Niðurstaðan ýmist sögð staðfesta „tilefnislausa aðför“ eða „kerfislægt misrétti“

Formaður stétt­ar­fé­lags­ins Eflingar og fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins eru ekki sam­mála um hvernig túlka skuli nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms í máli rúm­enskra verka­manna gegn starfs­manna­leigu og Eldum rétt. Frávísun máls­ins verður áfrýjað til Lands­réttar.

„Nið­ur­staðan í gær var ömur­leg. Enn ein sönn­unin á því að sá hópur vinnu­aflsins sem jað­ar­sett­astur er skal ekki gera sér neinar vonir um að rétt­lætið sé að finna hjá þeim sem stýra kerf­inu. Rétt­inda­leysi þeirra og valda­leysi er engin til­viljun, heldur útkoma kerf­is­lægs mis­réttis,“ segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður stétt­ar­fé­lags­ins Eflingar, á Facebook í dag.

Hún vísar til nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, sem í gær vís­aði frá máli fjög­urrra rúm­enskra verka­manna gegn starfs­manna­leig­unni Menn í vinnu og Eldum rétt, sem keypti þjón­ustu starfs­mann­anna af starfs­manna­leig­unni.[links]

Málinu virð­ist ekki end­an­lega lokið, en stétt­ar­fé­lagið Efling, sem hefur haldið utan um mála­rekst­ur­inn fyrir hönd starfs­mann­anna, ætlar að styðja þá í að skjóta nið­ur­stöðu dóms­ins til Lands­réttar. Einnig hefur komið fram að þær millj­ónir í máls­kostnað sem rúm­ensku verka­mönn­unum var gert að greiða verði greiddar úr sjóðum Eflingar.

Framkvæmdastjóri SA hvetur Eldum rétt til að skoða málsókn á hendur Eflingu

Eins og Kjarninn fjall­aði um í gær byggð­ist frá­vísun Hér­aðs­dóms á kröfum rúm­ensku verka­mann­anna gagn­vart Menn í vinnu og Eldum rétt á því að ekki væri hægt að koma fram með nýjar hendur á starfs­manna­leig­unni sökum þess að hún væri komin í þrot og gjald­þrota­skiptum hefði lokið 11. sept­em­ber í fyrra.

[adspot]

Fram kom í dómnum að stefn­endur, rúm­ensku verka­menn­irnir fjórir, hefðu ekki upp­lýst um afstöðu skipta­stjóra til krafna þeirra í búið, þrátt fyrir að skorað hafi verið á þá um að gera það.

Einnig kom fram í nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms að fram­burður stefn­enda varð­andi greiðslur til þeirra hafi verið ótrú­verð­ugur og í and­stöðu við gögn sem stefn­endur hefðu sjálfir lagt fram í mál­inu. Þá hafi frá­dráttur af launum starfs­mann­anna verið í sam­ræmi við ráðn­ing­ar­samn­inga þeirra.

Í til­kynn­ingu segir Halldór Benjamín Þor­bergs­son fram­kvæmda­stjóri SA að um sé að ræða „sneypu­för“ stétt­ar­fé­lags­ins Eflingar gegn Eldum rétt.

„Efling stétt­ar­fé­lag hafði upp stór orð í fjöl­miðlum og sak­aði fyr­ir­tækið Eldum rétt meðal ann­ars um að nýta sér bág­indi verka­fólks og skipta við starfs­manna­leigu sem fram­kvæmda­stjóri Eflingar kall­aði „ein­hvers konar mansals­hring,“ segir Halldór Benjamín.

For­svars­menn stétt­ar­fé­lags­ins hafa deilt hart á Eldum rétt á opin­berum vett­vangi fyrir að nýta sér þjón­ustu starfs­manna­leig­unnar, sem hafði, áður en rúm­ensku starfs­menn­irnir fjórir voru leigðir til Eldum rétt, verið til umfjöll­unar í frétta­skýr­ing­ar­þætt­inum Kveik á RÚV vegna aðbún­aðar erlendra verka­manna sem störf­uðu hjá fyr­ir­tæk­inu.

Halldór Benjamín segir að ljóst sé, af dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, að máls­höfð­unin gegn Eldum rétt hafi verið „til­efn­is­laus“ og á sama tíma sé ljóst að „aðför Eflingar að Eldum rétt og til­efn­is­lausar ásak­anir hafa valdið fyr­ir­tæk­inu miklu tjóni“. Í því ljósi sé eðli­legt að fyr­ir­tækið skoði rétt­ar­stöðu sína gagn­vart Eflingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár