Logi: Komin upp ný og gjörbreytt staða í stjórnmálum á Íslandi

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að nú sé sögu­legt tæki­færi fyrir Sam­fylk­ing­una til að fylkja saman umbóta­öfl­unum í land­inu og sýna að það sé til betri val­kostur fyrir íslenskan almenn­ing en núver­andi rík­is­stjórn.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Sóllilja Baltasarsdóttir.

„Í sögu­legu sam­hengi eru stóru tíð­indin í íslenskum stjórn­málum þessi: Flokk­ur­inn sem var vanur að tróna yfir öllum hinum, á 20. öld­inni - gerir það ekki lengur. Flokk­ur­inn, sem var mynd­aður úr frjáls­lyndum armi og íhalds­sömum armi, er ekki lengur fær um að veita for­ystu og takast á við þær breyt­ingar sem blasa við okkur á 21. öld­inni; hann er klof­inn - þvers og kruss.“

Þetta sagði Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í ræðu sinni á flokks­stjórn­ar­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar í morgun.

Tækifæri til að fylkja saman umbótaöflum

Í ræðu sinni fjallar Logi um hversu stór tíð­indi ný staða Sjálf­stæð­is­flokks­ins er og að aðrir flokkar þurfi að bregð­ast við þessum nýja veru­leika sem blasi nú við í íslenskum stjórn­málum. Hann segir þetta vera sögu­legt tæki­færi fyrir Sam­fylk­ing­una til að fylkja saman umbóta­öfl­unum í land­inu og sýna að það sé til betri val­kostur fyrir íslenskan almenn­ing en núver­andi rík­is­stjórn.

„Næsta stóra verk­efni okkar er þetta: Við verðum, og segjum það bara skýrt, við verðum að fella þessa rík­is­stjórn í kosn­ing­unum 2021, til að mynda betri, djarfari og víð­sýnni stjórn fyrir fólkið í land­inu og kom­andi kyn­slóðir - við verðum að rísa undir þeirri ábyrgð,“ segir Logi.

Segir ríkisstjórnina ófæra um að mæta áskorunum samtímans

Hann fjallar jafn­framt um að heim­ur­inn sé að breyt­ast hratt og nauð­syn­legt sé að breyt­ast í takt við tím­ann. Að mati Loga er núver­andi rík­is­stjórn hins vegar ófær um að takast á við þær miklu áskor­anir sem íslenska þjóðin stendur nú frammi fyrir, sem og þjóðir um allan heim.

„Þó snjöll­ustu lausn­irnar verði oft til við snún­ustu aðstæð­urnar, mun sú ósam­stíga og hug­mynda­snauða rík­is­stjórn sem nú er við völd - og er hvorki sam­mála um leiðir eða mark­mið - ekki bjóða upp á slíkar lausnir,“ segir Logi og bætir við að dæmi um það sé hversu svifa­sein og metn­að­ar­lítil núver­andi rík­is­stjórn sé í lofts­lags­málum.

„Rík­is­stjórnin treystir sér ekki til að lýsa yfir neyð­ar­á­standi vegna ham­fara­hlýn­unnar eða lög­binda mark­mið um kolefn­is­hlut­leysi sem skuld­bindur hana til aðgerða. En þó rík­is­stjórnin treysti sér ekki til þess að lýsa yfir neyð­ar­á­standi – þá ríkir sann­ar­lega neyð­ar­á­stand í lofts­lags­málum,“ segir Logi en að hans mati þarf rót­tæka stefnu og aðgerðir til að tryggja að hægt verði að taka á vand­anum án þess að honum sé alfarið velt yfir á þá sem lakast standa í land­inu.

Samfylkiningin verði að bjóða upp á trúverðuga stefnu

Í ræð­unni minn­ist hann jafn­framt á mennta­mál og segir að stefna rík­is­stjórn­ar­innar sé skýr í fjár­laga­frum­varp­inu, draga eigi úr fram­lögum til mennta­mála. Hann segir jafn­framt skatta­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar ýta undir enn meiri ójöfnuð í landi þar sem 5 pró­sent íbú­anna eiga nú þegar jafn­miklar eignir og hin 95 pró­sentin.


„Já, þetta er vond rík­is­stjórn: Lofts­lags­málin í lama­sessi, mennta­málin í aft­ur­för og skatta­stefna sem eykur ójöfnuð og til skammar fyrir alla nema harðsvíruð­ustu hægri­menn,“ segir Logi.

Að lokum segir Logi að Sam­fylk­ingin verði að bjóða upp á skýra og trú­verð­uga stefnu sem mætir áskor­unum sam­tím­ans og ef hann geri það þá sé hann viss um að flokk­ur­inn fái umboð til að leiða saman umbóta­öflin í rík­is­stjórn eftir næstu kosn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

pólitík

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár