Ekki færri þjófnaðir tilkynntir á síðasta ári síðan 2007

Þjófn­að­ar­brotum hefur fækkað veru­lega und­an­farin ára­tug eða svo. Árið 2016 bár­ust 2.939 til­kynn­ingar um þjófn­aði til lög­reglu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og hafa ekki borist eins fáar til­kynn­ingar á einu ári síðan 2007.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gefur út skýrslu um afbrot á hverju ári.
Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu gefur út skýrslu um afbrot á hverju ári. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Til­kynn­ingum um hegn­ing­ar­laga­brot fækk­aði árið 2016 á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í sam­an­burði við árið á undan. Þar af fækk­aði auðg­un­ar­brotum en þannig hefur þró­unin verið allt frá árinu 2010.

Þar vega þjófn­að­ar­brot þungt en þeim hefur fækkað veru­lega und­an­farin ára­tug eða svo. Árið 2016 bár­ust 2.939 til­kynn­ingar um þjófn­aði á svæð­inu og hafa ekki borist eins fáar til­kynn­ingar á einu ári síðan 2007.

Þetta kemur fram í skýrsl­unni Afbrot á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 2016 sem kom út í dag sem Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu gefur árlega út. Þar er að finna upp­lýs­ingar um afbrot og þróun þeirra í umdæm­inu.

[adspot]

Skýrslan er nokkuð ítar­leg en í henni er farið yfir alla helstu brota­flokk­ana og er dreif­ing brota enn fremur skoðuð sér­stak­lega, bæði hvað varðar sveit­ar­fé­lögin í umdæm­inu og eins í ákveðnum hverfum borg­ar­innar.

Færri innbrot en áður

Tilkynnt var um 849 inn­brot á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða á bil­inu tvö til þrjú inn­brot á dag. Til­kynn­ingum fækk­aði milli ára, segir í skýrsl­unni. Um það bil þriðj­ungur til­kynntra inn­brota voru í heim­ili og um þriðj­ungur í öku­tæki.

Árið 2016 var til­kynnt um 277 kyn­ferð­is­brot sem er svip­aður fjöldi og árið áður en um 45 pró­sent til­kynntra kyn­ferð­is­brota voru nauðg­anir. Til­kynn­ingar um bæði kyn­ferð­is­brot og ofbeld­is­brot voru ámóta margar árin 2016 og 2015 en á sama tíma­bili fjölg­aði hins vegar til­kynn­ingum um umferð­ar­laga­brot all­nokkuð.

Lög­regl­unni bár­ust 1.197 til­kynn­ingar um ofbeld­is­brot árið 2016 eða álíka margar og árið áður. Lang­flest brotin áttu sér stað frá mið­nætti til sjö um morg­un­inn aðfara­nótt sunnu­dags.

Flest hegningarlagabrot í Miðborginni

Ekkert mann­dráp átti sér stað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu árið 2016.

Skráð voru 1.345 fíkni­efna­brot en um það bil 70 pró­sent allra skráðra fíkni­efna­brota er vegna vörslu eða neyslu fíkni­efna. Lagt var hald á 30 kíló af maríjúana og um níu kíló af amfetamíni sem er nokkuð minna magn en síð­ustu ár.

Flest hegn­ing­ar­laga­brotin áttu sér stað í Mið­borg­inni eða um 18 pró­sent allra brota á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lögregla

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár