Þórólfur: Þrjár leiðir færar í ferðalögum fólks

Sótt­varna­læknir segir að nið­ur­sveifla sé nú greini­leg í far­aldr­inum. Á næstu vikum og mán­uðum megi þó áfram búast við ein­staka smitum og jafn­vel hóp­sýk­ingum, „ef við gætum ekki að okkur“.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Sér­stakur starfs­hópur vinnur nú að því að móta hug­myndir um með hvaða hætti ferða­tak­mark­anir til og frá land­inu verði á næst­unni. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði þrennt í stöð­unni: Gera ekk­ert, loka land­inu alveg eða fara milli­veg­inn.

Þórólfur segir að tölur dags­ins séu „ánægju­legar“ því aðeins sjö ný smit hafi greinst síð­asta sól­ar­hring­inn og að álag á spít­al­ana færi nú minnk­andi. 32 liggja á sjúkra­húsum vegna COVID-19, þar af átta á gjör­gæslu. Þrír þeirra eru í önd­un­ar­vél, allir á Land­spít­al­anum.

[adspot]

Sótt­varna­læknir segir að nið­ur­sveifla sé nú greini­leg í far­aldr­inum. Á næstu vikum og mán­uðum megi þó áfram búast við ein­staka smitum og jafn­vel hóp­sýk­ingum, „ef við gætum ekki að okkur“. Því er mik­il­vægt að halda sótt­varn­ar­ráð­stöf­unum áfram, þvo vel hendur, spritta, halda tveggja metra fjar­lægð­ar­mörk­unum og forð­ast mann­marga staði.

Þórólfur sagði ljóst að setja þyrfti ein­hvers konar hömlur á erlenda og íslenska ferða­menn til og frá land­inu. Starfs­hópur sé nú að störfum til að kanna málið til hlítar og er von á nið­ur­stöðum á næstu dögum. Erlendis eru margir einnig að skoða þessi mál, m.a. Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin.

[links]Eftir að starfs­hóp­ur­inn skilar af sér mun Þórólfur senda stjórn­völdum til­lögur um hvernig tak­mörk­unum á ferða­lögum skuli háttað til að koma í veg fyrir að smit blossi hér upp aftur í sam­fé­lag­inu.

Hann seg­ist oft hafa verið spurður að því af hverju erlendir ferða­menn hafi ekki verið settir í sótt­kví við kom­una til lands­ins um leið og slíkar hömlur hafi verið settar á Íslend­inga sem voru að koma að utan. En að nú sé það í skoðun. Staðan er gjör­breytt frá því sem hún var. Áður hafi far­ald­ur­inn ekki verið mjög útbreiddur erlendis líkt og núna.

Hvað til­slak­anir á sam­fé­lags­banni og öðrum tak­mörk­unum varðar sagði Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, að frek­ari upp­lýs­ingar en þær sem komu fram á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar í gær yrðu aug­lýstar fljót­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár