Sníkjur drottningar, harmsaga, COVID-19 og norskur auðmaður

Komið var víða við í mest lesnu erlendu frétta­skýr­ingum árs­ins 2020 á Kjarn­anum.

5. Er Tom Hagen úlfur í sauðargæru?

Í ágúst í fyrra fékk fyrr­ver­andi félagi í dönsku mót­or­hjóla­gengi beiðni um að aðstoða norska auð­mann­inn Tom Hagen við leit að konu sinni. Daninn telur úti­lokað að „atvinnu­menn“ hafi rænt eig­in­konu Hagens sem sjálfur liggur undir grun.

Hann hefur þrá­fald­lega neitað aðkomu að hvarfi eig­in­konu sinnar. Borgþór Arn­gríms­son fjall­aði um málið í maí.

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

4. Ríkið sem (virðast) hafa náð tökum á útbreiðslunni

Um miðjan mars var COVID-19 var enn og snemmt að full­yrða hvaða aðgerðir hefðu reynst best í bar­átt­unni gegn veirunni. Fyrir lá þó að rót­tækar aðgerðir nokk­urra Asíu­ríkja virt­ust vera að skila umtals­verðum árangri.

Innan við 200 til­felli höfðu þá greinst í Hong Kong og Singapúr á meðan tíu sinnum fleiri höfðu greinst í Frakk­landi, Þýska­landi og á Spáni, þangað sem veiran barst mun síðar.

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

3. Harmsaga á Hart-eyju

„Langur og djúpur skurður. Tugir kista úr krossviði liggja hver ofan á annarri í tveimur sam­hliða röðum. Skurð­ur­inn var graf­inn með stórri gröfu en yfir kist­urnar moka menn í hvítum hlífð­ar­fatn­aði með grímur. Álengdar standa svart­klæddir menn, einnig með grímur fyrir vit­unum, og fylgj­ast með aðgerðum. Velkomin á Hart-eyju.“

[adspot]Svona hófst frétta­skýr­ing Kjarnans um eyj­una fyrir utan Bronx-hverfið í New York-borg þar sem fátækir hafa verið lagðir til hinstu hvílu í nafn­lausum gröfum frá því um miðja nítj­ándu öld.

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

2. Önnur bylgja faraldurs í Singapúr

Þegar leið á apr­íl­mán­uði var ljóst að lofið sem Singapúr hafði hlotið fyrir góðan árangur í bar­átt­unni gegn COVID-19, með því að taka mörg sýni, rekja þau af miklum móð og ein­angra sýkta, hafði ekki virkað eins og von­ast var til.

Frá 17. mars 2020 og til 20. apríl fjölg­aði stað­festum smitum úr 266 í rúm­lega átta þús­und í land­inu. Önnur bylgja var skollin á og gert var grein fyrir henni í frétta­skýr­ingu í Kjarn­anum.

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

1. Drottningin sníki afmælisgjöfina

Í til­efni átt­ræð­is­af­mælis Mar­grétar Þór­hildar Dana­drottn­ingar, 16. apríl síð­ast­lið­inn, fékk danska hirðin veg­lega gjöf. Athygli vakti að drottn­ingin bað sjálf um gjöf­ina sem kost­aði and­virði 128 millj­óna íslenskra króna.

Um var að ræða 400 vand­aða stóla úr kirsu­berja­tré sem til stóð að yrði sýni­legir í sjón­varpi í veislu­höldum vegna afmæl­is­ins sem sýnt yrði frá í sjón­varpi. Þeim var frestað vegna kór­ónu­veirunnar og einn af þeim sem stóð að gjöf­inni lést úr veirunni áður en að hann fékk að sjá stól­anna not­aða.

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2020

Pistill

Sandra B. Franks

Far­ald­ur­inn yfir­skyggði allt

Á við­burða­ríku ári sem nú er liðið yfir­skyggði Covid-19 far­ald­ur­inn allt annað. Hann reyndi veru­lega á starfs­þrek heil­brigð­is­starfs­manna og ekki síst okkur sjúkra­liða. Mörg okkar voru í fram­lín­unni. Aðrir sjúkra­liðar stóðu vakt­ina í störfum sem ekki voru síður mik­il­væg. Ég er mjög stolt af því hve frá­bær­lega sjúkra­liða­stéttin hefur staðið sig í Covid far­aldr­inum. Hann hefur svo sann­ar­lega beint athygl­inni...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár