Læknar ítreka að þeim finnst að konur ættu að geta farið í orlof eftir 36 vikur án skerðinga

Fæðinga- og kven­sjúk­dóma­læknar telja að konur ættu að hafa rétt til að fara í orlof eftir 36 vikna með­göngu, án þess að orlof eftir fæð­ingu skerð­ist. Starfs­hópur heil­brigð­is­ráð­herra um stefnu­mótun í barn­eign­ar­þjón­ustu er ein­róma á sömu skoðun.

Konur ættu að hafa rétt til þess að hverfa frá störfum sínum eftir 36 vikna meðgöngu að mati Félags íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna.
Konur ættu að hafa rétt til þess að hverfa frá störfum sínum eftir 36 vikna með­göngu að mati Félags íslenskra fæð­inga- og kven­sjúk­dóma­lækna. Mynd: Pexels

Íslenskir fæð­inga- og kven­sjúk­dóma­læknar vilja að verð­andi mæður hafi rétt til þess að fara í orlof eftir 36 vikur með­göngu án þess að rétt­indi þeirra til frek­ari orlofstöku eftir fæð­ingu skerð­ist. Þetta kemur fram í umsögn Félags íslenskra fæð­inga- og kven­sjúk­dóma­lækna (FíFK) til Alþingis um end­ur­skoðun um á lögum og fæð­ingar- og for­eldra­or­lof.[links]

„Það er mikið álag á konur á seinni hluta með­göngu jafn­vel þó þær séu í eðli­legri með­göngu án lækn­is­fræði­lega sjúk­dóma eða fylgi­kvilla. Því er mjög algengt að þær leiti til mæðra­verndar og lækna til að fá veik­inda­vott­orð vegna algengra fylgi­kvilla með­göng­unnar,“ segir í umsögn lækna­fé­lags­ins, sem sendi sam­hljóða umsögn inn í sam­ráðs­gátt stjórn­valda þegar frum­varpið var lagt þar fram í haust.

Engu var þó bætt við í fram­lögðu frum­varpi félags- og barna­mála­ráð­herra hvað þetta varðar og er umsögn lækn­anna því lögð fram óbreytt.

Ekki skylda að hætta að vinna

Félagið segir að það sé „mik­il­vægt fyrir heilsu barns­haf­andi kvenna og rétt­læt­is­mál að þær hafi rétt til að fara í orlof strax við 36 vikur án þess að rétt­indi skerð­ist eftir fæð­ingu“ og nefnir að á þennan hátt yrðu konur ekki eins þreyttar og gætu betur tek­ist á við fæð­ing­una og umönnun barns­ins eftir fæð­ingu.

[adspot]

„Orlofið yrði ekki skylda heldur gætu sumar konur ákveðið að halda áfram í vinnu. Þetta gæti orðið til þess að sumar konur reyndu að halda áfram í vinnu lengur en ann­ars væri ef vissu að þær færu í orlof við 36 vikur,“ segir í umsögn­inni.

Konur í láglaunastörfum eigi erfiðara með að fara í leyfi

Lækn­arnir segja að í núver­andi kerfi eigi konur mjög mis­mun­andi auð­velt með að fara í veik­inda­leyfi undir lok með­göngu. „Veik­inda­rétt­indi er mis­mun­andi og sér­lega er talið að konur af erlendu upp­runa í lág­launa­störfum eigi erfitt með að fara í veik­inda­leyfi. Með þessum breyt­ingum myndi jafn­ast aðstaða kvenna síð­ast á með­göng­unni. Jafn­framt yrði auð­veld­ara fyrir atvinnu­rek­endur að skipu­leggja afleys­ingu fyrir þung­aða konu,“ segir í umsögn­inni.

Ísland ætti að veita þennan rétt eins og Noregur og Danmörk

Í umsögn FíFK er bent á að í Noregi og Danmörku séu svipuð ákvæði um rétt kvenna til að hætta vinnu við 36 vikna með­göngu. „Við teljum að íslenskar konur eigi ekki síður en kyn­systur þeirra á norð­ur­lönd­unum að hafa rétt á að hætta vinnu við 36 vikur,“ segja lækn­arnir, sem víkja einnig að því í umsögn sinni að ef þessi breyt­ing yrði gerð myndi álag á lækna og ljós­mæður minnka, en þar er átt við að í dag séu læknar að sinna kvört­unum frá og vott­orða­skrifum fyrir konur sem hafi eðli­leg ein­kenni með­göngu.

Starfshópur Svandísar um fæðingarþjónustu á sömu skoðun

Formaður félags­ins, Alex­ander K. Smárason, skrifar undir umsögn­ina. Hann nefnir í nið­ur­lagi hennar að hann hafi starfað í þver­fag­legum starfs­hópi Svan­dísar Svav­ars­dóttur um stefnu­mótun í barn­eign­ar­þjón­ustu, sem skip­aður var í lok árs 2019.

Alex­ander skrifar að það hafi verið sam­eig­in­legt mat allra í starfs­hópnum að stefna ætti að því að konur á Íslandi hafi rétt til að fara í með­göngu­or­lof eða fæð­ing­ar­or­lof frá 36 vikum án þess að það skerti orlof eftir fæð­ingu og að þetta álit myndi koma fram í vænt­an­legri skýrslu hóps­ins til heil­brigð­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár