Íslendingar hlynntir sýnilegum vopnaburði lögreglu á fjöldasamkomum

Meiri­hluti svar­enda við­horfskönn­unar Maskínu sem tóku afstöðu voru hlynntir sýni­legum vopna­burði lög­reglu á fjölda­sam­komum. Mestur var stuðn­ingur ómennt­aðra, tekju­lágra og kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Stór hluti Íslendinga er hlynntur því að lögreglumenn beri sýnileg vopn á fjöldasamkomum
Stór hluti Íslend­inga er hlynntur því að lög­reglu­menn beri sýni­leg vopn á fjölda­sam­komum Mynd: Birgir Þór Harðarson

Um 58% þeirra sem tóku afstöðu í við­horfskönnun Maskínu voru hlynntir því að vopn­aðir lög­reglu­menn séu sýni­legir á fjölda­sam­komum. Hlutfall hlynntra var hæst meðal ómennt­aðra og kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks. 

Maskína birti nið­ur­stöður sínar úr við­horfskönnun á sýni­leika vopn­aðra lög­reglu­manna á fjölda­sam­komum í dag. Spurt var: Hversu hlynnt(ur) eða and­víg(ur) ertu því að vopn­aðir lög­reglu­menn séu sýni­legir á fjölda­sam­komum á Íslandi? Svar­endur voru 1046 tals­ins og komu úr slembi­úr­taki Þjóð­skrár á aldr­inum 18-75. Könnunin fór fram dag­ana 16.-19. júní síð­ast­lið­inn.

Meira en þrír af hverjum fjórum kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru hlynntir vopna­burð­inum, en tveir af hverjum þremur kjós­endum Fram­sókn­ar­flokks­ins og Við­reisnar. Hlut­fallið er mun lægra meðal kjós­enda ann­arra flokka, en lægsta hlut­fallið er meðal kjós­enda Pírata, eða 14%.

Nokkur munur virt­ist vera á milli tekju­hópa, en um 61% svar­enda í lægsta tekju­hópi voru hlynntir sýni­legum vopna­burði lög­reglu miðað við rúm 42% svar­enda í hinum tekju­hóp­unum.

Einnig voru svörin breyti­leg milli lands­hluta, en íbúar á Suð­ur­landi, Reykja­nesi, Vest­ur­landi og Vest­fjörðum virt­ust mun hlynnt­ari sýni­legum vopna­burði lög­reglu en íbúar ann­arra lands­hluta. Hlutfall hlynntra var lægst meðal Reykja­vík­ur­búa.

Mestur var mun­ur­inn þó eftir mennt­un­ar­stigi, en 73,5% svar­enda sem ein­ungis höfðu lokið grunn­skóla­prófi svör­uðu ját­andi á meðan ein­ungis 28,9% svar­enda sem lokið höfðu háskóla­prófi gerðu það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lögregla

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár