion verða ekki hækkuð eftir mótmæli lífeyrissjóða

Mótmæli líf­eyr­is­sjóða við hækkun á launum stjórn­ar­manna í Arion banka skil­aði árangri. Launin verða áfram þau sömu en greiðslum til stjórn­ar­manna sem búa erlendis er breytt vegna „þeirrar fyr­ir­hafnar sem hlýst af ferða­lögum til og frá land­inu.“

Stjórn Arion banka hefur ákveðið að draga til baka fyrri til­lögu um umtals­verða hækkun á launum stjórn­ar­manna eftir að Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, þriðji stærsti eig­andi bank­ans, lagði fram til­lögu þess efnis sem átti að fara fyrir aðal­fund Arion banka í dag.

[links]Þess í stað hefur stjórnin lagt fram nýja til­lögu sem byggir að mestu á til­lögu sjóðs­ins, í sam­ráði við hann þar sem laun stjórn­ar­manna verða áfram þau sömu en erlendir stjórn­ar­menn fá greiddar 300 þús­und krónur fast fyrir hvern stjórn­ar­fund sem þeir sækja í eigin per­sónu. Það sé eðli­legt til að koma til móts við „sjón­ar­mið um að eðli­legt sé að greiða stjórn­ar­mönnum sem búsettir eru erlendis ein­greiðslu vegna þess vinnu­taps og þeirrar fyr­ir­hafnar sem hlýst af ferða­lögum til og frá land­inu vegna stjórn­ar­starfa.“

Stjórn Arion banka hefur enn fremur ákveðið að draga til baka til­lögu sína um breyt­ingar á starfs­reglum til­nefn­ing­ar­nefndar bank­ans. Þá gerir stjórn bank­ans þá til­lögu að fjár­hæð lækk­unar hluta­fjár verði hækkuð sem nemur 40 milljón hlutum með eyð­ingu á eigin bréfum, þannig mun nafn­verð hluta­fjár lækka úr 1.730.000.000 krónum í 1.660.000.000 krónur.

Stjórn Arion banka hafði lagt til að mán­að­ar­laun stjórn­ar­manna verði 600 þús­und krónur á mán­uði, að mán­að­ar­laun vara­for­manns verði kr. 900 þús­und krónur og að mán­að­ar­laun stjórn­ar­for­manns­ins, Brynj­ólfs Bjarna­son­ar, verði 1,2 millj­ónir króna á mán­uði. Auk þess áttu stjórn­ar­menn sem búsettir eru erlendis að fá 300 þús­und krónur fyrir ferða­lög vegna hvers stjórn­ar­fundar sem þeir sækja í eigin per­sónu. Þar að auki yrði heim­ilt að greiða þeim stjórn­ar­mönnum sem sitja í und­ir­nefndum stjórnar 200 þús­und krónur fyrir hvern set­inn fund, en þó að hámarki 400 þús­und krónur á mán­uði. For­menn stjórn­ar­nefnda áttu að geta fengið 300 þús­und krónur fyrir hvern set­inn fund, en þó aldrei meira en 600 þús­und krónur á mán­uði.

[adspot]Með því yrðu laun erlendu stjórn­ar­mann­anna, sem verða tveir eftir aðal­fund­inn í dag, 37 pró­sent lægri þrátt fyrir að fyr­ir­huguð hækkun á grunn­launum yrði að veru­leika. Stjórn­ar­laun íslensku stjórn­ar­mann­anna myndu hins vegar hækka um 22 pró­sent.

Kjarninn greind i frá því í gær að Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna hefði lagst gegn launa­hækk­un­inni og lagt til að „mán­að­ar­laun stjórn­ar­manna verði kr. 490.900, mán­að­ar­laun vara­for­manns verði kr.736.200 en mán­að­ar­laun stjórn­ar­for­manns verði kr. 981.400.“ Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi, stærsti ein­staki eig­andi bank­ans, hafði áður til­kynnt að hann myndi greiða atkvæði gegn til­lög­u stjórnar Arion banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár