Samherji leiðréttir „ásakanir“ Kveiks sem aldrei voru settar fram

Samherji hefur birt nýtt mynd­band á YouTube, þar sem fyr­ir­tækið hafnar þremur ásök­unum sem það segir hafa verið settar fram af hálfu Kveiks í nóv­em­ber í fyrra. Kveikur full­yrti þó ekk­ert af því sem Samherji svarar fyrir.

Meintar ásakanir Kveiks, samkvæmt myndbandi Samherja. Ekkert af þessu þrennu er fullyrt í þætti Kveiks.
Meintar ásak­anir Kveiks, sam­kvæmt mynd­bandi Samherja. Ekkert af þessu þrennu er full­yrt í þætti Kveiks. Mynd: Skjáskot úr myndbandi Samherja

Sjáv­ar­út­vegs­fé­lagið Samherji birti nýtt mynd­band á vef­síðu sinni í gær­kvöldi þar sem það seg­ist vera að „leið­rétta rang­færslur“ um félagið Cape Cod FS á Marshall-eyjum, sem Samherji segir að hafi komið fram í umfjöllun Kveiks 26. nóv­em­ber í fyrra.

Samherji til­tekur í mynd­band­inu þrjár „ásak­anir“ úr þætti Kveiks og segir að full­yrt hafi verið í þætt­inum að Samherji hafi átt félagið Cape Cod, að pen­ingar frá Namibíu hafi streymt á reikn­inga félags­ins og verið „þvegnir“ og sömu­leiðis að norski rík­is­bank­inn DNB hafi á end­anum lokað á við­skipti Cape Cod af þeim sökum.

Ekkert af þessu þrennu var þó í reynd full­yrt í þessum þætti Kveiks um Sam­herj­a­skjölin. Umfjöllun um Cape Cod og DNB hefst eftir 17:50 mín­útur í þætt­inum, sem sjá má hér.

Í fyrsta lagi full­yrti frétta­maður Kveiks ekki að Samherji hefði átt félagið Cape Cod, heldur sagði hann frá því að norski bank­inn DNB hefði sjálfur talið að Cape Cod væri í eigu Samherja, þar sem starfs­maður Samherja hefði verið bæði stofn­andi og pró­kúru­hafi reikn­ings Cape Cod í DNB.

Í annan stað var ekk­ert full­yrt í Kveik um að pen­ingar frá Namibíu hefðu verið „þvegnir“ í Noregi, né að það væri ástæðan fyrir því að reikn­ingi Cape Cod hefði verið lokað.

Hins vegar var sagt frá því í þætti Kveiks að árið 2017 hefðu komið upp rauð ljós við áhættu­mat inn­an­húss hjá DNB varð­andi við­skipta­vin­inn JPC Shipmana­ga­ment, kýp­verskt móð­ur­fé­lag Cape Cod, auk þess sem sagt var frá því að þrátt fyrir það hefði bank­inn ekki gripið til aðgerða í sam­ræmi við varnir gegn pen­inga­þvætti fyrr en ári seinna, eða árið 2018.

Einnig kom fram í þætt­inum að Økokrim, efna­hags­brota­deild norsku lög­regl­unnar, væri með brotala­mir í vörnum DNB gegn pen­inga­þvætti til skoð­unar.

Kveikur greindi líka frá því að fjár­munir frá dótt­ur­fé­lögum Samherja á Kýpur, sem einnig var með reikn­inga í norska bank­anum, hefðu runnið inn á reikn­inga í eigu Cape Cod. Sömu­leiðis hefði fé runnið frá Cape Cod og inn á reikn­inga Sam­herj­a­fé­laga, en hvergi var full­yrt að pen­inga­þvætti af hálfu Samherja hefði verið ástæðan fyrir því að reikn­ingum Cape Cod var lokað.

Frétta­maður Kveiks sagði „lítið vitað“ um það af hverju pen­ingar úr Afr­íku­starf­semi Samherja hefðu streymt um banka­reikn­inga í Noregi, en einnig var sagt frá því að norski bank­inn sjálfur hefði bent á að engin þörf virt­ist vera á því að félögin væru með banka­reikn­inga í Noregi.

Samherji segir hluti slitna úr samhengi

Samherji segir Kveik hafa „gefið í skyn að ástæða lok­un­ar­innar hefði verið mögu­leg brot í starf­semi Samherja í Namibíu“ og segir hluti hafa verið slitna úr sam­hengi, þegar Kveikur fjall­aði um áhættu­mat DNB á JPC Shipmana­gement.

Samherji gerir athuga­semdir við að ekki hefði verið til­tekið í þætt­inum að milli­færslur til Rúss­lands og Úkraínu hefðu verið veiga­mikið atriði í því að rauð ljós kvikn­uðu við áhættu­matið. Skjalið var birt í heild sinni í þætt­inum.

„Ef þú lest þetta skjal sem hefur verið sýnt í Stund­inni og í Kveik, þarna er um að ræða rúss­neska sjó­menn og úkra­ínska. Það hófst stríð á Krím­skaga og þá fer Rússland á svartan lista. Það er í raun athuga­semdin sem DNB gerir. Að setja svona fram, það er tvennt sem kemur til greina. Annað hvort er það ill­vilji eða yfir­sjón. Ég vil gefa mér það að þetta hafi verið yfir­sjón,“ segir Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Samherja í mynd­band­inu.

Greiðslurnar sagðar til að tryggja að sjómenn fengju borgað á réttum tíma

Samherji segir að gögn sem hafi mátt finna í Sam­herj­a­skjöl­unum á Wikileaks hafi „skýrt eign­ar­hald Cape Cod og hvernig félagið var notað,“ en að ekk­ert hafi verið fjallað um þessi gögn í Kveik.[links]

„Mikið hefur verið gert úr greiðslum frá dótt­ur­fé­lögum Samherja á Kýpur til Cape Cod, sem og greiðslum frá Cape Cod til dótt­ur­fé­lag­anna, en í þætti Samherja eru þessar greiðslur skýrðar. Um var að ræða lán­veit­ingar og var eini til­gangur þeirra að tryggja að skip­verjar frá Rúss­landi og Úkraínu, sem störf­uðu í útgerð­inni í Namibíu, fengju greitt á réttum tíma,“ segir um þetta á vef Samherja, en rakið er í mynd­band­inu hvernig gjald­eyr­is­höft í Namibíu töfðu greiðslur til sjó­manna.

Í mynd­bandi Samherja, sem sjá má hér að neðan, segir Björgólfur Jóhanns­son for­stjóri reyndar einu sinni að Cape Cod sé kýp­verskt félag og á útskýr­ing­ar­myndum sem Samherji birtir í mynd­band­inu er Cape Cod sömu­leiðis stað­sett á Kýpur. Það er ekki reyndin, heldur var Cape Cod FS skráð á Marshall-eyjum, sem eru þekkt skatta­skjól.

Norski bank­inn DNB sleit við­skipta­sam­bandi sínu við Samherja í lok síð­asta árs, án útskýr­inga. Ekki hefur komið fram opin­ber­lega af hverju sú ákvörðun var tekin innan bank­ans, en eftir að málið rataði í norska fjöl­miðla snemma í febr­úar sagði Björgólfur að hnökra­laust hefði gengið fyrir sig að færa banka­við­skiptin annað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár