Ríkisbanki eignast 35 prósent hlut í Keahótelum

Lands­bank­inn hefur breytt skuldum vegna Kea­hót­ela við sig í hlutafé og á nú rúm­lega þriðj­ung í hót­el­keðj­unni. Leigusalar hafa sam­þykkt að veltu­tengja leigu, en þó með lág­marks­gólfi.

Hótel Borg er ein helsta eign Keahótela.
Hótel Borg er ein helsta eign Kea­hót­ela. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lands­bank­inn, aðal­lán­veit­andi þeirra sem átt hafa Keahótel-keðj­una, hefur breytt skuldum þeirra í nýtt hlutafé. Eftir breyt­ing­una á rík­is­bank­inn 35 pró­sent hlut í Kea­hót­el­unum, sem starf­rækja alls níu hótel víðs­vegar um landið, þar á meðal Hótel Borg og Hótel Kea. Skuld­breyt­ingin er hluti af end­ur­skipu­lagn­ingu sem felur einnig í sér að ýmis fast­eigna­fé­lög sem leigja Kea­hót­elum fast­eignir veltu­tengja leigu­greiðslur, þó með ákveðnu lág­marks­gólfi.

Þeir sem áttu Keahótel áður koma í stað­inn með nýtt hlutafé, alls á þriðja hund­rað millj­ónir króna, inn í rekst­ur­inn á móti og halda fyrir vikið tæp­lega tveimur þriðja hluta í keðj­unni. Um er að ræða banda­ríska fast­eigna­fé­lagið JL Properties, banda­ríska eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Pt Capital Advisors og Erki­hvönn ehf. Allir í hlut­hafa­hópnum tóku þátt í hluta­fjár­aukn­ing­unni.

JL Properties stærsta fast­eigna-, fast­eigna­þró­un­ar-, og fjár­fest­inga­fé­lag Alaska. Heima­mark­aður félags­ins er Alaska en félagið á jafn­framt eignir í Utah, Georgíu og Flórída ríkjum. Pt Capital Advisors LLC er dótt­ur­fé­lag banda­rísks eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækis sem er með höf­uð­stöðvar í Anchorage í Alaska. Félagið sér­hæfir sig í fjár­fest­ingum á norð­ur­slóð­um, þar á meðal Alaska, Norð­ur­-Kana­da, Græn­land og Ísland.

[adspot]Ekki er tekið fram í til­kynn­ingu sem Keahótel sendu frá sér i dag hversu miklu af skuldum keðj­unnar hafi verið breytt í hlutafé og Keahótel hafa enn ekki skilað árs­reikn­ingi fyrir árið 2019, en lög­bund­inn frestur til þess rann út í lok ágúst. 

Tryggir rekstrargrundvöll fram á árið 2022

Í til­kynn­ingu Kea­hót­ela segir end­ur­skipu­lagn­ingin tryggi félag­inu rekstr­ar­grund­völl vel fram á árið 2022. „End­ur­skipu­lagn­ingin styrkir bæði eig­in­fjár­stöðu og rekstur Kea­hót­ela og skapar félag­inu sterka stöðu á gisti­mark­aðnum þegar ferða­mönnum fer að fjölga á ný, sem vonir standa til að verði strax á kom­andi vori.“

Þar er haft eftir Hugh Short, for­stjóra PT Capital, að hlut­hafar séu þakk­látir Lands­bank­anum og leigu­sölum fyrir far­sælt sam­komu­lag. „Við hlökkum til áfram­hald­andi sam­starfs við Lands­bank­ann, sem er nýr ríf­lega þriðj­ungs hlut­hafi í félag­inu, og við leigu­sala okkar sem hafa ákveðið að tengja leigu­kjör félags­ins við und­ir­liggj­andi rekstr­ar­af­komu hót­el­anna sem starf­rækt eru í við­kom­andi fast­eignum. Þetta skiptir miklu. Fyrir liggur að aðilar sam­komu­lags­ins hyggj­ast takast á við næstu miss­eri saman eða þar til eðli­legt ástand skap­ast á ferða­mark­að­inum að nýju. Ljóst er að Covid hefur haft gríð­ar­legar afleið­ingar í för með sér fyrir ferða­þjón­ust­una, bæði hér á landi og um allan heim. Fyrir þá sem munu lifa í gegnum þessa óvenju­legu tíma geta orðið til ýmis ný tæki­færi og á þeirri veg­ferð skiptir miklu að vera með full­fjár­magnað félag og rekst­ur­inn tryggðan til lengri tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár