Er Tom Hagen úlfur í sauðargæru?

Í ágúst í fyrra fékk fyrr­ver­andi félagi í dönsku mót­or­hjóla­gengi beiðni um að aðstoða norska auð­mann­inn Tom Hagen við leit að konu sinni. Daninn telur úti­lokað að „atvinnu­menn“ hafi rænt eig­in­konu Hagens sem sjálfur liggur undir grun.

Anne-Elisa­beth Hagen og eiginmaður hennar Tom Hagen.
Anne-Elisa­beth Hagen og eig­in­maður hennar Tom Hagen. Mynd: Úr safni

Hvarf Anne Elisa­beth Hagen (68 ára) í lok októ­ber árið 2018 er eitt umtal­að­asta manns­hvarf í sögu Noregs. Að minnsta kosti á síð­ari tímum. Anne Elisabet og Tom Hagen kynnt­ust ung að árum og gengu í hjóna­band innan við tví­tugt. Þau eign­uð­ust þrjú börn og eiga nokkur barna­börn. Hún sinnti börn­unum og heim­il­inu en hann hefur lengi verið umsvifa­mik­ill í fast­eigna­við­skiptum og stofn­aði árið 1992 ásamt fleirum raf­orku­fyr­ir­tækið Elkraft AS. Nafn hans hefur birst á listum yfir 200 efn­uð­ustu menn Noregs (númer 172) en Hagen hjónin hafa aldrei verið áber­andi og ekki borist á. Þau hafa um ára­bil búið í Fjell­hamar, skammt frá Ósló.

31. október 2018

Um níu­leytið að morgni 31. októ­ber 2018 hélt Tom Hagen frá heim­ili sínu til vinnu­stað­ar­ins í Lørenskog, tæp­lega fjög­urra kíló­metra leið. Stund­ar­fjórð­ungi síðar hringdi einn úr fjöl­skyld­unni í Anne Elisa­beth, sím­talið var stutt og ekk­ert gaf til kynna að eitt­hvað óvenju­legt væri á seyði.

Rétt uppúr klukkan hálf­tvö kom Tom Hagen heim. Þá var eig­in­konan horfin, hvolpur hjón­anna inni­lok­aður og á bað­her­berg­inu var bréf, skrifað á bjag­aðri norsku. Þar var farið fram á níu millj­ónir evra (1.426 millj­ónir íslenskar) sem greiddar skyldu í raf­mynt­inni Monero. Engin leið var að hafa sam­band við mann­ræn­ingj­ana nema með því að milli­færa upp­hæð­ina sem kraf­ist var.

Um tvöleytið hafði Tom Hagen sam­band við lög­regl­una og til­kynnti um hvarf eig­in­konu sinnar. Lög­reglan hóf þegar í stað rann­sókn og yfir­heyrði meðal ann­ars nokkra iðn­að­ar­menn sem höfðu skömmu fyrir hvarf Anne Elisa­beth unnið að við­gerðum á íbúð­ar­húsi Hagen hjón­anna. Lög­reglan hefur margoft lýst eftir manni sem sást á eft­ir­lits­mynda­vél við vinnu­stað Tom Hagen klukkan 7:36 að morgni 31. októ­ber, dag­inn sem Anne Elisa­beth hvarf, sá maður hefur ekki gefið sig fram. Nokkrum mín­útum síðar sást annar maður á sömu eft­ir­lits­mynda­vél, sá hefur ekki heldur látið heyra frá sér.

Fyrst greint frá málinu 9. janúar 2019

Þótt fólk í nágrenn­inu hefði orðið vart við að eitt­hvað væri á seyði við íbúð­ar­hús Hagen hjón­anna var það ekki fyrr en 9. jan­úar 2019 að ljóst var um ástæð­una. Þann dag hélt lög­reglan frétta­manna­fund og greindi frá því að Anne Elisa­beth Hagen væri horfin. Ástæða þess að fjöl­miðlar höfðu ekki greint frá mál­inu var að lög­reglan hafði hótað þeim öllu illa ef svo mikið sem staf­krókur birt­ist á prenti um hvarfið eða frá því yrði greint í ljós­vaka­miðlum. Á þessum fundi greindi lög­reglan frá því að hún teldi að Anne Elisa­beth hefði verið rænt og ræn­ingj­arnir hótað að líf­láta hana ef lausn­ar­gjald yrði ekki greitt. Þegar frétta­menn spurðu hvers vegna lög­reglan hefði nú valið að greina opin­ber­lega frá hvarf­inu var því til svarað að lög­reglan von­að­ist eftir ábend­ingum frá almenn­ingi. Sama dag og áður­nefndur frétta­manna­fundur var hald­inn óskaði fjöl­skylda Anne Elisa­beth eftir að mann­ræn­ingj­arnir láti frá sér heyra og sýni fram á að hún sé á lífi og að allt sé í lagi með hana, eins og það var orðað.

Ýmislegt undarlegt

Í norskum fjöl­miðlum hefur, af skilj­an­legum ástæðum, verið fjallað mikið um hvarf Anne Elisa­beth Hagen og þar hefur ýmis­legt komið fram sem vekur spurn­ingar. Það þykir til að mynda und­ar­legt að mann­ræn­ingj­unum virt­ist ekki liggja mikið á að fá pen­ing­ana. Oftast vilja mann­ræn­ingjar fá lausn­ar­gjaldið strax, áður en lög­reglan kemst hugs­an­lega á sporið. Margir mán­uðir liðu frá því að krafan um lausn­ar­gjald var end­ur­nýjuð og þá var upp­hæðin allt önnur og lægri en í upp­hafi, eða 1,3 millj­ónir evra (206 millj­ónir íslenskar) í raf­mynt. Lög­reglan ráð­lagði Tom Hagen að greiða ekki þetta lausn­ar­gjald. Hann ákvað eigi að síður að borga án þess að fá sann­anir fyrir að kona hans væri á lífi. Þetta gerð­ist í ágúst 2019.

Ástæða þess að Tom Hagen var ráð­lagt að greiða ekki lausn­ar­gjaldið var sú að lög­reglan taldi þegar þarna var komið sögu að Anne Elisa­beth væri ekki lengur á lífi.

Var hún myrt 31. október 2018?

Í byrjun sept­em­ber 2019 kom fram að lög­reglan teldi að Anne Elisa­beth hefði verið myrt á heim­ili sínu 31. októ­ber 2018. Þar hefði einn, eða fleiri verið að verki og líkið strax verið flutt á brott. 22. jan­úar á þessu ári til­kynnti lög­reglan að mál Anne Elisa­beth væri nú flokkað sem óupp­lýst morð. Þrátt fyrir þessa yfir­lýs­ingu hafði lög­reglan ekki lagt árar í bát. Sjónir hennar beindust nú að eig­in­manni hinnar horfnu, Tom Hagen.

Tom Hagen handtekinn

Fyrir tæpum hálfum mán­uði, að morgni 28. apríl, var Tom Hagen hand­tek­inn þegar hann var á leið i vinn­una. Við hand­tök­una var honum til­kynnt að hann væri grun­aður um að bera ábyrgð á dauða konu sinnar. Komið hefur fram að í húsi Hagen hjón­anna hafði fund­ist blóð, merki um átök og spor eftir skó, sem ekki passa við skó sem voru á heim­il­inu. Það telur lög­reglan benda til að fleiri en einn hafi verið að verki. Áður hafði komið fram að Anne Elisa­beth hefði rætt um það við einn eða fleiri vini sína að hún íhug­aði skilnað. Upplýst hefur verið að lög­reglan hóf sum­arið 2019 að fylgj­ast sér­stak­lega með Tom Hagen, hler­aði síma hans og kom hlust­un­ar­tækjum fyrir á heim­ili hans og vinnu­stað.

Grunaði að lögreglan hefði hann í sigtinu

Upplýst hefur verið að lög­reglan hóf sum­arið 2019 að fylgj­ast sér­stak­lega með Tom Hagen, hler­aði síma hans og kom hlust­un­ar­tækjum fyrir á heim­ili hans og vinnu­stað. Tom Hagen fékk veður af því að hann væri undir smá­sjá lög­reglu, grun­aður um morð á eig­in­konu sinni. Hann fór margoft til lög­reglu og vildi fá að vita hvort hann lægi undir grun. Svarið var ætíð hið sama, hann væri ekki grun­aður. Þrátt fyrir þessi svör lög­regl­unnar beindust böndin í æ rík­ari mæli að Tom Hagen.

Michael Green

Meðal þess sem komið hefur fram síðan Tom Hagen var hand­tek­inn er að í ágúst í fyrra fékk Michael Green for­maður danskra sam­taka fyrr­ver­andi félaga í mót­or­hjóla­sam­tökum, TBM, tölvu­póst frá ókunnum send­anda. Spurt var hvort sam­tökin, sem hefðu mikil sam­bönd, gætu aðstoðað við leit­ina að Anne Elisa­beth Hagen. Michael Green hafði sam­band við Svein Holden, lög­mann Tom Hagen og þeir tveir hitt­ust í Ósló 29. ágúst. Tæpum mán­uði síðar var Michael Green aftur á ferð í Ósló og hitti þá Tom Hagen sjálfan. Norska lög­reglan hafði eftir fund­inn sam­band við Michael Green og bað hann að lýsa hvernig Tom Hagen hefði komið honum fyrir sjónir. Ekki hefur verið upp­lýst hvað nákvæm­lega var rætt á þessum fundi.

Norska blaðið VG (Verdens Gang) birti, eftir óþekktum heim­ilda­manni, að Michael Green hefði verið mjög undr­andi á mörgu því sem hann komst að á fund­inum með Tom Hagen. Michael Green er sjálfur fyrr­ver­andi félagi í glæpa­sam­tök­unum Hells Angels og Bandidos og þekkir mjög vel til vinnu­bragða „atvinnu­manna“. Hann sagði norsku lög­regl­unni að hann teldi úti­lokað að ein­hverjir slíkir hefðu verið að verki „alvöru menn vinna ekki eins og þarna var lýst“ sagði Michael Green. Það sem vakti mesta undrun Michael Green var fram­koma Tom Hagen. „Hann líkt­ist ekki manni í sárum vegna horfinnar eig­in­konu. Talaði um þetta eins og utan­að­kom­andi myndi kannski gera, án til­finn­inga“ sagði Michael Green. Hann sagði jafn­framt til­finn­ingu sína að fund­ur­inn hafi verið „mála­mynda­fundur“ sem engin alvara hefði fylgt. Þessi yfir­lýs­ing og ýmis­legt fleira sem Michael Green sagði styrkti til muna grun lög­regl­unnar um að Tom Hagen hefði óhreint mjöl í poka­horn­inu.

Tom Hagen látinn laus, annar maður handtekinn

Eins og áður var nefnt var Tom Hagen hand­tek­inn 29. apríl og úrskurð­aður í fjög­urra vikna gæslu­varð­hald. Áfrýj­un­ar­réttur felldi þann úrskurð úr gildi 7. maí en lög­reglan áfrýj­aði sam­stundis þeim úrskurði. Rúmum sól­ar­hring síðar, 8. maí stað­festi Hæsti­réttur Noregs úrskurð Áfrýj­un­ar­rétt­ar­ins um að Tom Hagen skyldi lát­inn laus. Lögregla íhug­aði að hand­taka hann þegar eftir að honum hafði verið sleppt en rík­is­lög­maður lagð­ist gegn því. Slík hand­taka gæti ekki farið fram nema ný gögn væru komin fram.

Fulltrúi lög­reglu sagði úrskurð Hæsta­réttar, um að Tom Hagen skyldi sleppt, von­brigði. En sagði jafn­framt að hann væri áfram grun­aður og rann­sóknin héldi áfram.

Síðdegis sl. fimmtu­dag 7. maí hand­tók norska lög­reglan mann á fer­tugs­aldri. Honum er gefið að sök að tengj­ast hvarf­inu á Anne Elisa­beth Hagen. Maðurinn er sagður þekkja Tom Hagen og kunn­ugur aðferðum við með­ferð raf­myntar. Til stóð að leiða mann­inn fyrir dóm­ara á morgun, 11. maí, en honum var sleppt úr varð­haldi í gær­kvöldi, laug­ar­dag. Hann er þó áfram grun­aður um aðild að hvarfi Anne Elisa­beth Hagen.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár