Sveinn hafnar því að upplýsingagjöf hafi verið léleg af sinni hálfu

Fyrr­ver­andi for­stjóri Matís hafnar því að upp­lýs­inga­gjöf til stjórnar Matís hafi verið léleg af sinni hálfu. Hann segir að þeir sem þekkja til hans viti að hann leggi mikið upp úr hag­nýt­ingu upp­lýs­inga.

Sveinn Margeirsson
Sveinn Mar­geirs­son Mynd: Matís

Sveinn Mar­geirs­son fyrr­ver­andi for­stjóri Matís hafnar því að upp­lýs­inga­gjöf til stjórnar Matís hafi verið léleg af sinni hálfu. Frá þessu greinir hann í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni í dag. Hann segir að þeir sem þekkja til hans viti að hann leggi mikið upp úr hag­nýt­ingu upp­lýs­inga. Dokt­ors­rit­gerð hans hafi snú­ist um hag­nýt­ingu upp­lýs­inga í virð­is­keðju sjáv­ar­af­urða. „Við hjónin not­uðum opin­berar upp­lýs­ingar til að fletta ofan af Exeter Holdings mál­inu árið 2009. Samstarf Matís við Advania um þróun Blockchain lausnar í því augna­miði að miðla upp­lýs­ingum bænda um lamba­kjöt til neyt­enda var mín hug­mynd. Þannig mætti áfram telja,“ segir hann á Facebook.

Sveinn lét af störf­um eftir átta ára starf síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Sjöfn Sig­ur­gísla­dótt­ir for­maður stjórn­ar Matís stað­festi í sam­tali við Kjarnann að honum hefði verið sagt upp og sagði að samið hefði verið um starfs­lok. 

Í stöðu­upp­færslu sinni seg­ist hann telja sig knú­inn til að leið­rétta frétt Bylgj­unnar sem birt­ist síð­ast­lið­inn föstu­dag þar sem fjallað var um upp­sögn hans. Í frétt­inni segir Sjöfn að trún­að­ar­brestur hafi orðið á milli stjórn­ar­innar og Sveins sem rekja megi til lélegrar upp­lýs­inga­gjafar. Hún segir að Sveini hafi verið sagt upp sím­leiðis því það hafi þurft að ganga frá upp­sögn hans strax og hann hafi ekki verið á leið­inni til lands­ins.

Sveinn segir aftur á móti að upp­sögnin hafi borist í tölvu­pósti en ekki sím­leiðis. Hann seg­ist hafa verið vegna vinnu minnar á fundi SCAR nefnd­ar­innar á mið­viku­dag, farið þaðan á lofts­lags­ráð­stefn­una COP24 og komið heim til Íslands á föstu­dags­kvöld.

„Síðustu ár hefur verið lögð áhersla á hag­nýt­ingu nútíma upp­lýs­inga­kerfa í rekstri Matís, sem ávallt hefur farið án telj­andi athuga­semda í gegnum end­ur­skoðun Rík­is­end­ur­skoð­unar og end­ur­skoðun evr­ópskra sam­keppn­is­sjóða. Slíkum árangri er ein­ungis hægt að ná með því að hafa skýra yfir­sýn yfir rekst­ur­inn. Þeirri yfir­sýn hefur verið miðlað eftir fremsta megni til stjórnar síð­ast­liðna mán­uði og hafa starfs­menn Matís lagt mikið á sig við þá vinnu. Brugðist hefur verið við hverri þeirri fyr­ir­spurn sem stjórn­ar­for­maður og aðrir stjórn­ar­menn hafa komið með, auk hefð­bund­innar upp­lýs­inga­gjafar um rekstur félags­ins,“ segir Sveinn.

Hann tekur það fram að hann hafi ekki hugsað sér að elta ólar við ein­stök ummæli Sjafnar Sig­ur­gísla­dóttur varð­andi ákvörðun stjórnar Matís um að nýta upp­sagn­ar­á­kvæði ráðn­ing­ar­samn­ings hans. Ákvörð­unin sé tekin og skyn­sam­leg­ast að horfa til fram­tíðar.

„Mig langar til að nota tæki­færið og þakka öllum sam­starfs­að­ilum Matís í gegnum tíð­ina, sem og starfs­fólki Matís, fyrir frá­bært sam­starf. Markmið Matís eru skýr, lyk­il­gildi félags­ins eru heil­indi og þau hef ég ávallt kapp­kostað að standa fyrir sem for­stjóri. Gildir þar einu hvort um hefur verið að ræða fram­kvæmd vís­inda­rann­sókna, ráð­stöfun hug­verka og sprota­fyr­ir­tækja eða hver tengsl sam­starfs­að­ila hafa verið við félagið. Matís býr yfir mannauði á heims­mæli­kvarða eins og árangur í alþjóð­legum sam­keppn­is­sjóðum vitnar til um, en hlut­fall alþjóð­legrar fjár­mögn­unar er í dag um þriðj­ungur af heild­ar­tekjum. Alþjóð­legar tekjur uxu mikið á árunum 2010-2016, í kjöl­far stefnu­mörk­unar um alþjóð­lega sam­keppn­is­hæfni félags­ins. Ef starfs­menn fá áfram tæki­færi til að starfa af þeim þrótti og heil­indum sem þeir hafa gert, verður Matís áfram í far­ar­broddi í nýsköpun í líf­hag­kerf­inu, Íslend­ingum öllum til heilla,“ segir Sveinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

matís

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár