Sveini Mar­geirs­syni for­stjóra Matís sagt upp störf­um

For­stjóra Matís hef­ur verið sagt upp störf­um. Ástæðan fyr­ir upp­sögn Sveins er trún­að­ar­brest­ur milli stjórn­ar og for­stjóra.

Sveinn Margeirsson
Sveinn Mar­geirs­son Mynd: Matís

Sveinn Mar­geirs­son for­stjóri Matís hef­ur látið af störf­um eftir átta ára starf. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá stjórn Matís. Sjöfn Sig­ur­gísla­dótt­ir for­maður stjórn­ar Matís stað­festir í sam­tali við Kjarnann að honum hafi verið sagt upp og segir að samið hafi verið um starfs­lok.

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að Odd­ur Már Gunn­ars­son hafi tekið við af Sveini og sé starf­andi for­stjóri Matís frá og með deg­in­um í dag.

Að sögn Sjafnar er ástæðan fyr­ir upp­sögn Sveins trún­að­ar­brest­ur milli stjórn­ar og for­stjóra.

[adspot]

Í sam­tali við mbl.is segir Sjöfn um af­stöðu starfs­manna til upp­sagn­ar­inn­ar að mis­mun­andi skoð­anir hafi komið fram á starfs­manna­fundi. „Við héld­um hérna starfs­manna­fund og það voru góðar umræður. Það voru ein­staka aðilar [sem voru ósatt­ir] en al­mennt held ég að fólk horfi fram á veg­inn,“ sagði Sjöfn í sam­tali við mbl.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

matís

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár