Könnun: 45 prósent kjósenda repúblikana studdu gjörðir þeirra sem réðust á þingið

Á meðan að heim­ur­inn fylgd­ist með fréttum af inn­rás æsts múgs í þjóð­þing Banda­ríkj­anna gerði fyr­ir­tækið YouGov skoð­ana­könnun á því hvernig fólk upp­lifði atburð­ina. Demókratar og repúblikanar sáu hlut­ina gjör­ó­líkum augum.

Könnun YouGov var framkvæmd á meðan að atburðirnir í Washington voru enn í fullum gangi.
Könnun YouGov var fram­kvæmd á meðan að atburð­irnir í Washington voru enn í fullum gangi. Mynd: EPA

Skoð­ana­könnun sem fram­kvæmd var af fyr­ir­tæk­inu YouGov á meðan að atburðir gær­dags­ins í Washington DC stóðu yfir hefur fengið marga til þess að staldra við og íhuga á hvaða stað banda­rískt sam­fé­lag er komið. Í könn­un­inni voru kjós­endur spurðir út í inn­rás æst múgs í banda­ríska þjóð­þingið.

Samkvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar töldu um það bil sex af hverjum tíu kjós­endum að inn­rásin í þingið sé ógn við banda­rískt lýð­ræði. En það er afar mis­jafnt eftir kjós­enda­hópum, hvernig litið er á hlut­ina.

Einungis 27 pró­sent kjós­enda Repúblikana­flokks­ins sögð­ust telja atburð­ina ógn við lýð­ræðið, á meðan að 9 af hverjum 10 demókrötum töldu svo vera.

[adspot]

Til við­bótar sögð­ust 45 pró­sent þeirra sem svör­uðu og eru skráðir kjós­endur Repúblikana­flokks­ins hrein­lega styðja gjörðir þeirra hund­ruða sem þustu inn í þing­húsið með ofbeldi. Svipað hlut­fall kjós­enda flokks­ins sagð­ist á móti inn­rásinni í þingið.

Fleiri repúblikanar töldu Biden bera ábyrgð en Trump

YouGov spurði þátt­tak­endur einnig að því hverjir þeir teldu að bæru ábyrgð á atburð­unum.

Meiri­hluti, eða 55 pró­sent, sagð­ist telja að Donald Trump for­seti bæri mikla ábyrgð og 11 pró­sent til við­bótar töldu hann bera ein­hverja ábyrgð á því hvernig fór.[links]

42 pró­sent sögðu að þing­menn Repúblikana­flokks­ins sem höfðu ákveðið að mót­mæla kosn­inga­úr­slitum í ein­staka ríkjum bæru mikla ábyrgð á stöð­unni og 20 pró­sent til við­bótar sögðu þá bera ein­hverja ábyrgð.

Einnig töldu 17 pró­sent kjós­enda að Joe Biden verð­andi Banda­ríkja­for­seti bæri mikla ábyrgð á atburð­unum og 9 pró­sent til við­bótar sögðu hann bera ein­hverja ábyrgð. Í kjós­enda­hópi repúblik­ana töldu fleiri Biden bera mikla ábyrgð á atburð­unum (35 pró­sent) en Trump (13 pró­sent).

Öfgamenn eða föðurlandsvinir?

Samkvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar voru einnig mjög skiptar skoð­anir á því hvaða augum þeir sem réð­ust inn í þing­húsið voru litnir. Rúmur helm­ingur þátt­tak­enda í könn­unni (52 pró­sent) sagði rétt að kalla þau „öfga­menn“ og 49 pró­sent töldu rétt að tala um „inn­lenda hryðju­verka­menn.“

Kjós­endur Repúblikana­flokks­ins töldu flestir (50 pró­sent) að rétt væri að tala um „mót­mæl­endur“, 30 pró­sent þeirra sögðu rétt að kalla hóp­inn „föð­ur­lands­vini“ og röskum fjórð­ungi þeirra þótti rétt að tala um „öfga­menn.“

Þátt­tak­endur í þess­ari könnun YouGov voru 1.448 tals­ins. Þar af voru 1.397 sem höfðu heyrt af því sem hafði átt sér stað í Washington, en um net­könnun var að ræða sem fram­kvæmd var á milli 17:17 og 17:42 í gær, að banda­rískum aust­ur­strand­ar­tíma.

Gögnin eru vigtuð með til­liti til aldur, kyns, mennt­un­ar­stig, yfir­lýstra stjórn­mála­skoð­ana og upp­runa svar­enda og eiga að end­ur­spegla full­orðna íbúa Banda­ríkj­anna ágæt­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár