„Birtingarmynd af eindæma skilningsleysi stjórnvalda“

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að félags- og barna­mála­ráð­herra hafi tek­ist að hækka flækju­stigið svo mikið varð­andi sér­stakan styrk til íþrótta- og tóm­stunda­starfs barna frá tekju­lágum heim­ilum að for­eldrar geti ekki nýtt sér styrk­inn.

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, gagn­rýndi undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni útfærslu á úrræði stjórn­valda í formi sér­staks styrks til íþrótta- og tóm­stunda­starfs barna sem koma frá tekju­lágum heim­ilum.

„Atvinnu­leysi er í sögu­legu hámarki og á ákveðnum svæðum er einn af hverjum fjórum ein­stak­lingum án atvinnu. Inni á heim­ilum atvinnu­leit­enda búa börn og það er stjórn­valda að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að vernda þau og mögu­lega fjöl­skyldu þeirra vegna fram­færslu. Ætlunin var að tryggja að öll börn óháð efna­hag gætu stundað íþróttir og aðrar tóm­stundir síð­ast­liðið sumar,“ sagði hún.

Benti Helga Vala á að þau í vel­ferð­ar­nefnd hefðu við upp­haf haust­þings fjallað um stöðu mála á Suð­ur­nesjum og fengið þau svör að lítið væri um að umsóknir um þessa styrki væru að ber­ast. Ástæðan hafi verið sögð ókunn.

Níu prósent hafa nýtt sér úrræðið

Stundin fjall­aði um málið í vik­unni en í frétt mið­ils­ins kom fram að aðeins 430 umsóknir hefðu borist Reykja­vík­ur­borg vegna þess­ara sér­stöku styrkja til íþrótta- og tóm­stunda­starfs barna frá tekju­lágum heim­ilum. Tæplega 4.800 börn ættu hins vegar rétt á slíkum styrk.

Vísaði þing­mað­ur­inn í frétt Stund­ar­innar og sagði að ein­ungis 9 pró­sent þeirra barna sem búa á tekju­lágum heim­ilum hefðu sótt um þennan styrk. „Ástæðan virð­ist vera alger for­sendu­brestur við útfærslu þessa úrræðis af hálfu stjórn­valda. Það er nefni­lega þannig að hæst­virtur félags- og barna­mála­ráð­herra virð­ist hafa tek­ist að gera flækju­stigið svo hátt að þau börn sem búa við fátækt geta ekki nýtt sér þetta.

Sú aðferð ráð­herra að gera fátæku fólki að greiða æfinga- og tóm­stunda­gjöld úr eigin vasa og þurfa svo að sækja um end­ur­greiðslu er ein­fald­lega ekki eitt­hvað sem fátækt fólk, sem þarf að velja hvernig það á að koma börn­unum sínum í hátt­inn án þess að þau séu sár­soltin, getur gert. Þetta, herra for­seti, er birt­ing­ar­mynd af ein­dæma skiln­ings­leysi stjórn­valda á þeim aðstæðum sem fjöldi fjöl­skyldna býr við á Íslandi í dag,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár