Efnahagurinn, leynd, ójöfnuður og Ísland eftir 30 ár

Leið­togar stjórn­mála­flokk­anna fjöll­uðu um stöðu mála á hinu póli­tíska sviði í gær á eftir stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra.

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Eins og venju­lega þegar þing­vetur hefst, þá er línan lögð með stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, flutti ítar­lega ræðu sína fyrstur stjórn­mála­leið­toga í gær, áður en fleiri tóku til máls.

Leið­togar stjórn­ar­flokk­anna, Bjarni Bene­dikts­son, Benedikt Jóhann­es­son og Óttarr Proppé, töl­uðu allir fyrir mik­il­vægi ábyrgrar stjórn­unar, en skerpu einnig á helstu áherslu­málum rík­is­stjórn­ar­innar, um að byggja upp stöð­ug­leika í efna­hags­mál­unum og um leið treysta félags­lega inn­viði vel­ferð­ar­kerf­is­ins.

Leið­togar stjórn­and­stöðu­flokk­anna sýndu klærnar, og gagn­rýndu stjórn­völd, meðal ann­ars fyrir að sinna ekki þeim sem minna mega sín, byggja undir auk­inn ójöfnuð og aðhaf­ast ekk­ert í málum sem þyldu ekki neina bið.

Hér á eftir fara athygl­is­verðir punktar úr ræðum um stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra, frá leið­togum flokk­anna, en aug­ljós mein­ing­ar­munur er á grein­ingu þeirra á hinu póli­tíska lands­lagi.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.

„Klisjan um vax­andi ójöfnuð lifir góðu lífi í umræð­unni. Stað­reyndin er þó sú að engin þjóð mælist með meiri launa­jöfnuð en Ísland sam­kvæmt árlegri úttekt OECD á jöfn­uði meðal þjóða. En því er engu að síður haldið fram að launa­ó­jöfn­uður sé sjálf­stætt vanda­mál og vax­andi. Sá mál­flutn­ingur stenst enga skoðun eins og nið­ur­stöður OECD bera skýrt með sér. Nær væri að beina sjónum að tæki­færum til auk­innar verð­mæta­sköp­unar og fjölg­unar á störfum sem standa undir hærri launa­greiðslum. Sterkari sam­keppn­is­hæfni lands­ins mun skila sér í betri kjörum allra, ekki síst launa­lægstu hópanna.“

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna.

„Maður og nátt­úra geta lifað í sátt – átt sam­leið þar sem manns­and­inn og nátt­úran tala saman. Okkur Íslend­ingum hefur miðað fram á við í þessu sam­tali en um leið eigum við enn langan veg framundan. Við stöndum frammi fyrir stórum spurn­ingum. Getum við náð saman um friðun mið­há­lend­is­ins og breytt því í þjóð­garð? Getum við náð lausn í fisk­eld­is­málum þar sem nátt­úran fær að njóta vafans og við stöndum vörð um þá líf­fræði­legu fjöl­breytni sem felst í villta laxa­stofn­inum? Getum við átt þessa umræðu án þess að fest­ast í skot­gröfum höf­uð­borgar og lands­byggðar? Getum við sem búum í þétt­býl­inu sýnt þeim skiln­ing sem hafa um ára­bil staðið í ströngu að berj­ast við að halda uppi byggð þó að ýmsar ákvarð­anir meðal ann­ars hér á Alþingi hafi verið þeim mót­drægar? Þeim sem vildu gera út á trillu en áttu aldrei mögu­leika í svo­kall­aðri frjálsri sam­keppni við þá sem fengu kvót­ann.“

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.

„Við erum ríkt land og getum vel boðið öllum mann­sæm­andi líf. Það verður aðeins gert með klass­ískum aðferðum sem gert hafa Norð­ur­löndin að fyr­ir­mynd ann­ara ríkja: Með því að tryggja öllum öryggi, vel­ferð og menntun og ekki síst skipta gæðum og byrðum rétt­látar. Frú for­seti. Það er mik­il­vægt að ríða þétt örygg­is­net sem grípur fólk ef það af ein­hverjum ástæðum fellur milli skips og bryggju og tryggir þeim öryggi og skjól,“ sagði Logi Már Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í ræðu sinni.

Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar.

„Í mörgum löndum leiddi hrunið til þess að upp spruttu flokkar hat­urs og for­dóma. Við Íslend­ingar höfum að mestu verið laus við slíka hópa og þeir hafa enn sem komið er ekki náð neinni fót­festu. En þegar við lítum til Banda­ríkj­anna, kyndil­bera lýð­ræð­is­ins í heim­inum stærstan hluta 20. ald­ar­innar, þá sjáum við hvað hefur gerst og það gæti líka gerst hér.Það er jákvætt að fólk líti á Ísland sem land tæki­fær­anna. Það er jákvætt að Ísland sé frjáls­lynt og opið—og við verðum að tryggja að svo verði áfram.“

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.

„Við viljum einnig sjá upp­stokkun á banka­kerf­inu. Banka­kerfið á að þjón­usta heim­ili og fyr­ir­tæki. Hinn almenni neyt­andi þarf að geta treyst því að eft­ir­litið sé virkt og aðhald sé gagn­vart fjár­mála­stofn­unum. Margt hefur áunn­ist í að end­ur­vekja traust, en þónokkuð er í land. Þessu tengt þá sendi, sá sem hér stendur, fyr­ir­spurn til hæstv. for­sæt­is­ráð­herra um eigna­safn Seðla­bank­ans, og fékk til baka frekar fátæk­leg svör um hverjir hafi sinnt þjón­ustu fyrir bank­ann og keyptu eignir. M.ö.o. almenn­ingur fær ekki að vita hverjir keyptu, á hversu mikið, né hvernig þær voru greiddar. Á sama tíma opna ráðu­neytin bók­haldið. Er eðli­legt að Seðla­bank­inn geti skýlt sér á bak við banka­leynd þegar hann höndlar með eigur almenn­ings?“

Birgitta Jónsdóttir, Pírötum.

„Ég man líka þegar vímu­efna­sjúk­lingar voru settir í fang­elsi í stað þess að hjálpa þeim að ná heilsu. Alveg ótrú­legt, satt best að segja. Ég man líka hvernig stjórn­mála­menn komust upp með að etja fólki saman og á meðan það reifst og skamm­að­ist á sam­skipta­miðlum út af ein­hverju sem fyllti það heil­agri vand­læt­ingu einn dag­inn og var gleymt næsta hvarf auð­ur­inn af okkar sam­eig­in­legu auð­lindum inn í skatta­skjól víða um heim.“

Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar.

Ég datt inn í póli­tík til að reyna að gera gagn. Við stofn­uðum Bjarta fram­tíð til að stunda öðru­vísi stjórn­mál. Við viljum hafa jákvæð áhrif á sam­fé­lagið og umræð­una og við viljum gera það á borði en ekki bara í orði. Þess vegna tókum við þá ákvörðun, sem var alls ekk­ert sjálf­sögð, að setj­ast í rík­is­stjórn til að hafa áhrif á borði, hafa raun­veru­leg áhrif á umhverf­is­málin, styðja við upp­bygg­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu og taka þátt í að móta fram­tíð­ina. Við viljum axla ábyrgð af því að verk­efnin skipta máli. Það er margt gott en það er alltaf hægt að gera betur. Við þurfum að halda bolt­anum á lofti í verk­efnum dags­ins en líka um leið að hafa auð­mýkt og hug­rekki til að hafa augun á fram­tíð­inni því að það er hún sem skiptir mestu máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stefnuræða

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár