Greta Thunberg afþakkar umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs

Greta Thunberg segir að það þurfi ekki fleiri verð­laun, heldur að virkja sam­taka­mátt til að berj­ast gegn umhverf­is­vánni sem fylgi lofts­lags­breyt­ingum af manna­völdum.

Sænska ung­lings­stúlkan Greta Thunberg, sem ýtt hefur af stað umræðu um umhverf­is­mál um allan heim, afþakk­aði umhverf­is­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs.

Hún segir á instagram aðgangi sínum, að verð­laun skipti ekki máli, þó hún þakki fyrir þann heiður að hafa verið valin, heldur þurfi að virkja sam­taka­mátt fjöld­ans og þrýsta á stjórn­mála­menn og aðra leið­toga til að berj­ast gegn mengun af manna­völdum og lofts­lags­breyt­ingum.

Greta er stödd í Kali­forníu og gat því ekki verið við­stödd, en full­trúar hennar komu á svið og sögðu við­stöddum að umhverf­is­bar­áttan þyrfti ekki verð­laun heldur aðgerðir.

Fata­merkið Aft­ur var til­nefnt fyr­ir Íslands hönd en fata­merkið end­ur­vinn­ur eldri föt og býr til ný úr þeim.

Umhverf­is­verð­launin voru því afhent af sænska umhverf­is­að­gerða­sinn­anum Noura Berrouba. Isabelle Axelsson og Sophia Axelsson frá sam­tök­unum Fri­da­ys­For­Fut­ure voru við­staddar afhend­ing­una fyrir hönd Gretu.

Fri­da­ys­For­Fut­ure er hreyf­ingin sem Greta Thunberg kom af stað í ágúst 2018 þegar hún fór í þriggja vikna skóla­verk­fall til að sitja fyrir framan sænska þing­húsið og mót­mæla skorti á lofts­lags­að­gerðum af hendi stjórn­mála­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár