Engin samskipti við virkjunaraðila eftir álit Skipulagsstofnunar

„Sveit­ar­stjórn hefur ekki tekið neina ákvörðun varð­andi Svart­ár­virkjun,“ segir Dagbjört Jóns­dóttir, sveit­ar­stjóri Þing­eyj­ar­sveitar. Frá því að svart álit Skipu­lags­stofn­unar kom út hafa engin sam­skipti átt sér stað milli virkj­un­ar­að­ila og sveit­ar­stjórnar.

Virkjun Svartár í Bárðardal hefur staðið til í nokkur ár. Skipulagsstofnun telur hana hafa verulega neikvæð umhverfisáhrif í för með sér.
Virkjun Svartár í Bárð­ar­dal hefur staðið til í nokkur ár. Skipu­lags­stofnun telur hana hafa veru­lega nei­kvæð umhverf­is­á­hrif í för með sér. Mynd: Af Facebook-síðu Verndarfélags Svartár og Suðurár

Sveit­ar­stjórn Þing­eyj­ar­sveitar hefur ekki átt í neinum sam­skiptum við fram­kvæmda­að­ila Svart­ár­virkj­unar síðan álit Skipu­lags­stofn­unar á hinni fyr­ir­hug­uðu virkjun lá fyrir í lok síð­asta árs. Fram­kvæmda­að­il­inn, SSB Orka, hefur ekki óskað eftir því að aðal­skipu­lagi sveit­ar­fé­lags­ins verði breytt og virkj­unin færð inn á það.

Skipu­lags­stofnun komst að því í áliti sínu að umhverf­is­á­hrif virkj­unar Svartár yrðu veru­lega nei­kvæð og taldi nið­ur­stöðu umhverf­is­mats­ins gefa til­efni til að end­ur­skoða áform um að gera ráð fyrir virkj­un­inni á aðal­skipu­lagi Þing­eyj­ar­sveitar.

[adspot]

SSB Orka er í eigu Svart­ár­virkj­unnar ehf. Eigendur þess félags eru Ursus ehf. (í eigu Heiðars Guð­jóns­sonar) sem á 42,9 pró­sent, Íslands­virkjun ehf. (í jafnri end­an­legri eigu Péturs Bjarna­sonar og Auðuns Svafars Guð­munds­sonar) sem á 50 pró­sent og Íshóll (í eigu Stefáns Ákasonar) sem á 7,10 pró­sent. Kjarninn sendi fyr­ir­spurn til Heiðars Guð­jóns­sonar, for­svars­manns verk­efn­is­ins í jan­úar um fram­haldið en engin svör hafa enn borist.

[links]SSB Orka hefur um ára­bil áformað að reisa 9,8 MW virkjun með því að stífla Svartá í Bárð­ar­dal um 500 metra fyrir ofan ármót Svartár og Grjótár. Vatn yrði leitt um aðrennsl­is­pípu um 3 kíló­metra leið að stöðv­ar­húsi sem yrði stað­sett um 1,5 kíló­metrum ofan við ármót Svartár og Skjálf­anda­fljóts. Virkj­unin mun leiða til skerð­ingar á rennsli Svartár á um þriggja kíló­metra kafla á milli stíflu og frá­rennsl­is­skurðar frá stöðv­ar­húsi.

Áformin hafa vakið hörð við­brögð og bár­ust Skipu­lags­stofnun athuga­semdir frá tæp­lega 80 ein­stak­lingum og sam­tökum í umhverf­is­mats­ferl­inu. Að auki hefur málið verið hinu fámenna sam­fé­lagi í Bárð­ar­dal erfitt og sveit­ar­stjóri og odd­viti Þing­eyj­ar­sveitar hafa sagt Svart­ár­virkjun „heita kart­öflu“ sem muni kljúfa sam­fé­lagið í dalnum, hafi hún ekki þegar gert það.

Álit Skipu­lags­stofn­unar var lagt fram til kynn­ingar á fundi sveit­ar­stjórnar Þing­eyj­ar­sveitar um miðjan jan­úar og svo vísað til kynn­ingar í skipu­lags- og umhverf­is­nefnd sveit­ar­fé­lags­ins. Sú kynn­ing fór fram á fundi nefnd­ar­innar 21. jan­úar.

„Sveit­ar­stjórn hefur ekki tekið neina ákvörðun varð­andi Svart­ár­virkjun,“ segir Dagbjört Jóns­dóttir, sveit­ar­stjóri Þing­eyj­ar­sveitar, í skrif­legu svari til Kjarnans um stöðu máls­ins nú. „Næstu skref eru fram­kvæmda­að­il­ans; að sækja um breyt­ingu á aðal­skipu­lagi og í fram­hald­inu að óska eftir fram­kvæmda­leyfi, þá kemur til ákvörð­unar sveit­ar­stjórnar.“ Hún segir engin sam­skipti hafa verið milli sveit­ar­stjórnar og fram­kvæmda­að­il­ans frá því að álit Skipu­lags­stofn­unar var gefið út í lok des­em­ber í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár