Ræðst á næsta sólarhring hvort Efling og borgin séu að færast nær samningi

Síðustu daga hafa staðið yfir fund­ar­höld milli Eflingar og Reykja­vík­ur­borgar, eftir að hlé hafði verið á slíkum í meira en viku þrátt fyrir yfir­stand­andi verk­fall. Efling segir að síð­ustu dagar hafi að mestu farið í að „greiða úr óvissu­at­riðum í til­boðum

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Það mun ráð­ast á næsta sól­ar­hring hvort Efling og Reykja­vík­ur­borg hafi færst nær því að gera nýjan kjara­samn­ing. Sem stendur er það tví­sýnt hvort svo sé. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu Eflingar.

Efling og full­trúar Reykja­vík­ur­borgar hafa fundað nokkuð stíft frá því á fimmtu­dag en þær við­ræður hafa, sam­kvæmt Eflingu, að mestu „snú­ist um að greiða úr óvissu­at­riðum í til­boðum og mál­flutn­ingi borg­ar­innar.“

Ekki hefur verið greint frá því hvernig fund­ar­höldum um helg­ina verði háttar en gert var fund­ar­hlé um kvöld­mat­ar­leytið í gær eftir nokkuð stífa fund­ar­setu.

Takist ekki að semja fyrir mánu­dags­morgun mun ótíma­bundið verk­fall rúm­lega 1.800 félags­manna Eflingar sem starfa fyrir Reykja­vík­ur­borg sem staðið hefur yfir frá 17. febr­úar halda áfram. Starfs­menn­irnir sem um ræðir eru meðal ann­ars ófag­lærðir starfs­menn leik­skóla, starfs­fólk á dval­ar­heim­ilum og sorp­hirðu­menn. Áhrif verk­falls­ins hafa verið víð­tæk og birt­ing­ar­myndir þess ýmis­konar. Til að mynda hefur leiks­skóla­starf víða riðl­ast veru­lega og mörg börn hafa þurft að sæta skerð­ingu á dval­ar­tíma eða hafa ekki getað dvalið neitt á leik­skólum sínum. Þá hefur sorp safn­ast upp víða í höf­uð­borg­inni, þrátt fyrir að und­an­þága hafi feng­ist í síð­ustu viku til að hirða sorp.

[adspot]Á morgun mun svo verk­fall Efl­ing­ar­starfs­fólks í flestum nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur hefj­ast. Þá átti líka að hefj­ast sam­úð­ar­verk­fall starfs­manna í einka­reknum leik- og grunn­skólum. Félags­dómur úrskurð­aði hins vegar í lok lið­innar viku að það væri ólög­mætt.

Á mánu­dag hefst einnig verk­fall um 18 þús­und félags­manna BSRB. Á meðal þeirra sem fara þá í verk­fall eru starfs­menn leik- og grunn­skóla sem eru í stétt­ar­fé­lag­inu Sameyki. Semjist ekki um helg­ina mun því skóla­starf riðl­ast veru­lega í næstu viku.

Und­an­þágu­nefndum Sameykis stétt­ar­fé­lag í almanna­þjón­ustu og Sjúkra­liða­fé­lags Íslands barst í gær beiðni frá Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og Land­spít­ala vegna for­dæma­lausra aðstæðna sem nú er uppi vegna COVID-19 veirunnar og auk­inni útbreiðslu hennar sem hefur leitt til þess að Almanna­varn­ar­nefnd lýsti yfir neyð­ar­stigi.

Þær féllust á beiðni Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og Land­spít­ala um und­an­þágu allra starfs­manna vegna verk­falls félags­manna dag­ana 9. og 10. mars 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár