Kjarnafæði og Norðlenska renna saman í eitt eftir tveggja ára viðræður

Norð­lenska og Kjarna­fæði hafa náð sam­komu­lagi um sam­runa félag­anna tveggja. Hátt í 400 manns vinna hjá þessum fyr­ir­tækjum í dag. Sam­run­inn er háður sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og um 500 bænda, sem eiga Norð­lenska í sam­ein­ingu.

Eigendur Kjarna­fæðis og Norð­lenska hafa kom­ist að sam­komu­lagi um helstu skil­mála sam­runa félag­anna tveggja, sem hefur verið til umræðu frá því árið 2018. Í frétta­til­kynn­ingu í dag segir að með sam­run­anum sé verið að „bregð­ast við breyt­ingum í rekstar­um­hverfi mat­væla­iðn­aðar und­an­farin miss­eri“.

„Það er mat eig­enda félag­anna að sam­einað félag sé betur í stakk búið til að veita við­skipta­vinum sínum og birgjum, ekki síst bændum, góða þjón­ustu á sam­keppn­is­hæfu verði,“ segir í til­kynn­ingu vegna sam­run­ans, sem gerður er með fyr­ir­vara um sam­þykki bæði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og hlut­hafa­fundar Búsældar, eig­anda Norð­lenska.

Þar munu um 500 bændur greiða atkvæði um sam­run­ann.

[adspot]

Viðræður um þennan stóra sam­runa á kjöt­fram­leiðslu­mark­aði hafa sem áður segir verið í gangi því árið 2018, en þær virt­ust þó úr sög­unni í fyrra.

Þá var greint frá því að þær hefðu verið settar á ís og fram kom í til­kynn­ingu frá Norð­lenska að enn bæri tals­vert í milli og við­ræðum yrði ekki haldið áfram nema „ein­hver nýr vink­ill“ kæmi á málið. Nú hafa félögin náð saman um þau atriði sem út af stóðu.

Hátt á fjórða hundrað starfsmenn í heild

Eigendur Kjarna­fæði eru bræð­urnir Eiður og Hreinn Gunn­laugs­synir, en fyr­ir­tækið var stofnað árið 1985. Þar starfa um 130 manns og fer starf­semi að mestu fram á Sval­barðs­eyri í Eyja­firði. Bræð­urnir eiga einnig afurða­stöð SAH á Blöndu­ósi, þar sem unnin eru um 52 árs­verk og einnig eiga þeir 34 pró­sent hlut í Slát­ur­fé­lagi Vopn­firð­inga, sem rekur sauð­fjár­slát­ur­hús.

Norð­lenska varð til árið 2000 við sam­runa kjöt­iðn­ar­stöðvar KEA og Kjöt­iðj­unnar Húsavík, en stækk­aði árið 2001 þegar félagið sam­ein­að­ist þremur kjöt­vinnslum Goða. Norð­lenska fram­leiðir kjöt­vörur, einkum undir vöru­merkj­unum Norð­lenska, Goði, Húsa­vík­ur­kjöt, og KEA.

Félagið er sem áður segir í eigu Búsældar, félags kjöt­fram­leið­enda í Eyja­firði, Þing­eyj­ar­sýslum og á Austur- og Suð­aust­ur­landi, en hlut­hafar Búsældar eru um 500 bændur.

Um 190 árs­verk eru unnin hjá félag­inu og skipt­ist starf­semin á milli Akur­eyrar, þar sem rekið er stór­gripa­slát­ur­hús og kjöt­vinnsla, Húsa­víkur, þar sem rekin eru sauð­fjár­slát­ur­hús og kjöt­vinnsla fyrir sauð­fjár­af­urðir, og sölu­skrif­stofa í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

matvælageiri

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár