Semja Bandaríkin og Kína á nýju ári?

Tolla­stríð Banda­ríkj­anna og Kína hefur verið gríð­ar­lega áhrifa­mikið í heims­bú­skp­anum á árinu.

Tolla­stríð Banda­ríkj­anna og Kína hefur verið mið­punkt­ur­inn í óvissu­horfum á alþjóða­vett­vangi á þessu ári, en mögu­lega er framundan nýr samn­ingur milli ríkj­anna tveggja sem mun skapa nýjar for­sendur fyrir við­skiptum.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti var með það sem leið­ar­stef í kosn­inga­bar­átt­unni árið 2016, að end­ur­semja við Kína, en tolla­stríð risanna hefur að mati flestra sem fjallað hafa um það, ekki leitt til jákvæðra áhrifa í Banda­ríkj­unum eða í Kína, heldur hafa allir tapað á því.

Líklegt verður að telj­ast að Trump reyni í það minnsta að fá fram nið­ur­stöðu í við­ræðum við stjórn­völd í Kína - sem hafa nú staðið yfir í meira en ár - fljót­lega á næsta ári, til þess að hann geti nýtt sér það í for­seta­fram­boði sínu fyrir kosn­ing­arnar í nóv­em­ber á næsta ári. Skrifa sér­fræð­inga í Banda­ríkj­unum, hafa flest verið á þá leið, að þetta sé stóra mark­miðið hjá Trump og hans starfs­fólki, þegar farið er inn í nýtt ár.

Fjallað er um þetta í hlað­varps­þætt­inum Molum, í hlað­varpi Kjarnans, en í hátíð­ar­út­gáfu er farið yfir árið 2019 og horft inn í nýtt kom­andi ár, með alþjóða­póli­tík og við­skipti í for­grunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2019

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár