Stjórn Betri samgangna réði Davíð eftir að þrír umsækjendur spreyttu sig á verkefni

Árni Mathiesen, stjórn­ar­for­maður Betri sam­gangna ohf., segir að stjórn félags­ins hafi tekið loka­á­kvörðun um að ráða Davíð Þor­láks­son sem fram­kvæmda­stjóra eftir ferli þar sem 18 manns sóttu um, sjö voru tekin í við­töl og þrjú látin leysa verk­efni.

Betri samgöngur ohf. hefur yfirumsjón með þeim samgönguframkvæmdum sem á að ráðast í á höfuðborgarsvæðinu á komandi árum og fjármögnun þeirra. Mynd úr safni.
Betri sam­göngur ohf. hefur yfir­um­sjón með þeim sam­göngu­fram­kvæmdum sem á að ráð­ast í á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á kom­andi árum og fjár­mögnun þeirra. Mynd úr safni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Í upp­hafi árs var til­kynnt að Davíð Þor­láks­son, for­stöðu­maður sam­keppn­is­hæfn­is­sviðs Samtaka atvinnu­lífs­ins, hefði verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Betri sam­gangna, opin­bers hluta­fé­lags sem hefur það hlut­verk að hrinda umfangs­miklum sam­göngu­fram­kvæmdum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í fram­kvæmd.

Alls sóttu 18 manns um starfið, sam­kvæmt svari frá fyr­ir­tæk­inu Vinnvinn, ráðn­ingar og ráð­gjöf, sem var stjórn Betri sam­gangna til ráð­gjafar í ráðn­ing­ar­ferl­inu, en Kjarninn spurð­ist fyrir um hvernig ráðn­ing­ar­ferl­inu hefði verið háttað.

Þrír ein­stak­lingar komust í loka­úr­tak vegna starfs­ins og fengu verk­efni til þess að leysa. Að end­ingu var það stjórn félags­ins sem tók loka­á­kvörðun um að ráða Davíð Þor­láks­son, að sögn Árna Mathiesen fyrr­ver­andi ráð­herra, sem er stjórn­ar­for­maður félags­ins.[links]

Samkvæmt svari frá Vinnvinn var starfið aug­lýst 24. októ­ber síð­ast­lið­inn, með aug­lýs­ingum í Frétta­blað­inu, Morg­un­blað­inu og Við­skipta­blað­inu og á heima­síðu Vinnvinn. Aug­lýs­ing birt­ist jafn­framt á vef­borða á sam­fé­lags­miðl­unum Facebook og LinkedIn.

„Við mat á umsækj­endum var stuðst við við­ur­kenndar aðferðir sem veita hámarks for­spá um frammi­stöðu í starfi. Ráðn­ing­ar­ferlið fólst í mati á umsóknum, við­tölum, per­sónu­leikamati og verk­efni sem lagt var fyrir val­inn hóp umsækj­enda,“ segir einnig í svari Vinnvinn til Kjarnans.

[adspot]

Samkvæmt Árna Mathiesen voru sjö manns af þeim átján sem sóttu um tekin í við­töl og verk­efni var lagt fyrir þrjá ein­stak­linga. Stjórnin tók að því loknu ákvörðun um að ráða Davíð í starfið, en sam­kvæmt svari Vinnvinn var allt ferlið „unnið í náinni sam­vinnu við stjórn Betri sam­gangna ohf. allt frá hæfni­grein­ingu starfs­ins þangað til nið­ur­staða fékkst í málið.“

Í stjórn félags­ins sitja auk Árna þau Eyjólfur Árni Rafnsson, Guðrún Ögmunds­dóttir, Gunnar Ein­ars­son, Ólöf Örv­ars­dóttir og Hildigunnur Haf­steins­dóttir. Varamenn eru Ármann Kr. Ólafsson og Guðrún Birna Finns­dóttir.

Gerir ráð fyrir því að fleiri starfsmenn verði ráðnir en hófsemi gætt

Blaða­maður spurði Árna hvað væri nú framundan hjá félag­inu, sem stofnað var í haust af rík­inu og sex sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til þess að halda utan um þær miklu sam­göngu­bætur sem ráð­ast á í á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og fjár­mögnun þeirra.

Fram­kvæmda­stjór­inn Davíð er enn sem komið er eini starfs­maður Betri sam­gangna, en Árni seg­ist gera ráð fyrir því að félagið muni ráða fleiri. „Við erum kannski ekki alveg búin að átta okkur á því hvaða upp­setn­ingu við þurfum að hafa,“ segir Árni.

„Við munum gæta eins mik­ils hófs í því og hægt er og nýta okkur sér­fræði­þekk­ingu sem er fyrir hendi í þeim stofn­unum sem hlut­haf­arnir eru með, en samt að gæta þess að við höfum tæki og tól og þá þar með mann­afla til þess að mynda okkur sjálf­stæðar skoð­anir og taka sjálf­stæðar ákvarð­anir,“ segir stjórn­ar­for­mað­ur­inn.

„Dálítið metnaðarfull áætlun“

Árni segir að mörg verk­efni séu framundan hjá félag­inu, en ferlið við að koma sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins af stað og stofna félagið Betri sam­göngur með lögum hafi kannski tekið aðeins lengri tíma en gert var ráð fyrir og von­ast var eftir í upp­hafi.

Nú sé unnið að und­ir­bún­ingi ýmissa fram­kvæmda, bæði stofn­vega­fram­kvæmda og Borg­ar­línu­fram­kvæmda og einnig upp­bygg­ingu hjóla­stíga og göngu­stíga. Talsvert verði um fram­kvæmdir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á næstu árum.

„Þetta er dálítið metn­að­ar­full áætlun og það hefur ekki verið mikið um stofn­vega­fram­kvæmdir und­an­farin ár og Borg­ar­línu­fram­kvæmd­irnar eru ákveðin nýj­ung í þessu og breyta umferð­inni og umferð­ar­flæð­inu. Það kallar á að það verði bætt úr ýmsu í stofn­veg­unum og stofn­veg­irnir verði aðlag­aðir því að mæta þessum nýju aðstæðum sem Borg­ar­línan mun skapa,“ segir Árni.

Búa til verðmæti úr Keldnalandinu

Eitt af helstu verk­efnum Betri sam­gangna, sam­kvæmt stofn­sam­þykktum félags­ins, verður að gera eins mikil verð­mæti og hægt er úr landi rík­is­ins við Keldur í Reykja­vík.

Félagið mun taka við Keldna­land­inu sam­kvæmt sér­stökum samn­ingi við fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og allan ábata af þróun þess og sölu skal láta renna óskertan til sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

„Félagið skal ann­ast þróun lands­ins í sam­vinnu við skipu­lags­yf­ir­völd með það að mark­miði að hámarka virði lands­ins og upp­bygg­ing­ar­mögu­leika þess eins og kostur er. Við þróun lands­ins skal félagið hafa náið sam­ráð við skipu­lags­yf­ir­völd er lýtur að skipu­lags­málum, lóð­ar­málum og hönnun sam­göngu­fram­kvæmda,“ segir í stofn­sam­þykktum Betri sam­gangna.

Árni segir þessa ráð­stöfun Keldna­lands­ins „mjög athygl­is­vert verk­efni“, því að vissu leyti sé það nýj­ung að nýta efna­hags­reikn­ing rík­is­ins í þessum til­gangi.

Lét sig samgöngumálin varða á þingi

Blaða­maður spurði Árna að lokum hvernig það hefði komið til að hann hefði valist til þess að verða stjórn­ar­for­maður Betri sam­gangna. „Ég eig­in­lega bara veit það ekki,“ segir Árni, hlær og bætir við að þeirri spurn­ingu verði að beina til Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, sem setti hann í hlut­verkið.

„Að öllu gamni slepptu var ég þing­maður bæði í gamla Reykja­nes­kjör­dæmi og Suð­vest­ur­kjör­dæmi með Bjarna og eitt af verk­efnum þing­manna þess tíma var að hafa mikil afskipti af sam­göngu­mál­unum,“ segir Árni.

Hann segir til við­bótar að á þing­ferli sínum, sem var frá árinu 1991-2009, hafi hann látið sig sam­göngu­mál höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og nágrennis varða og meðal ann­ars verið for­maður sam­göngu­nefndar Alþingis, fyrst þegar hann kom inn á þing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár