FA kvartar til Samkeppniseftirlitsins vegna ríkisstuðnings við endurmenntun

Hluti fjár­fram­laga til háskóla vegna sum­ar­úr­ræða stjórn­valda fyrir náms­menn fór í að nið­ur­greiða nám­skeið end­ur­mennt­un­ar­deilda háskól­anna. FA hefur nú kvartað til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins en fyrr í sumar sendi FA form­lega kvörtun til ESA vegna þessa.

Frá Háskóla Íslands
Frá Háskóla Íslands Mynd: Birgir Þór Harðarson

Félag atvinnu­rek­enda (FA) hefur kvartað til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins (SKE) vegna nið­ur­greiðslu rík­is­ins á sum­ar­námi fyrr í sumar. Þetta kemur fram í frétt á vef FA en þar segir að veru­legur hluti þeirra 500 millj­óna sem veittar voru til sum­ar­náms á háskóla­stigi hafi runnið til endur- og símennt­un­ar­stofn­ana háskól­anna og nám­skeið á þeirra vegum því nið­ur­greidd um tugi þús­unda króna. Fram kemur á vef FA að þessi starf­semi sé fyrir utan verk­svið háskól­anna eins og það er skil­greint í lögum og að við­kom­andi starf­semi sé í beinni sam­keppni við nám­skeið á vegum einka­rek­inna fræðslu­fyr­ir­tækja.

Í fram­haldi af fjár­veit­ing­unni hafi end­ur­mennt­un­ar­deildir aug­lýst nám­skeið sem alla jafna kosti tugi þús­unda á þrjú þús­und krónur. Við þessi verð hafi keppi­nautar end­ur­mennt­un­ar­deild­anna ekki geta keppt.

Kvörtuðu til ESA fyrr í sumar

„Að mati FA er þessi útfærsla á styrkjum til sum­ar­náms ólög­mæt og brýtur í bága við sam­keppn­is­reglur. Félagið telur rík­is­styrk­inn ann­ars vegar brjóta gegn 61. grein samn­ings­ins um Evrópska efna­hags­svæðið um ólög­mæta rík­is­að­stoð, enda veita félags­menn FA í fræðslu­geir­anum sumir hverjir þjón­ustu í sam­starfi við fyr­ir­tæki sem stað­sett eru í öðrum EES-ríkjum,“ segir í frétt FA en félagið kvart­aði til Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA, ESA, fyrr í sumar.

Í frétt­inni segir að FA fari einnig fram á að SKE skoði hvort starf­semi End­ur­mennt­unar Háskóla Íslands sam­ræm­ist sam­keppn­is­lögum. „Í reglum um EHÍ kemur fram að sé um að ræða útselda þjón­ustu, sem veitt sé í sam­keppni við einka­að­ila, skuli sú starf­semi fjár­hags­lega afmörkuð frá rekstri stofn­un­ar­innar og þess gætt að sá rekstur sé ekki nið­ur­greiddur með öðrum tekjum, í sam­ræmi við ákvæði sam­keppn­islaga. Engu að síður fari ekki á milli mála að áður­nefndri fjár­veit­ingu til Háskóla Íslands vegna sum­ar­náms hafi að hluta verið ráð­stafað beint til End­ur­mennt­unar HÍ til að nið­ur­greiða nám­skeið, sem veitt eru í beinni sam­keppni við einka­að­ila,“ segir þar.

Einkaaðilar ósáttir við fjárveitinguna

Kjarninn fjall­aði fyrr í sumar um fjár­veit­ing­una sem um ræðir en hún er hluti af sum­ar­úr­ræðum stjórn­valda fyrir náms­fólk. Fram­kvæmda­stjórar einka­fyr­ir­tækja á fræðslu­mark­aði sem Kjarninn ræddi við voru ósáttir við til­hög­un­ina, þau geti ekki keppt við þau verð sem í boði voru hjá end­ur­mennt­un­ar­deild­unum.

[links]

„Okkur finnst þetta dálítið sér­­stakt, að það sé í raun og veru verið að halda þessu innan rík­­is­ins. Eins og við horfum á þetta þá er auð­vitað nógu erfitt að reka einka­­fyr­ir­tæki með öllum þeim áföllum sem hafa dunið yfir síð­­­ustu mán­uð­i,“ sagði Jón Jósa­­fat Björns­­son fram­­kvæmda­­stjóri Dale Carnegie á Íslandi þá í sam­tali við Kjarn­ann og Ingrid Kuhlman, fram­kvæmda­stjóri hjá Þekk­ing­ar­miðlun, tók í sama streng.

Hún benti á að end­ur­mennt­un­ar­deildir háskól­anna væru að bjóða upp á nám­skeið sem að ein­hverju leyti skör­uð­ust við fram­boð einka­fyr­ir­tækj­a á þessum mark­að­i.

„Þetta eru meðal ann­­ars nám­­skeið um jákvæða sál­fræði, um breyt­inga­­stjórnun og um árang­­ur­s­­ríka fram­komu. Þetta eru allt nám­­skeið sem einka­að­ilar bjóða líka upp á. Nú er ég með fram­kom­u­nám­­skeið og um teym­is­vinn­u. Það er alveg ljóst að við sem einka­að­ilar á fræðslu­­mark­aði getum ekki keppt við þessi verð. Það er alveg ljóst að ég mun ekki bjóða upp á nein nám­­skeið í jákvæðri sál­fræði í bil­i,“ sagði Ingrid.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

FA

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár