Sigríður Björk nýr ríkislögreglustjóri

Dóms­mála­ráð­herra hefur skipað Sigríði Björk Guð­jóns­dóttur í emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra frá og með 16. mars næst­kom­andi.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefur skipað Sigríði Björk Guð­jóns­dóttur í emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra frá og með 16. mars næst­kom­andi. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Hæfn­is­nefnd sem skipuð var til að fara yfir og meta hæfni umsókna um emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra mat Sigríði hæf­asta umsækj­enda, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni.

Þá kemur fram að Sigríður Björk hafi frá árinu 2014 gegnt emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Áður en Sigríður tók við emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi hún gegnt emb­ætti lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum, þar áður hafi hún verið aðstoð­ar­rík­is­lög­reglu­stjóri frá 2007 til 2008, sýslu­maður á Ísafirði 2002 til 2006 og skatt­stjóri Vest­fjarða frá 1996 til 2002.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lögregla

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár