Hlutverk Samfylkingar að leiða saman öfl til að mynda græna félagshyggjustjórn að ári

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að skipta þurfi um kúrs, snúa skút­unni frá hægri og hrista af Íslandi gam­al­dags kreddur um það hvernig rík­is­fjár­mál virki og hvernig verð­mæti verði til.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

„Abraham Lincoln sagði að besta leiðin til að spá fyrir um fram­tíð­ina væri að skapa hana og nú þurfum við að hafa kjark til þess. Átök íslenskra stjórn­mála næsta árið munu og þurfa að snú­ast um hvert skal stefna. Rétta leiðin , ábyrga leiðin, felst í því að ráð­ast strax í kraft­mikla græna fjár­fest­ing­ar­á­ætlun, aðgerðir sem vinna gegn ham­fara­hlýnun en skapa um leið atvinnu og verð­mæta­sköpun fyrir okkur öll.“

Þetta sagði Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í umræðum um stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra á Alþingi í kvöld.

Í ræðu Loga kom fram að hann líti á það sem hlut­verk Sam­fylk­ing­ar­innar að leiða saman þau öfl sem væru til­búin að fylkja sér um vinnu, vel­ferð og græna fram­tíð „og mynda græna félags­hyggju­stjórn að ári, sem getur varðað nýja leið.“

Íslendingar hafi ekki efni á hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins

Logi sagði að hann væri sann­færður um að hægt væri að skapa betra og sterkara vel­ferð­ar­sam­fé­lag á Íslandi þar sem ekk­ert barn færi svangt að sofa, hús­næð­isör­uggi væri jafn sjálf­sagt og aðgangur að vatni eða lofti, þar sem gjald­mið­ill­inn væri stöðugri og mat­ar­k­arfan ódýr­ari. „Þar sem atvinnu­lausir, öryrkjar og fátækt fólk búa ekki við nístandi óvissu frá degi til dags. Þar sem hvers kyns mis­munun er hafnað, vel­ferð inn­flytj­enda tryggð og börnum á flótta veitt skjól. Samfélag sem ein­kenn­ist af mannúð og sjálf­bærni, jöfn­uði og frelsi. Þannig sam­fé­lag sköpum við ekki nema með rétt­lát­ari skatt­byrði, minni ójöfn­uði, heil­brigð­ari og fjöl­breytt­ari vinnu­mark­aði.“

[adspot]Á tímum lofts­lags­ham­fara og heims­far­ald­urs hafi Íslend­ingar ekki efni á því að leyfa hug­mynda­fræði Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála­stefnu hægri­manna að ráða för, Það væri ein­fald­lega of mikið í húfi.

Sagði að frjálshyggjan væri dauð

Í ræðu sinni sagði Logi einnig að sjaldan eða aldrei hefði mik­il­vægi rík­is­valds­ins og sterkrar almanna­þjón­ustu birst jafn skýrt og í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. „Full­yrð­ingar hægri­manna um að reglu­lít­ill mark­aður greiði sjálfur úr öllum vanda­málum og skili rétt­mætum gæðum til almenn­ings dæma sig nú end­an­lega sjálfar.“

Íslend­ingar stæðu and­spænis gríð­ar­lega flóknum verk­efnum sem yrðu ekki öll leyst á stuttum tíma. „En fyrsta skrefið er að skipta um kúrs, snúa skút­unni frá hægri og hrista af okkur gam­al­dags kreddur um það hvernig rík­is­fjár­mál virka og hvernig verð­mæti verða til.“

Lausnir jafn­að­ar­stefn­unnar, sem byggja á sam­spili opin­berra umsvifa og einka­fram­taks, væru mik­il­vægastar í bar­átt­unni við far­ald­ur­inn. Hann boð­aði svo að Sam­fylk­ingin myndi leggja fram, á næstu dögum, heild­stæða áætlun um hvernig Ísland getur brot­ist út úr atvinnu­leysiskrepp­unni.

Á meðal meg­in­á­hersla þar yrðu stór­auknar aðgerðir í bar­átt­unni gegn ham­fara­hlýnun. „Við núver­andi aðstæður dugar nefni­lega ekk­ert minna en raun­veru­leg græn atvinnu­bylt­ing.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stefnuræða

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár