Faraldurinn reynist norrænum flugfélögum erfiður

Hluta­bréfa­verð í skand­in­av­ísku flug­fé­lög­unum SAS og Flyr hafa lækkað tölu­vert á síð­ustu vikum og er hið fyrr­nefnda sagt stefna í fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu. Norwegian, sem var á barmi gjald­þrots í fyrra, hefur hins vegar hækkað í virði.

SAS gengur í gegnum erfiða tíma þessa stundina.
SAS gengur í gegnum erf­iða tíma þessa stund­ina. Mynd: EPA

Samkvæmt nýlegum fjár­hags­upp­lýs­ingum frá flug­fé­lög­unum SAS, Flyr og Norwegian hafði omíkron-bylgja kór­ónu­veirunnar tölu­vert slæm áhrif á rekstur þeirra. Norwegian náði þó að auka starf­semi sína á síð­asta árs­fjórð­ungi, en sam­kvæmt Flyr varð hrun í sölu í des­em­ber. Lítil eft­ir­spurn hefur svo leitt til lausa­fjár­vand­ræða hjá SAS, en sér­fræð­ingar telja félagið þurfa að fara í fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu til að forð­ast gjald­þrot.

Eiginfjárvandi hjá SAS

Samkvæmt norska við­skipta­miðl­inum Dagens Nær­ingsliv hefur heims­far­aldr­inum reynst SAS sér­stak­lega erf­iður, ef miðað er við önnur flug­fé­lög. Í síð­ustu viku til­kynnti félagið svo að það myndi flýta birt­ingu á árs­hluta­upp­gjör­inu sínu fyrir nóv­em­ber, des­em­ber og jan­úar, án þess að gefa neinar frek­ari skýr­ingar á því.

Vænt­ingar eru um að flýt­ingin sé vegna slæmra rekstr­ar­nið­ur­staða yfir vetr­ar­mán­uð­ina, en norska fjár­mála­fyr­ir­tækið DNB Markets gerði ráð fyrir að félagið myndi skila tap­rekstri sem næmi 1,9 millj­örðum sænskra króna. Það jafn­gildir rúmum 25 millj­örðum íslenskra króna.

Enn fremur til­kynnti DNB Markets í grein­ingu sinni, sem birt­ist að morgni mið­viku­dags, að fjár­hags­leg end­ur­skipu­lagn­ing félags­ins væri óum­flýj­an­leg. Í kjöl­farið hrundi hluta­bréfa­verð þess, en það er núna fjórð­ungi lægra en það var fyrir þremur dögum síðan.

Erfið byrjun hjá Flyr

Hluta­bréfa­verðið hjá norska flug­fé­lag­inu Flyr tók einnig fimm pró­senta dýfu eftir að það birti árs­fjórð­ungs­upp­gjörið sitt í vik­unni, en sam­kvæmt því hefur nýja veiru­af­brigðið og með­fylgj­andi ferða­tak­mark­anir reynst félag­inu þung­bært.

Flyr er nýstofnað félag og hóf rekstur um mitt síð­asta ár. Það sér­hæfir sig í inn­an­lands­flugi, en flýgur einnig til vin­sælla áfanga­staða í Evrópu. Framan af hefur rekst­ur­inn þó reynst erf­iður, en félagið þurfti að auka hlutafé sitt um 250 millj­ónir norskra króna, eða um 3,5 millj­arða íslenskra króna, í síð­asta mán­uði til að halda sér á floti.

Félagið er þó enn stað­ráðið í að auka starf­semi sína og stefnir að því að tvö­falda flug­véla­flot­ann sinn, úr sex vélum í tólf, í sumar. Á yfir­stand­andi árs­fjórð­ungi er þó enn gert ráð fyrir tap­rekstri, en sér­fræð­ingar telja að hann muni ná 150 millj­ónum norskra króna, eða 2,1 millj­arði íslenskra króna.

Bókhaldslegur hagnaður hjá Norwegian

Nýbirtar rekstr­ar­tölur flug­fé­lags­ins Norwegian voru nokkuð betri, þótt far­ald­ur­inn hafi líka sett sinn svip á þær. Samkvæmt þeim náði félagið að auka fjölda seldra flug­sæta úr 2,5 millj­ónum á þriðja árs­fjórð­ungi í 3,1 milljón á síð­asta fjórð­ungi. Á sama tíma jókst einnig sæta­nýt­ingin úr 73 pró­sentum í 77 pró­sent.

Norwegian réðst í fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu í fyrra, þegar félagið var á barmi gjald­þrots. Þar voru 140 millj­arðar norskra króna, eða tæp­lega 2.000 millj­arðar íslenskra króna, skuld end­ur­skipu­lögð, en auk þess sagði félagið upp þrjá fjórðu af starfs­fólki sínu og stöðv­aði notkun 100 flug­véla sem það hafði tekið á leigu. Eftir stóðu þrjú þús­und starfs­menn og 51 flug­véla floti, en búist er við þær muni verða 70 tals­ins í sumar.

Vegna þess­arar end­ur­skipu­lagn­ingar skil­aði Norwegian bók­halds­legum hagn­aði í fyrra, en rekst­ar­nið­ur­staða þess var þó nei­kvæð upp á 263 millj­ónir norskra króna, eða 3,7 millj­arða íslenskra króna.

Fjár­festar hafa hingað til ekki tekið vel í þessar nið­ur­stöður, en hluta­bréfa­verð félags­ins hefur lækkað um tvö pró­sent eftir að þær voru birtar. Þó hefur verðið hækkað tölu­vert á síð­ustu vikum, en það er nú 15 pró­sentum hærra en það var um síð­asta sumar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

norwegian

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár