Kári: Þessi veira er skringileg skepna með fullt af stökkbreytingum

Mótefna­mæl­ingar eru hafnar hjá Íslenskri erfða­grein­ingu. Kári Stef­áns­son for­stjóri sagði að íslenska rakn­ing­arteymið ætti sér ekki hlið­stæðu í heim­inum, svo sér­stakur væri árangur þess.

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar. Mynd: Lögreglan

„Ég ætla ekki að leggja til að þið standið upp og klappið og hrópið húrra en það væri full ástæða til þess,“ sagði Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, um árangur aðgerða þrí­eyk­is­ins Víðis Reyn­is­sonar, Þórólfs Guðna­sonar og Ölmu Möller við að hefta útbreiðslu kór­ónu­veirunnar í íslensku sam­fé­lagi. Far­ald­ur­inn væri nú á útleið.

Kári var gestur á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Þar fór hann yfir nið­ur­stöður vís­inda­greinar sér­fræð­inga Íslenskrar erfða­grein­ingar og sam­starfs­fólks hjá Land­lækn­is­emb­ætt­inu og Land­spít­ala sem birt var í í New England Journal of Medicine í gær. Greinin byggir á rann­sókn á útbreiðslu SARS- Cov-2 veirunnar á Íslandi sem veldur sjúk­dómnum COVID-19.

Nið­ur­stöð­urnar sýna að 0,8 pró­sent fólks í sam­fé­lag­inu er smitað sem ýtir undir kenn­ingar um að ein­kenna­lausir geti verið smit­berar.

Þá telja grein­ar­höf­undar að þótt aðgerðir heil­brigð­is­yf­ir­valda, til að halda far­aldr­inum niðri hafi borið árangur, sé þörf á meiri gögnum, til að hægt sé að taka upp­lýstar ákvarð­anir um hvernig eigi að koma böndum á veiruna í fram­hald­inu.

Íslensk erfða­grein­ing hefur síðan 13. mars ski­mað fyrir veirunni í íslensku sam­fé­lagi meðal 28 þús­und Íslend­inga. „Í morgun kíkti ég aldrei þessu vant á heima­síðu covid.is og sá mér til mik­illar furðu hvernig menn hafa verið að skoða hvernig veiran berst manna á milli,“ sagði Kári. Af 1.727 þekktum smitum eru aðeins átta sem ekki er vitað hvernig sýkt­ust. „Þetta er alveg ótrú­legur árangur og lyk­ill­inn að því hversu vel hefur tek­ist til. Rakn­ing­arteymið okkar er alveg ótrú­legt. Á engan sinn líkan nokk­urs staðar í heim­inum. Ég er býsna mont­inn af þessu fólki.“

Íslensk erfða­grein­ing hefur rað­greint 1.320 stað­fest smit. „Þessi veira er skringi­leg skepna með fullt af stökk­breyt­ingum,“ sagði Kári. „Hún hefur ferð­ast um svo margt fólk að hún hefur fengið mörg tæki­færi til að stökk­breyt­ast.“

Sagði Kári að veiran bæri sér­stök merki fyrir ákveðin land­svæði, þannig væri hægt að sjá hvaðan hún kæmi. Stökk­breyt­inga­mynstur hennar er sér­stakt fyrir Aust­ur­ríki, Ítalíu og England, svo dæmi séu tekin.

Veiran fyrr á ferð í Bretlandi en menn töldu

Kári rifj­aði upp að fyrstu til­fellin hefðu komið til lands­ins með Íslend­ingum sem voru í skíða­ferðum í Aust­ur­ríki og á Ítalíu. Vel hafi svo tek­ist að hemja útbreiðslu sjúk­dóms­ins frá þessum hópi.

En þegar Íslensk erfða­grein­ing tók að rað­greina sýni kom í ljós að á meðan verið var að ein­beita sér að fólki sem var að koma úr Ölpunum kom veiran inn í landið með fólki sem var að koma frá ýmsum öðrum löndum. Tölu­verður hópur smit­aðra kom frá Bret­landi. Sagði Kári þetta sýna að veiran hafi verið búin að dreifa sér víða þar í landi áður en að fólk gerði sér grein fyrir því.

Kári tal­aði sér­stak­lega um það hversu veiran leggst mis­mun­andi á fólk. Margir fá lítil eða engin ein­kenni á meðan aðrir veikj­ast alvar­lega og þurfa að leggj­ast inn á gjör­gæslu og jafn­vel í önd­un­ar­vél. Skýr­ingar á þessu er hægt að rann­saka með til­liti til erfða­mengis fólks. Þá sagði hann að veiran væri „and­styggi­leg“ að því leyti að hún gæti smit­ast frá fólki sem hefði lítil eða engin ein­kenni. „Þessi veira gæti því haldið áfram að flakka um sam­fé­lagið því ein­kenna­laust fólk smitar.“

Mótefni hjá sýktum staðfest

Íslensk erfða­grein­ing hefur þegar haf­ist handa við að skima fyrir mótefnum gegn veirunni hjá fólki. Kári sagð­ist reikna með að sú skimun sýndi hver hin raun­veru­lega dreif­ing veirunnar er í sam­fé­lag­inu.

Þegar er búið að mótefna­mæla milli 700-800 manns þar af eru um 500 sem ekki er vitað til að hafi sýkst. Hann segir að þegar sjá­ist það mynstur sem búist var við: Meiri­hluti þeirra sem hefur sýkst er kom­inn með mótefni.

Fjöl­margar þjóðir heims eru nú að hefja mótefna­mæl­ingar. Kári sagði að til þess yrði að horfa þegar tak­mark­anir á ferða­lögum til og frá Íslandi væru ákveðnar. „Þú vilt ekki hleypa fólki inn í landið frá löndum sem hafa ekki verið að gera nokkurn skap­aðan hlut.“

Framlag Íslenskrar erfða­grein­ingar til þró­unar bólu­efnis gegn veirunni verður að sögn Kára það að sýna fjöl­breyti­lega bygg­ingu hennar. Hann sagð­ist bjart­sýnni en Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á að bólu­efni verði fljótt aðgengi­legt. Klínískar próf­anir á því væru þegar hafnar. Sagðist hann gera sér vonir um að það verði, í ein­hverju formi, til­búið innan árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár