Telur mikilvægt að reglur nái til ferðamanna

Sótt­varna­læknir segir mik­il­vægt að ein­hvers­konar reglur um sótt­kví nái einnig til ferða­manna sem koma hingað til lands, en starfs­hópur mun skila af sér til­lögum um hvaða reglur skuli gilda um erlenda ferða­menn öðru hvoru megin við helg­ina.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á fundinum í dag.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á fund­inum í dag. Mynd: Lögreglan

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir telur brýnt að ein­hvers­konar reglur um sótt­kví nái einnig yfir ferða­menn sem hingað koma, til þess að ný smit ber­ist ekki inn í landið. Eins og staðan er í dag eru engar slíkar reglur gild­andi, en reyndar eru nær engir ferða­menn að koma til lands­ins.[links]

„Ég tel mik­il­vægt að ein­hvers­konar hömlur muni gilda líka um þá til þess að tryggja að við fáum ekki smit hingað til Íslands,“ sagði Þórólfur, á dag­legum upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Í kjöl­farið benti hann á að all­víða er ferða­mönnum nú gert skylt að fara í sótt­kví, til dæmis í Danmörku.

Eins og áður hefur komið fram er starfs­hópur að skoða hvernig þetta atriði verður útfært á Íslandi og sagði Þórólfur að til­lögur hóps­ins myndu liggja fyrir núna „öðru hvoru megin við helg­ina.“ Í kjöl­farið mun sótt­varna­læknir senda heil­brigð­is­ráð­herra minn­is­blað með til­lögu að útfærslu.

Hafa auga á komu Norrænu

Samkvæmt regl­unum eins og þær eru hér á landi í dag geta ferða­menn komið til Íslands án þess að fara í sótt­kví, á meðan að þeir sem búa á Íslandi þurfa að fara í sótt­kví er þeir koma erlendis frá. Reyndar reynir lítið á það, þar sem nær engir ferða­menn eru að koma.

Það gæti þó breyst innan skamms, en fram kom í máli Þórólfs á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að far­þega­ferjan Norræna kæmi mögu­lega með ein­hverja ferða­menn til Seyð­is­fjarðar í næstu viku og yfir­völd væru að fylgj­ast með því. Óljóst væri þó hversu margir ferða­menn kæmu með ferj­unni.

Á vef Aust­ur­fréttar segir að búist sé við ríf­lega tutt­ugu far­þegum með skip­inu í næstu ferð, en fær­eyska skipa­fé­lagið Smyril Line hefur ákveðið að taka aftur upp far­þeg­a­sigl­ingar eftir að hafa ein­ungis flutt frakt und­an­far­inn mánuð.

Sótt­varna­læknir sagði að það væri mik­il­vægt að alþjóða­sam­fé­lagið myndi í sam­ein­ingu leita lausna á því hvernig ferða­mennsku yrði háttað á næstu vikum og mán­uðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár