Íslensk erfðagreining rannsakar persónuleika Íslendinga

Sjá má á sam­fé­lags­miðlum, sér­stak­lega á Facebook, að margir Íslend­ingar taka nú þátt í rann­sókn Íslenskrar erfða­grein­ingar þar sem per­sónu­leiki þeirra er greindur.

Íslensk erfða­grein­ing stendur nú fyrir rann­sókn þar sem mark­miðið er að rann­saka erfða­breyti­leika sem hafa áhrif á per­sónu­leika og tengsl þess­ara eig­in­leika við heilsu­far. Nokkuð hefur borið á því að lands­menn deili nú nið­ur­stöðum sínum á sam­fé­lags­miðlum þar sem eig­in­leikar eins og jafn­lyndi, úthverfa, víð­sýni, sam­vinnu­þýði og sam­visku­semi eru útli­staðir.

Á sér­stökum vef fyrir rann­sókn­ina kemur fram að þátt­taka taki um 10 til 15 mín­útur og feli í sér und­ir­rit­aða yfir­lýs­ingu um sam­þykki með raf­rænum skil­ríkjum og að svara raf­rænum spurn­inga­lista.

Þá er einnig útskýrt hvað per­sónu­leiki sé. „Per­sónu­leiki er yfir­leitt skil­greindur sem það mynstur hugs­unar, hegð­unar og skap­gerðar sem ein­kennir við­kom­andi ein­stak­ling. Fimm helstu þáttum per­sónu­leika hefur verið lýst með aðgerðum töl­fræð­innar, en þeir eru jafn­lyndi, úthverfa, víð­sýni, sam­vinnu­þýði og sam­visku­semi. Í þess­ari rann­sókn beinum við sjónum okkar fyrst og fremst að þessum fimm þáttum, en að auki skoðum við sjálfs­stjórn sem vísar til get­unnar til þess að stýra eigin hegðun.“

Heimild til að samkeyra dulkóðaðar upplýsingar um þátttakandann

Í sam­þykk­inu felst heim­ild til að sam­keyra dulkóð­aðar upp­lýs­ingar um þátt­tak­and­ann við öll önnur dulkóðuð rann­sókn­ar­gögn Íslenskrar erfða­grein­ingar og til að nálg­ast upp­lýs­ingar úr gögnum heil­brigð­is­stofn­ana sem gagn­ast rann­sókn­inni. „Ef þú hefur ekki gefið líf­sýni áður vegna þátt­töku í rann­sóknum Íslenskrar erfða­grein­ingar verður þér boðið að koma síðar í þjón­ustu­mið­stöð rann­sókn­ar­verk­efna til að gefa líf­sýni og und­ir­rita upp­lýst sam­þykki. Þér mun þá einnig gef­ast kostur á þátt­töku í lífs­sýna­safni Íslenskrar erfða­grein­ingar með und­ir­ritun sér­staks líf­sýna­safns­sam­þykkis, sem heim­ilar að sýni og gögn megi nota til ann­arra rann­sókna sem hlotið hafa leyfi Vís­inda­siða­nefndar,“ segir á vefnum.

Rann­sóknin hefur enn fremur hlotið leyfi Vís­inda­siða­nefndar. Þá kemur fram hjá fyr­ir­tæk­inu að gildi rann­sókn­ar­innar snúi fyrst og fremst að auk­inni þekk­ingu á erfða­þáttum sem tengj­ast per­sónu­leika og þar með starf­semi heil­ans. Allir 18 ára og eldri geta tekið þátt.

Ávinn­ingur af þátt­tök­unni er sam­kvæmt Íslenskri erfða­grein­ingu sá að við lok hennar fái þátt­tak­endur upp­lýs­ingar um hvernig per­sónu­leiki þeirra sé í sam­an­burði við aðra og hver staða þeirra sé á þeim fimm per­sónu­leika­þáttum sem nefndir voru áðan.

Svörum þátt­tak­enda er eytt af vef­þjóni eftir tvær vikur en eftir það verður ekki hægt að skoða nið­ur­stöð­urnar á net­inu, segir á vef­síðu þeirra. „Fyllsta trún­aðar verður gætt, en rann­sak­endur eru bundnir trún­aði og þagn­ar­skyldu varð­andi þær upp­lýs­ingar sem þú veitir.“ Enn fremur kemur fram að hægt sé að hafna eða hætta skil­yrð­is­laust þátt­töku í rann­sókn­inni hvenær sem er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár