Misríkir stjórnmálaflokkar á leið í kosningabaráttu eftir sumarið

Fjár­hags­staða stjórn­mála­flokk­anna er mis­góð fyrir kom­andi kosn­ingar. Flestir flokkar hafa unnið að því að borga niður skuldir og safna fé. Píratar eru skuld­lausir og ætla að reka marg­falt dýr­ari kosn­inga­bar­áttu en síð­ast.

Ekki er komin dagsetning fyrir kosningar í haust, en búist er við því að þær fari fram í október.
Ekki er komin dag­setn­ing fyrir kosn­ingar í haust, en búist er við því að þær fari fram í októ­ber. Mynd: Birgir Þór

Óðum stytt­ist í kosn­ingar, ári fyrr en áætlað var. Þó að engin dag­setn­ing sé komin enn, þá búast flestir við því að kosið verið til Alþingis í októ­ber eða nóv­em­ber. Flestir stjórn­mála­flokkar ætl­uðu að nýta árið 2016 til þess að greiða niður skuldir og safna pen­ing fyrir kosn­inga­bar­átt­una 2017, en eftir Panama­skjölin og afleið­ingar þeirra þurftu flokk­arnir að spýta í lóf­ana og flýta öllu ferli, hvort sem um er að ræða mönnun lista, fjár­mögnun eða skipu­lagn­ingu kosn­inga­bar­áttu. Og ljóst er að ekki gafst eins mik­ill tími og upp­haf­lega var áætlað til þess að safna fé.

Kjarninn kann­aði núver­andi fjár­hags­stöðu allra flokka sem hyggj­ast bjóða fram til Alþingis í haust. Ekki feng­ust svör frá Sam­fylk­ingu eða Fram­sókn­ar­flokki. Sjálf­stæð­is­flokkur og Björt fram­tíð vildu ekki gefa upp nákvæma stöðu. Notast er við nýj­ustu árs­reikn­inga sem birtir eru á vef­síðu Rík­is­end­ur­skoð­unar, en þeir eru frá árinu 2014.

Spurt var um núver­andi fjár­hags­stöðu flokk­anna og hvað standi til að eyða miklu fé í kosn­inga­bar­áttu fyrir Alþing­is­kosn­ingar í haust.

Ætla að reka mun dýrari kosningabaráttu en síðast

Píratar eiga tæpar 17,3 millj­ónir króna og skulda ekk­ert, sam­kvæmt Elínu Ýr Haf­dís­ar­dóttur, for­manni fram­kvæmda­ráðs Pírata. „Ekki hefur verið gerð fjár­hags­á­ætlun fyrir kom­andi kosn­inga­bar­áttu, en gróf­lega áætlum við að í hana fari á milli fimm til sjö millj­ónir,“ segir Elín í skrif­legu svari til Kjarnans. Kosn­inga­bar­átta Pírata fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar hafi kostað 1,2 millj­ónir. „Núna höfum við hug á að vera með kosn­inga­skrif­stofur á fleiri stöðum en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að geta boðið fólki að heilsa upp á okkur og kynna sér Pírata og hvað við stöndum fyrir.“

410 milljóna skuld árið 2014

Þórður Þór­ar­ins­son, fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vísar í heima­síðu Rík­is­end­ur­skoð­unar þar sem útdráttur úr árs­reikn­ingum flokka eru birtir. Nýjustu tölur þar eru frá árinu 2014 og í þeim árs­reikn­ingi kemur fram að flokk­ur­inn skuldi tæpar 410 millj­ónir króna og eignir nema tæpum 770 millj­ónum. Eigið fé í árs­lok 2014 var tæpar 360 millj­ónir. Samkvæmt Þórði er mark­miðið að halda kostn­aði við kosn­inga­bar­átt­una í lág­marki, en end­an­leg áætlun liggur ekki fyrir.

Áætla tugi milljóna í kosningabaráttu

Daníel Haukur Arnarson, starfs­maður Vinstri grænna, segir núver­andi fjár­hags­stöðu flokks­ins góða. Gert sé ráð fyrir að skila um 10 millj­ónum króna í afgang á árinu 2016 sam­kvæmt fjár­hags­á­ætlun. „Árið 2013 var 42 millj­óna króna
halli, en strax árið 2014 skil­uðum við rúm­lega 18 millj­óna króna afgangi,“ segir Daníel. Flokk­ur­inn skuldar 3,2 millj­ónir og á rúmar 20. Skuldin er vegna fast­eignar á Akureyri. „Við leigjum í Reykja­vík og því koma þau gjöld fram á rekstr­ar­reikn­ingi en ekki sem lang­tíma­skuld,“ segir Daníel. Búist er við því að eyða að minnsta kosti 15 til 20 millj­ónir í kom­andi kosn­inga­bar­áttu.

Fátækur flokkur árið 2014

Flokk­ur­inn er skuld­laus og rek­inn með lág­marks­kostn­aði, sam­kvæmt Valgerði Páls­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Bjartrar fram­tíðar. Hingað til hafi hús­næði ekki verið leigt, en til standi að bæta úr því í sumar. Ekki feng­ust þó nákvæm­ari tölur frá flokknum, en Val­gerður segir í svari sínu að árs­reikn­ingur verði lagður fyrir stjórn í ágúst eða sept­em­ber og þá verði tekin ákvörðun um fjár­út­lát í kosn­inga­bar­átt­unni. „Það er alla­vega ljóst að við munum halda því innan skyn­sam­legra marka og halda áfram að standa undir okkar skuld­bind­ingum,“ segir hún.

Í nýjasta árs­reikn­ingi flokks­ins hjá Rík­is­end­ur­skoðun, frá árinu 2014, segir að flokk­ur­inn átti 613 þús­und krónur og skuld­aði tæpar 5,9 millj­ónir. Eigið fé var því nei­kvætt um tæpar 5,3 millj­ónir.

Fjársöfnun á netinu gengið ágætlega

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir núver­andi fjár­hags­stöðu hins nýstofn­aða flokks vera nokkur hund­ruð þús­und krónur. Safnanir á net­inu hafi gengið ágæt­lega und­an­farið, en flokk­ur­inn var form­lega stofn­aður 24. maí. „Við erum ekki komin með áætl­un­ina fyrir kosn­inga­bar­átt­una. Ég í raun átta mig ekki alveg á umfang­inu,“ segir Benedikt. „En það á eftir að skýr­ast bráð­lega.“

„Eigum alls ekki mikla peninga“

Aðal­fundur Íslensku þjóð­fylk­ing­ar­innar var hald­inn í síð­ustu viku. Helgi Helgason for­maður segir allt unnið eftir hend­inni og mikið til sjálf­boða­starf. „Eins og þeir kann­ast við sem standa í rekstri stjórn­mála­flokka, þá er þetta mjög mik­ill pen­ingur sem fer í þetta og mörg smá­mál sem á end­anum taka sig saman,“ segir hann. „Vegna þess að fólk hefur verið að styrkja okkur höfum við náð að leigja sali og prenta kjör­seðla í kosn­ingu vara­for­manns. En þetta bygg­ist aðal­lega á sjálf­boða­vinnu, við eigum alls ekki mikla pen­inga.“

Engin svör frá Samfylkingu eða Framsókn

Ekki feng­ust svör frá Sam­fylk­ingu eða Fram­sókn­ar­flokki. Samkvæmt árs­reikn­ingum flokk­anna frá 2014 á heima­síðu Rík­is­end­ur­skoð­unar átti Sam­fylk­ingin um 166 millj­ónir í árs­lok 2014 og skuld­aði 121 milljón. Eigið fé var 44 millj­ónir. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn skuld­aði rúmar 250 millj­ónir í árs­lok 2014 og átti tæpar 200 millj­ónir í eignum. Eigið fé var nei­kvætt um tæpar 60 millj­ónir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Björtframtíð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár