Tvær skjálftaþyrpingar á Reykjanesi

Á einni viku mæld­ust yfir1.600 jarð­skjálftar á Reykja­nesi. Þá var að finna í tveimur þyrp­ingum nærri Grinda­vík.

Land við fellið Þorbjörn í nágrenni Grindavíkur hefur risið um tólf sentímetra frá áramótum.
Land við fellið Þorbjörn í nágrenni Grinda­víkur hefur risið um tólf sentí­metra frá ára­mótum. Mynd: Visitreykjanes.is

Um 2.600 jarð­skjálftar voru stað­settir með SIL-mæla­kerfi Veð­ur­stofu Íslands á sjö daga tíma­bili, 13.-19. júlí. Það eru nokkuð færri en vik­una á undan þegar um 3.100 jarð­skjálftar voru stað­settir. Ekki hefur unn­ist tími til að yfir­fara alla skjálft­ana, segir í sam­an­tekt veð­ur­stof­unnar en um 760 jarð­skjálftar eru yfir­farnir.

Flestir skjálftar vik­unnar voru á Reykja­nesi í tveimur þyrp­ingum nærri Grinda­vík. Önnur nærri Þorbirni og tengd land­risi og kvikuinnskotum sem þar hafa átt sér stað og hin í hrinu rétt norðan við Fagra­dals­fjall sem hófst að kvöldi 19. júlí. Einnig mæld­ist tölu­verður fjöldi skjálfta í hrin­unni við mynni Eyja­fjarðar sem hófst þann 19. júní.

Alls mæld­ust um 700 skjálftar á tíma­bil­inu við Fagra­dals­fjall og einnig við mynni Eyja­fjarðar og rúm­lega 500 skjálftar nærri Þorbirni. Stærsti skjálfti vik­unnar mæld­ist við Fagra­dals­fjall 5,1 að stærð þann 19. júlí kl. 23:36. Hann fannst allt austur til Víkur og norður í Borg­ar­fjörð. Tíu skjálftar yfir 3,0 að stærð mæld­ust í vik­unni, þar af þrír yfir 4 að stærð, og mæld­ust þeir fyrir norðan, við Grinda­vík og tveir í Bárð­ar­bungu. Fjórir smá­skjálftar mæld­ust við Heklu, allir um og undir 0,5 að stærð. Fjórir skjálftar mæld­ust í Grím­svötnum þrír undir 1 að stærð og einn 1,2.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jarðhræringar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár