Stórfyrirtæki stöðva auglýsingakaup á Facebook og Instagram

Frá því um miðjan júní hefur hvert stór­fyr­ir­tækið á fætur öðru sett fram kröfur um að Facebook geri betur í aðgerðum sínum gegn hat­urs­orð­ræðu. Fyr­ir­tækin hyggj­ast ná sínu fram með því að aug­lýsa ekki á miðlum Facebook.

Hlutabréfaverð í Facebook féll um átta prósent á föstudag.
Hluta­bréfa­verð í Facebook féll um átta pró­sent á föstu­dag. Mynd: © Dado Ruvic / Reuters

Tugir stór­fyr­ir­tækja hafa ákveðið að stöðva aug­lýs­inga­kaup sín á Instagram og Facebook vegna þess hve illa Facebook tekur á hat­urs­orð­ræðu og dreif­ingu fals­frétta og mis­vísandi upp­lýs­inga á miðlum sínum. Vegna þessa hefur hluta­bréfa­verð í Facebook tekið snarpa dýfu.

Samkvæmt frétt The Business Insider var fyrsta stór­fyr­ir­tækið til að ríða á vaðið The North Face. Snið­ganga fyr­ir­tæk­is­ins var til­kynnt á Twitter síðu þess þann 19. júní og í kjöl­farið hafa tugir fyr­ir­tækja ákveðið að fara sömu leið.

[adspot]

Sniðgangan að mestu bundin við Bandaríkjamarkað

Her­ferð­inni var hrundið af stað um miðjan júní síð­ast­lið­inn, í kjöl­far dráps­ins á George Floyd, undir myllu­merk­inu #stophatefor­profit. Nú vilja for­svars­menn her­ferð­ar­innar færa út kví­arnar og ná til fyr­ir­tækja utan Banda­ríkj­anna, að því er fram kemur í frétt Reuters. Gangi það eftir er ljóst að her­ferðin mun hafa tölu­verð áhrif á tekjur Facebook til skamms tíma.

Fyr­ir­tækið Unilver hefur til dæmis ákveðið að stöðva aug­lýs­inga­kaup fyrir Banda­ríkja­markað á Facebook út árið. Áætlað er að fyr­ir­tækið verji um 250 millj­ónum dala í aug­lýs­inga­kaup á Facebook en af þeirri upp­hæð fara um tíu pró­sent í að kaupa aug­lýs­ingar fyrir Banda­ríkja­markað. Það þykir því nokkuð aug­ljóst að slag­kraftur her­ferð­ar­innar muni aukast til muna nái hún til ann­arra landa.

Fjórðungur auglýsingatekna kemur frá stórfyrirtækjum

Í frétt Reuters segir enn fremur að tekjur Facebook af aug­lýs­inga­sölu nemi um 70 millj­örðum dala á árs­grund­velli. Fjórð­ungur tekn­anna kemur frá stór­fyr­ir­tækjum en mik­ill meiri­hluti kemur frá smærri fyr­ir­tækjum. Á þessu stigi máls­ins mun snið­ganga fyr­ir­tækj­anna ekki hafa mikil áhrif á tekjur Facebook, enda að mestu leyti bundin við aug­lýs­inga­kaup í júní og júlí á Banda­ríkja­mark­aði. Muni snið­gangan vaxa að umfangi getur hún þó farið að hafa tölu­verð áhrif á tekj­urnar.

Umfjöllun um snið­göng­una og stefnu fyr­ir­tæk­is­ins gagn­vart hat­urs­orð­ræðu hefur engu að síður haft mikil áhrif á hluta­bréfa­verð Facebook en það féll um rúm átta pró­sent á föstu­dag.

Facebook vill reyna að gera betur

Þann sama dag til­kynnti Facebook að fyr­ir­tækið ætl­aði að taka hat­urs­orð­ræðu sem birt­ist á sam­fé­lags­miðlum félags­ins fast­ari tökum. Það ætlar fyr­ir­tækið að gera með því að merkja færslur sem mögu­lega geta valdið skaða.

Þessar aðgerðir Facebook mæta hins vegar ekki kröfum hóps­ins sem stendur að baki Stop Hate for Profit. Hópurinn vill að not­endur sem sæta árásum og ofsóknum vegna kyn­þáttar síns geti notið meiri aðstoðar frá starfs­fólki Facebook og að upp­lýs­ingar um umfang hat­urs­orð­ræðu á Facebook verði aðgengi­legri. Þá hefur hóp­ur­inn kraf­ist þess að aug­lýsendur sem lenda í því að aug­lýs­ingar þeirra lenda við hlið efnis sem síðar er eytt eigi kost á því að fá aug­lýs­inga­kostnað sinn end­ur­greiddan frá Facebook.

Snið­ganga fyr­ir­tækj­anna er ekki bundið við sam­fé­lags­miðla Facebook. Til að mynda hefur Starbucks hætt að aug­lýsa á fleiri sam­fé­lags­miðlum, þar á meðal Twitter. Fjallað hefur verið um agð­erðir Twitter til að stemma stigu við dreif­ingu falskra upp­lýs­inga. Meðal ann­ars hafa Twitter færlsur Donalds Trumps, for­seta Banda­ríkj­anna, verið merktar af Twitter, vegna þess að í þeim mátti finna falsað myndefni en einnig vegna hót­ana um ofbeldi gegn mót­mæl­endum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár