Veiðigjaldið skilar sjö milljörðum króna á næsta ári

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins sem halda á afla­heim­ildum greiða sam­tals sjö millj­arða króna fyrir þær til rík­is­sjóðs á næsta ári. Gjald­taka rík­is­sjóðs vegna fisk­eldis, sem var lög­fest í sumar, skilar 134 millj­ónum króna.

Veiði­gjald fyrir veiði­heim­ildir verður um sjö millj­arðar króna á næsta ári. Þetta kemur fram í fjár­laga­frum­varp­inu sem kynnt var síð­ast­lið­inn föstu­dag.

Það er mjög sam­bæri­leg upp­hæð og útgerðir lands­ins munu greiða fyrir afnot af fisk­veiði­auð­lind­inni í ár, 2019. Tekjur rík­is­sjóðs af veiði­gjald­inu árið 2018 voru 11,4 millj­arðar króna, sam­kvæmt rík­is­reikn­ingi fyrir það ár.

Ný lög um veiði­gjald tóku gildi um síð­ustu ára­mót þar sem meðal ann­ars var settur nýr reikni­stofn sem bygg­ist á afkomu við veiðar hvers nytja­stofns. Í fjár­laga­frum­varp­inu segir að með breyt­ing­unum sé dregið úr töf við með­ferð upp­lýs­inga um átta mán­uði. „Þá er veiði­gjaldið nú ákveðið fyrir alm­an­aksár í stað fisk­veiði­árs.

[adspot]Jafn­framt var í byrjun sum­ars lög­fest gjald­taka á fisk­eldi. Hún á að skila rík­is­sjóði tekjum upp á 134 millj­ónum króna á næsta ári.

Gríðarlegur hagnaður á undanförnum áratug

Íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki greiddu út hærri arð­greiðslur á árinu 2017 en þau hafa nokkru sinni gert áður. Alls fengu eig­endur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja 14,5 millj­arða króna greiddan í arð á árinu 2017 vegna frammi­stöðu árs­ins á undan.

Frá árinu 2010, og út árið 2017, voru arð­greiðslur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja til eig­enda sinna 80,3 millj­arðar króna. Frá hruni og til loka árs 2017 batn­aði eig­in­fjár­staða sömu fyr­ir­tækja um 341 millj­arða króna, og þar af batn­aði hún um 41 millj­arð króna 2017. Því vænk­að­ist hagur sjáv­ar­út­veg­ar­ins um 421,3 millj­arða króna á tæpum ára­tug. Vert er að taka fram að eig­in­fjár­staða geirans var nei­kvæð í lok árs 2008 en er var jákvæð um 262 millj­arða króna í lok árs 2017, sam­kvæmt tölum úr Sjáv­ar­út­vegs­gagna­grunni Deloitte. Nýjar tölur, sem sýna afkomu grein­ar­innar 2018, verða kynntar á Sjáv­ar­út­vegs­deg­inum sem hald­inn verður síðar í þessum mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár