Eru dagar Norwegian taldir?

Heims­far­ald­ur­inn, MAX-vanda­mál og neitun um rík­is­að­stoð hefur leitt lággjalda­flug­fé­lagið Norwegian að barmi gjald­þrots. Sér­fræð­ingar telja lífslíkur félags­ins í núver­andi mynd litlar sem engar, þótt mögu­legt sé að nafn þess og vöru­merki geti lifað áfram.

Flugfélagið Norwegian gæti orðið gjaldþrota á næstunni, en vörumerkið gæti lifað áfram.
Flug­fé­lagið Norwegian gæti orðið gjald­þrota á næst­unni, en vöru­merkið gæti lifað áfram. Mynd: EPA

Grein­ing­ar­að­ilar telja það tíma­spurs­mál hvenær norska lággjalda­flug­fé­lagið Norwegian verður tekið til gjald­þrota­skipta, en fram­tíð­ar­horfur þess versnuðu til muna þegar norska rík­is­stjórnin neit­aði því um frek­ari rík­is­að­stoð fyrr í vik­unni. Samkvæmt þeim stefnir félagið á gjald­þrot á næst­unni og hlut­hafar þess ekki eiga neina und­an­komu­leið á þessum tíma­punkti, en mögu­legt er þó að nýtt flug­fé­lag gæti keypt vöru­merki þess.

Faraldur og MAX-vandræði

Hluta­bréfa­verð Norwegian hefur lækkað um tæp 99 pró­sent frá árs­byrjun, en mest­öll lækk­unin átti sér stað á sama tíma og kór­ónu­veiran tók að breið­ast til Evrópu undir lok febr­ú­ar­mán­aðar og í byrjun mars­mán­aðar. Síðan þá hefur nær algjört tekju­fall orðið hjá flug­fé­lag­inu, líkt og fjallað er um í breska blað­inu Financial Times.

Til við­bótar við það hefur flug­fé­lagið verið í vand­ræðum vegna 18 Boeing 737 MAX-véla sem hafa verið kyrr­settar frá því í mars í fyrra. Norwegian hefur enn ekki fengið bætur frá flug­véla­fram­leið­and­anum, en sam­kvæmt norska miðl­inum E24 hafa yfir­stand­andi deilur milli fyr­ir­tækj­anna orðið að dóms­máli í Banda­ríkj­unum sem tekið verður fyrir í des­em­ber.

Þrátt fyrir heims­far­ald­ur­inn og erf­ið­leika vegna MAX-vél­anna hefur flug­fé­lagið þó náð að halda rekstri sínum áfram í ár, en það er fyrst og fremst stuðn­ingi frá norska rík­inu að þakka. Líkt og Financial Times greinir frá náði Norwegian að breyta 18 millj­arða norskra króna skuld í hlutafé, þökk sé björg­un­ar­pakka frá norska rík­inu í sumar. Sú upp­hæð sam­svarar um 270 millj­örðum íslenskra króna.

Ríkisaðstoð hafnað

Í kjöl­far haust­bylgju far­ald­urs­ins hafa svo rekstr­ar­horfur flug­fé­lags­ins versnað stöðugt, en sam­kvæmt E24 bað for­stjóri þess, Jakob Schram, norska atvinnu­vega­ráðu­neytið um auka­stuðn­ing sem nemur 60 til 75 millj­örðum íslenskra króna til að bæta laus­fjár­stöðu þess. Síðasta mánu­dag til­kynnti Iselin Nybø atvinnu­vega­ráð­herra Noregs að ríkið hygð­ist ekki ætla að koma Norwegian til hjálpar, þar sem ekki væri verj­andi að nýta opin­bert fé í slíkan stuðn­ing.

Fimm milljarða króna virði

Í kjöl­far yfir­lýs­ingar Nybø telja sér­fræð­ingar að fram­tíð flug­fé­lags­ins sé svört. Í nýlegri grein­ingu bank­ans HSBC á stöðu flug­fé­lags­ins kemur fram að verð­miði þess sé nú í kringum fimm millj­arðar íslenskra króna, eða innan við þrjú pró­sent af mark­aðsvirði sínu í maí síð­ast­liðnum.

HSBC sagði einnig í grein­ingu sinni að ólík­legt væri að félagið næði að tryggja áfram­hald­andi rekstur sinn. „Norwegian hefur oft komið okkur á óvart með að finna nýtt fjár­magn í rekstr­ar­erf­ið­leikum. Við teljum ekki að slíkur glaðn­ingur sé á leið­inni í þetta skiptið,“ er haft eftir bank­anum í E24.

Gjaldþrot eða áframhaldandi starfsemi?

Lars-Daniel Westby, sér­fræð­ingur hjá norska grein­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Spare­bank 1 markets tók í sama streng í við­tali við Financial Times og sagði lík­legt að félagið lýsti yfir gjald­þroti í næstu viku. Samkvæmt Westby hafa hlut­hafar félags­ins enga und­an­komu­leið. Hins vegar telur hann fyr­ir­tækið geta lýst yfir gjald­þroti í Banda­ríkj­unum eða Írlandi og skipt svo flug­fé­lag­inu upp í tvö félög, þar sem annað þeirra gæti haldið áfram starf­semi sinni með styttri flug­ferðum milli áfanga­staða í Evrópu.

HSBC telur lík­legt að vöru­merki Norwegian gæti haldið áfram starf­semi sinni þótt núver­andi félag fari í þrot, en sam­kvæmt bank­anum gæti nýstofnað og ónefnt flug­fé­lag Braathens-fjöl­skyld­unnar haft áhuga á að kaupa það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

norwegian

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár