Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að vera búinn að endurgreiða styrki upp á 56 milljónir 2018

Fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins gefur ekki upp hve stór hluti hefur verið end­ur­greiddur af styrkjum frá FL Group og Lands­banka. Sam­fylk­ing ætlar ekki að end­ur­greiða neitt. Sjálf­stæð­is­flokkur fékk lang­hæsta styrki árið 2014.

Sjálfstæðisflokkurinn fékk tæpar 50 milljónir í styrki frá sveitarfélögum og lögaðilum árið 2014. Píratar fengu tæpar 1,2 milljónir.
Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk tæpar 50 millj­ónir í styrki frá sveit­ar­fé­lögum og lög­að­ilum árið 2014. Píratar fengu tæpar 1,2 millj­ónir. Mynd: Birgir Þór

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk lang­mesta styrki fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2014 sam­kvæmt árs­reikn­ingum flokks­ins á vef­svæði Rík­is­end­ur­skoð­unar. Flokk­ur­inn fékk tæpar 20 millj­ónir frá sveit­ar­fé­lögum og tæpar 30 millj­ónir frá lög­að­ilum. Píratar fengu lang­minnst allra flokka, 970 þús­und frá sveit­ar­fé­lögum og 300 þús­und frá lög­að­ilum.

Vill ekki greina frá endurgreiðslu

Ekki fæst upp­gefið hversu háa upp­hæð Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur end­ur­greitt af styrkjum sem flokk­ur­inn fékk árið 2006 frá FL Group og Lands­bank­anum. Þórður Þór­ar­ins­son, fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir í skrif­legu svari til Kjarnans að ekki verði gefið upp hversu háa upp­hæð flokk­ur­inn hafi end­ur­greitt. Styrkirnir voru veittir í lok árs 2006 og námu sam­tals 56 millj­ónum króna. Vorið 2009 sagði Bjarni Bene­dikts­son, þá nýkjör­inn for­maður, að styrkirnir yrðu end­ur­greidd­ir.

Á lands­fundi flokks­ins árið 2013 sagði Jón­mundur Guð­mars­son, þáver­andi fram­kvæmda­stjóri, að flokk­ur­inn hefði þegar end­ur­greitt um 18 millj­ónir króna. Sam­kvæmt því stóðu þá 38 millj­ónir króna eftir árið 2013.

Samfylkingin ætlar ekki að endurgreiða tugi milljóna

Þórður bendir á að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi ákveðið einn flokka að end­ur­greiða styrk­ina. „Sama átti ekki við um annan stjórn­mála­flokk sem ákvað að þiggja háa styrki það sama ár en ákvað að end­ur­greiða ekki. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur end­ur­greitt árlega af rekstr­arfé sínu og hafa áætl­anir gengið út á að ljúka end­ur­greiðslum fyrir árið 2018,“ segir hann. Þórður á þar við Sam­fylk­ing­una, en fram kom árið 2009 að meðal þeirra sem styrktu flokk­inn árið 2006 voru Kaupþing, FL-Group, Glitnir, Lands­bank­inn og Baugur upp á rúmar 36 millj­ónir króna. Þau sögð­ust hins vegar aldrei ætla að greiða styrk­ina til baka.

Sjálfstæðisflokkurinn á toppnum og Píratar á botninum

Eins og kom fram í umfjöllun Kjarnans í gær um fjár­mál stjór­mála­flokka og áætl­anir um fjár­út­lát í kom­andi kosn­inga­bar­áttu vildu fram­kvæmda­stjórar Sjálf­stæð­is­flokks og Bjartrar fram­tíðar ekki gefa upp núver­andi fjár­hags­stöðu. Þeir vís­uðu í birt­ingu árs­reikn­inga á vef­síðu Rík­is­end­ur­skoð­unar og þar eru nýj­ustu árs­reikn­ingar fyrir árið 2014 og þar eru styrkir til stjórn­mála­flokka útli­staðir. Hvorki Sam­fylk­ing né Fram­sókn­ar­flokkur svör­uðu fyr­ir­spurn­inni.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 19,7 millj­ónir í styrki frá sveit­ar­fé­lögum og 28,9 millj­ónir frá fyr­ir­tækjum og lög­að­ilum. Eitt fram­lag frá ein­stak­lingum umfram 200 þús­und var lagt fram upp á 300 þús­und krónur, frá Jóni Zimsen. Fram­bjóð­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum 2014 eru þeir einu sem hafa sent Rík­is­end­ur­skoðun sund­ur­liðað upp­gjör um styrki og fram­lög.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn þáði 5,8 millj­ónir í styrki frá sveit­ar­fé­lögum og 18 millj­ónir frá fyr­ir­tækjum og lög­að­ilum. Stjórn­mála­menn innan Fram­sókn­ar­flokks­ins styrktu flokk­inn um 1,5 milljón með fram­lögum yfir 200 þús­und.

Sam­fylk­ingin fékk 4,7 millj­ónir í styrki frá sveit­ar­fé­lögum og 8,4 millj­ónir frá fyr­ir­tækjum og lög­að­ilum. Framlög ein­stak­linga umfram 200 þús­und voru 2,8 millj­ónir, öll frá stjórn­mála­mönnum í Sam­fylk­ing­unni.

Vinstri græn fengu 3,6 millj­ónir frá sveit­ar­fé­lögum og 1,3 frá fyr­ir­tækjum og lög­að­ilum. Framlög ein­stak­linga umfram 200 þús­und voru 4,2 millj­ónir, öll frá stjórn­mála­mönnum í Vinstri grænum.

Píratar fengu 970 þús­und frá sveit­ar­fé­lögum og 300 þús­und frá fyr­ir­tækjum og lög­að­ilum. Engin fram­lög frá ein­stak­lingum voru yfir 200 þús­und.

Björt fram­tíð fékk 3,6 millj­ónir frá sveit­ar­fé­lögum og 780 þús­und frá fyr­ir­tækjum og lög­að­ilum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Björtframtíð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár