Forsætisráðherra leggur fram frumvarp um varnir gegn hagsmunaárekstrum

Hags­muna­verðir verða að skrá sig, fyrr­ver­andi ráð­herrar verða að bíða í sex mán­uði áður en þeir ráða sig til hags­muna­sam­taka eftir að hafa látið af störfum og ráða­menn verða að gefa upp fjár­hags­lega hags­muni sína, verði nýtt frum­varp að lögum.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur útbýtt á Alþingi frum­varpi um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum hjá æðstu hand­höfum fram­kvæmda­valds­ins. Markmið lag­anna er „að tak­marka eins og frekast er unnt áhrif hags­muna­á­rekstra á störf æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds sem starfa innan Stjórn­ar­ráðs Íslands.“

Með æðstu hand­höfum fram­kvæmd­ar­valds er átt við ráð­herra, ráðu­neyt­is­stjóra, skrif­stofu­stjóra og sendi­herra. Þá gilda lögin einnig um aðstoð­ar­menn ráð­herra.

Á meðal þess sem fram kemur í frum­varp­inu, er að skylda alla þá sem starfa í æðsta lagi íslenskrar stjórn­sýslu og í stjórn­málum að gefa upp hags­muni sína og gera ítar­lega grein fyrir fjár­hags­legum hags­munum sín­um.

Þá felur það í sér að hags­muna­verðir (e. lobbý­istar) sem eiga sam­skipti við stjórn­mála­menn og stjórn­sýslu verði gert að skrá sig sem slíka. Samtök atvinnu­lífs­ins hafa lýst sig afar mót­fallin slíkri skrán­ingu.

[adspot]Æðstu hand­hafar fram­kvæmda­valds­ins og aðstoð­ar­menn þeirra munu ekki geta sinnt öðrum störfum sam­hliða sínum, verði frum­varpið að lögum og þegar þeir hætta störfum mun þeim verða óheim­ilt að ger­ast hags­muna­verðir í sex mán­uði. Þeim sem lögin munu ná yfir verður enn fremur óheim­ilt að „nota upp­lýs­ingar sem þeir höfðu aðgang að í krafti starfs síns fyrir hið opin­bera sér eða öðrum til óeðli­legs ávinn­ings.“

Þeir sem lögin munu ná yfir, verði frum­varpið sam­þykkt, munu meðal ann­ars þurfa að skila til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins skrá yfir nánar til­teknar eign­ir, skuldir og sjálf­skuld­ar­á­byrgðir þ.m.t. erlend­is, þegar við­kom­andi hefur störf hjá Stjórn­ar­ráð­inu. Sömu upp­lýs­ingum þurfi að skila varð­andi maka og ólög­ráða börn.

Verði frum­varpið sam­þykkt mun það gild frá 1. jan­úar 2021.

Mun ekki geta skoðað brot annarra ráðherra

Fram­lagn­ing frum­varps­ins, sem er smíðað í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, er til þess ætluð að auka traust og gegn­sæi, í takti við það sem til­tekið var í stjórn­ar­sátt­mála sitj­andi rík­is­stjórnar. Í grein­ar­gerð þess kemur fram að lög­gjöf með virku eft­ir­lits­kerfi til varnar hags­muna­á­rekstrum, sem inni­haldi ákvæði um hags­muna­skrán­ingu og gjafir, hags­muna­verði, auka­störf og starfs­val eftir opin­ber störf, sé til þess fallin að skapa traust og tryggja að æðstu hand­hafar fram­kvæmd­ar­valds vinni störf sín í þágu almenn­ings af heil­indum.

Í því er mælt fyrir um að for­sæt­is­ráð­herra og ráðu­neyti hans geti ákveðið að taka til skoð­unar til­vik þar sem grunur leikur á að ákvæðum frum­varps­ins sé ekki fylgt í til­vikum æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds og aðstoð­ar­manna ráð­herra, ann­arra en ráð­herra. „Með hlið­sjón af stjórn­skipu­legri stöðu ráð­herra þykir ekki rétt að fela for­sæt­is­ráð­herra að taka til skoð­unar brot ann­arra ráð­herra á reglum af þessu tagi en um ábyrgð ráð­herra á emb­ætt­is­verkum þeirra fer að lögum um ráð­herra­á­byrgð hverju sinni.“

Ákvæðin sem lögð eru til í frum­varp­inu eru mörg hver mats­kennd og í grein­ar­gerð segir að því sé mik­il­vægt að for­sæt­is­ráðu­neytið hafi val um að skoða mál að eigin frum­kvæði. „Frum­kvæð­is­mál geta haf­ist vegna ábend­inga, t.d. frá almenn­ingi til ráðu­neyt­is­ins, umfjöll­unar fjöl­miðla o.s.frv. Ef nið­ur­staða athug­unar for­sæt­is­ráðu­neytis gefur til kynna að brot hafi átt sér stað er gert ráð fyrir að for­sæt­is­ráðu­neytið til­kynni nið­ur­stöð­una til hlut­að­eig­andi ráðu­neytis sem hefur þá vald til að grípa til starfs­manna­rétt­ar­lega við­ur­laga á borð við áminn­ingu eða upp­sögn. Í til­viki æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds og aðstoð­ar­manna ráð­herra sem starfa í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu er það for­sæt­is­ráð­herra að meta hvort efni séu til slíkra aðgerða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár