Ríki og borg hækka framlög til Bíó Paradísar um 26 milljónir

Framlag ríkis og borgar hækkar sam­tals um 26 millj­ónir á ári í upp­færðum sam­starfs­samn­ingi við Heimili kvik­mynd­anna, rekstr­ar­að­ila Bíós Para­dísar. Stefnt er að því að opna bíóið um miðjan sept­em­ber en þá fagnar Bíó Paradís tíu ára afmæli.

Bíó Paradís mun hefja starf­semi sína að nýju í haust en sam­starfs­samn­ingur Heimila kvik­mynd­anna, rekstr­ar­að­ila Bíós Para­dísar, við ríki og borg hefur verið upp­færður. Ríki og borg munu hvort um sig hækka fram­lag sitt til Heimila kvik­mynd­anna um 13 millj­ónir á ári. Þetta segir Arna Schram, sviðs­stjóri menn­ingar- og ferða­mála­sviðs Reykja­vík­ur­borgar, í sam­tali við Kjarnann.

Í til­kynn­ingu frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu segir að kvik­mynda­húsið hafi verið lokað um nokk­urt skeið vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins og vegna óvissu um leigu á hús­næði, óvissu sem nú hefur verið eytt.

„Vegna aðstæðna þurfti Bíó Paradís að segja upp öllu starfs­fólki síð­ast­liðið vor, en þá höfðu aðilar ekki náð saman um leigu­kjör og nauð­syn­legar end­ur­bætur og við­hald hús­næð­is­ins til lengri tíma. Það hefur nú tek­ist, eftir að máls­að­ilar slógu af ítr­ustu kröfum sínum og mætt­ust á miðri leið,“ segir í til­kynn­ing­unni. Leigu­verðið mun því hækka en ekki jafn mikið og til stóð í upp­hafi.

Stefnt er að því að opna Bíó Paradís um miðjan sept­em­ber næst­kom­andi. Þá verða liðin tíu ár frá því að bíóið hóf starf­semi sína. Áherslan hefur verið lögð á að sýna nýjar kvik­myndir frá öllum heims­hornum auk eldri mynda, bæði inn­lendra og erlendra. Bíóið hefur auk þess staðið fyrir fjöl­breyttum kvik­mynda­tengdum við­burðum og hýst kvik­mynda­há­tíðir.

„Við erum með þessu að tryggja að Bíó Paradís sinni áfram þeirri mik­il­vægu menn­ing­ar­starf­semi sem hún hefur sinnt und­an­farin ára­tug. Bíóið er sann­kölluð vagga kvik­mynda­menn­ingar í Reykja­vík og á land­inu öllu. Þá er ótrú­lega mik­il­vægt að Hverf­is­gatan verði áfram heim­ili kvik­mynd­anna og haldi áfram að sjá kvik­mynda­þyrstum gestum fyrir fjöl­breyttu fram­boði af alls­konar bíó­myndum frá öllum heims­hornum,“ er haft eftir Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár