Lítið eftir af veiðigjöldunum þegar búið er að standa straum af eftirliti og rannsóknum

Heild­ar­út­gjöld rík­is­sjóðs vegna eft­ir­lits og rann­sókna vegna fisk­veiða og -vinnslu munu lík­lega nema um 7 millj­örðum króna á þessu ári. Árin 2015-2020 voru álögð veiði­gjöld að með­al­tali 7,4 millj­arðar á verð­lagi árs­ins 2020.

Á árunum 2015-2020 var beint fram­lag rík­is­sjóðs vegna kostn­aðar við stjórn, umsjón, rann­sóknir og eft­ir­lit með fisk­veiðum og fisk­vinnslu á bil­inu 3,65 til 4,5 millj­arðar á ári. Það er fyrir utan þann kostnað sem fer sam­kvæmt bók­haldi Land­helg­is­gæsl­unnar í eft­ir­lit með fisk­veiðum, en í rekstr­ar­á­ætlun Gæsl­unnar fyrir árið 2021 er gert ráð fyrir að meira en 1,6 millj­arður króna fari í að sinna fisk­veiði­eft­ir­liti.

Því má reikna með því að bein útgjöld rík­is­sjóðs vegna fisk­veiði­eft­ir­lits- og rann­sókna nemi um eða yfir 6 millj­örðum króna árið 2021. Kostn­aður við fisk­veiði­eft­ir­lit og -rann­sóknir á Íslandi er enn hærri, en þær stofn­anir sem sinna eft­ir­liti og rann­sóknum afla sér sjálfar nokk­urra rekstr­ar­tekna. Á árunum 2015-2020 námu sjálfsafla­tekjur und­ir­stofn­ana atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins 1,1 til 1,6 millj­örðum króna á ári.

Með­al­heild­ar­út­gjöld stofn­ana ann­arra en Land­helg­is­gæsl­unnar við fisk­veiði­eft­ir­lit- og rann­sóknir nam um því um 5,5 millj­örðum á ári að með­al­tali á árunum 2015-2020. Að við­bættum kostn­aði við fisk­veiði­eft­ir­lit Land­helg­is­gæsl­unnar má ætla að eft­ir­lit- og rann­sóknir með sjáv­ar­út­vegi kosti árlega í heild um 7 millj­arða króna.

Þetta má lesa út úr svörum sem fjár­laga­nefnd Alþingis hefur fengið frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu og dóms­mála­ráðu­neyt­inu, en Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata vekur athygli á þeim á Facebook.

Björn Leví segir við Kjarnann að óskað hafi verið eftir þessum tölum frá ráðu­neyt­unum tveimur þegar vinna við fjár­laga­gerð stóð yfir síð­asta haust og hann var að velta fyrir sér kostn­aði rík­is­ins við að sinna lög­bundnum verk­efnum sínum.

[adspot]

„Það virt­ist vera auð­velt að taka þetta saman og nú er þetta komið fram,“ segir Björn Leví. Hann segir að nú sé kom­inn verð­miði á heild­ar­kostnað rík­is­ins við eft­ir­lit með fisk­veiðum – og bendir á að sam­kvæmt lögum um veiði­gjöld eigi þau bæði að mæta þeim kostn­aði og veita þjóð­inni hlut­deild í arð­inum af sjáv­ar­út­vegsauð­lind­inni.

„Veiði­gjald er lagt á í þeim til­gangi að mæta kostn­aði rík­is­ins við rann­sóknir, stjórn, eft­ir­lit og umsjón með fisk­veiðum og fisk­vinnslu og til að tryggja þjóð­inni í heild beina og sýni­lega hlut­deild í afkomu við veiðar á nytja­stofnum sjávar,“ segir í 1. gr. laga um veiði­gjald frá árinu 2018.

Veiðigjöld mæta ekki útgjöldum við rannsóknir og eftirlit öll árin

Samkvæmt sam­an­tekt frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu greiddu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki rúma 7,4 millj­arða króna í veiði­gjöld að með­al­tali á árunum 2015-2020, þegar upp­hæð­irnar eru færðar yfir á verð­lag árs­ins 2020.

Sum árin ná veiði­gjöldin ekki að mæta heild­ar­út­gjöldum rík­is­sjóðs vegna rann­sókna og eft­ir­lits með fisk­veiðum og fisk­vinnslu, en önnur ár eru þau tölu­vert hærri en heild­ar­út­gjöldin. Björn Leví bendir á að í fyrra, þegar veiði­gjöldin námu rúmum 4,8 millj­örðum króna, hafi heild­ar­út­gjöld rík­is­sjóðs vegna fisk­veiði­rann­sókna- og eft­ir­lits verið um 1,4 millj­örðum hærri en veiði­gjöldin að með­töldum áætl­uðum kostn­aði Land­helg­is­gæsl­unnar, sem ekki er inni í töl­unum frá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu.

Er skiptingin sanngjörn?

Björn Leví segir að hann telji rétt að veiði­gjöldin mæti heild­ar­út­gjöldum rík­is­sjóðs við rann­sóknir, stjórn og eft­ir­lit með fisk­veiðum, þrátt fyrir að stofn­anir á borð við Hafró og Fiski­stofu afli sér sjálfsafla­tekna að hluta. Síðan eigi þau líka að tryggja þjóð­inni „beina og sýni­lega hlut­deild“ í afkom­unni.

Ef eft­ir­lit og rann­sóknir muni í heild kosta um 7 millj­arða króna á yfir­stand­andi ári megi spyrja sig að því hversu sann­gjörn hlut­deild þjóð­ar­innar í afkom­unni sé, en áætlað er að veiði­gjöld árs­ins 2021 muni nema 7,5 millj­örðum króna. Þjóðin fái því um 500 millj­ónir króna í sinn hlut.[links]

Björn Leví setur upp­hæð­irnar í sam­hengi við hagnað útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna á umliðnum árum og reikn­ast þing­mann­inum til að á árunum 2015-2020 hafi rík­is­sjóður fengið um tvo millj­arða króna í sinn hlut þegar búið sé að draga heild­ar­út­gjöld við eft­ir­lit og rann­sóknir frá greiddum veiði­gjöldum, en þá er hann að áætla að kostn­aður Land­helg­is­gæsl­unnar sé svip­aður og fyrir árið 2021.

Á sama tíma hafi hagn­aður íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja numið 197 millj­örðum króna á árunum 2015 til 2019.

Þing­mað­ur­inn segir að vissu­lega sé verð­mæta­sköp­unin í sjáv­ar­út­vegi inni í þessum hagn­aði, en hann hafi ekki betri upp­lýs­ingar til þess að byggja á við að reyna að svara þeirri spurn­ingu hvort skipt­ing arðs­ins af „hrárri auð­lind­inni“ sé sann­gjörn þegar allt komi til alls.

„Þessar spurn­ingar eru skref í átt­ina að því að kom­ast að þessu, hvort þetta sé sann­gjörn skipt­ing,“ segir Björn Leví.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár