Deilur vegna eineltis innan Pírataflokksins

Píratar munu koma saman til fundar í kvöld til að ræða sam­skipti innan flokks­ins. Nokkrir hafa sagt sig úr flokknum vegna ein­eltis og nið­ur­staða úrskurð­ar­nefndar Pírata varð­andi ráðn­ingu aðstoð­ar­manns hefur verið harð­lega gagn­rýnd.

Úrsagnir og deilur innan raða Pírata verða ræddar á fundi flokks­ins í kvöld. Nokkrir hafa sagt sig úr flokknum vegna ein­eltis. Ein­eltis­á­ætlun og áætlun um við­brögð vegna kyn­ferð­is­legrar áreitni er á dag­skrá og kosið verður um þær í kvöld. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

„Það er fólk sem hefur liðið illa innan flokks­ins og það hefur ekki verið tek­ist á við það. Það er stórt vanda­mál sem þarf að takast á við.“ segir Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata í borg­ar­stjórn Reykja­víkur.

Fjórir úr fram­kvæmda­ráði Pírata hættu í ráð­inu í októ­ber og meðal þeirra er fyrr­ver­andi for­maður fram­kvæmda­ráðs Pírata Sindri Viborg en hann hefur sakað félaga sína um ein­elti í sinn garð.

Segir úrskurðinn ljótan og illa ígrundaðan

Rann­veig Ernu­dótt­ir, vara­borg­ar­full­trúi Pírata, gagn­rýn­di vinnu­brögð sam­flokks­manna sinna harð­lega á Face­book-síðu sinni fyrir helgi. Í stöðu­færslu sinni seg­ist hún hafa sent skrif­stofu borg­ar­stjórn­ar er­indi þar sem hún óski eft­ir að fá að vita hverj­ar af­leið­ing­ar þess væru ef hún sem kjör­inn full­trúi segði sig úr Pír­öt­um, þar sem hún hafi mik­inn áhuga á að starfa fyr­ir borg­ina en ekki sem Pírati.

Rann­veig lýs­ir í færsl­unni á Facebook óánægju með niður­stöðu úr­sk­urðar­nefnd­ar Pírata að virkja ætti upp­sagn­ar­á­kvæði í ráðn­ing­ar­samn­ingi aðstoð­ar­manns fram­kvæmda­stjóra flokks­ins. Úrskurð­ur­inn var birtur á föstu­dag­inn þar sem fram kemur að aðila í starfi aðstoð­ar­manns fram­kvæmda­stjóra sé sagt upp störfum vegna þess að láðst hafi að fara eftir lögum Pírata um að aug­lýsa fastar stöður í boði hjá Pírötum þegar við­kom­andi var ráð­inn. Rannveig seg­ir þann úr­sk­urð ljót­an og illa ígrund­aðan. Hún segir hann hluti af stærri mynd sem ein­kenn­ist af „of­beldi, vald­níðslu, ein­elti, mik­illi van­hæfni og of­mati ein­elt­istudda á eig­in ágæti“.

Rannveig segir þetta ekki eins­dæmi að starfs­menn flokks­ins séu hrakt­ir á braut held­ur virð­ist það frem­ur vera venj­an. „Hreyf­ing sem kem­ur svona fram við starfs­fólkið sitt er ekki fær um að leiða bar­átt­una fyr­ir bættu sam­fé­lagi,“ seg­ir Rann­veig meðal ann­ars.

Atli Fanndal fyrr­ver­andi póli­tískur ráð­gjafa Pírata seg­ist, í stöðu­færslu á Facebook-síðu sinni, skamm­ast sín fyrir hönd þeirra sem skrif­uðu úrskurð­inn og að þau gerðu sér kannski ekki grein fyrir því að þarna hefðu þau form­gert, sam­þykkt og styrkt ein­elti.

Ráðinn án auglýsingar

Málið á rætur að rekja til þess þegar Píratar réðu í vor Hans Benja­míns­son í stöðu aðstoð­ar­manns fram­kvæmda­stjóra en ráðið var í stöð­una með tíma­bundnum verk­töku­samn­ingi sem gilti til 1. júní, þ.e. fram yfir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar 26. maí síð­ast­lið­inn. Eftir kosn­ingar ræddu fram­kvæmda­stjóri og fram­kvæmda­ráð Pírata um þörf og nauð­syn þess að Píratar hefðu tvo starfs­menn og hvort ráða ætti í stöð­una til fram­búðar, að því er fram kemur í umræddum úrskurði. Úr varð að fram­kvæmda­stjóra var falið að ráða í stöðu aðstoð­ar­manns og var Hans val­inn til að gegna stöð­unni á ný. Frá ráðn­ing­unni var gengið án aug­lýs­ingar í ágúst. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Úrskurð­ar­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ákvæði laga Pírata sem kveður á um að ein­göngu sé heim­ilt að ráða starfs­fólk að und­an­geng­inni aug­lýs­ingu um stöð­una hafi ekki verið fram­fylgt við umrædda ráðn­ingu og telur rétt að fram­kvæmda­ráð virki upp­sagn­ar­á­kvæði í ráðn­ing­ar­samn­ingi Hans svo fljótt sem auðið er. Úrskurð­ur­inn birt­ist síð­asta föstu­dag.

„Fólk er að tala saman. Það er kannski ekki mikið sem hægt er að segja á þess­ari stundu. Þetta er allt tekið mjög alvar­lega,“ segir Erla Hlyns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Pírata í sam­tali við Morg­un­blaðið. Hún segir jafn­framt að aldrei megi gera lítið úr upp­lif­unum fólks af ein­elti og því verði að skoða málið ítar­lega.

Í sam­tali við Frétta­blaðið segir Dóra Björt líta í eigin barm: „Ég auð­vitað horfi í eigin barm, hvort ég hefði getað gert meira til að koma í veg fyrir að þessi staða hefði komið upp og vil biðja það fólk afsök­unar sem ég hefði getað stutt betur. Þetta er að ein­hverju leyti afleið­ing þess flata strúkt­úrs sem við erum með þar sem ábyrgðin á því hver eigi að taka á svona málum er á reiki,“ segir Dóra Björt. „Við sem flokkur virð­umst reyna að setja upp ný kerfi og ferli í stað­inn fyrir að tala bara saman og leysa vand­ann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

pólitík

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár