Gekk fram á innbrotsþjóf í Vesturbænum: „Smellti í eitt hátt og djúpt „HEY!““

Atli Már Stein­ars­son segir kött­inn sinn hafa verið eins og varð­hund þegar maður reyndi að skríða inn um eld­hús­glugg­ann hjá sér í nótt.

Gekk fram á innbrotsþjóf í Vesturbænum: „Smellti í eitt hátt og djúpt „HEY!““
Atli Már Stein­ars­son Útvarps­mað­ur­inn góð­kunni vill vara nágranna sína við ferðum manns­ins.

Atli Már Stein­ars­son, dag­skrár­gerð­ar­maður hjá RÚV, gekk fram á inn­brots­þjóf á heim­ili sínu í Vest­ur­bænum í nótt. Vill hann vara íbúa á svæð­inu við ferðum hans.

„Um kl 2 í nótt heyrði ég ein­hver skrýtin hljóð inn úr eld­húsi, og kött­ur­inn minn virt­ist hissa á þeim líka,“ skrifar Atli Már í Facebook færslu í hópi Vest­ur­bæ­inga. „Þegar ég (og kisi) fór að athuga betur blasti við mér maður á hnjánum að reyna að losa glugga­járn til að opna glugg­ann meira og þá reyna að skríða inn.“

Atli Már segir kött­inn sinn hafa verið eins og varð­hund þegar þetta gerð­ist. „Þetta var allt frekar súr­r­eal­ískt á að horfa og mitt fyrsta við­bragð var bara að smella í eitt hátt og djúpt „HEY!“ sem var nóg til að hræða hann og hann hljóp í burtu,“ segir hann.

„Ég átta mig ekki á hvernig hann ætl­aði að fara að þessu en það stopp­aði hann alla­vega ekki“

Hann grunar að þjóf­ur­inn hafi verið á rúnti um hverfið þar sem fólk er gjarnan í jóla­boðum fram á kvöld eða í fríi fjarri heim­ili sínu um þessar mundir. Þjóf­ur­inn hafi mögu­lega verið að athuga hversu langt hann gæti seilst og Atli Már gerði lög­reglu við­vart strax í kjöl­farið.

„Eftir á að hyggja hefði ég kannski viljað ná honum á mynd eða eitt­hvað álíka en það sem kom mér á óvart var að það var kveikt inn í eld­húsi og að mínu mati greini­legt að það var ein­hver vak­andi,“ skrifar Atli Már. „Svo farið extra vel yfir glugga og hurðar, þessi var bæði með glugga­járni og svona fest­ingu sem skrúfast föst. Ég átta mig ekki á hvernig hann ætl­aði að fara að þessu en það stopp­aði hann alla­vega ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár