Upplýsingaskortur ógnar matvælaöryggi

Samkvæmt nýrri rann­sókn íslenskra og erlendra fræði­manna ógnar skortur á full­nægj­andi upp­lýs­ingum um birgðir fos­fórs mat­væla­ör­yggi í heim­inum.

Fosfatnáma
Fos­fat­náma Mynd: Wiki Commons

Fosfór er mik­il­vægt grund­vall­ar­nær­ing­ar­efni fyrir jurtir en skortur á full­nægj­andi upp­lýs­ingum um birgðir fos­fórs í heim­inum og ferða­lag efn­is­ins frá vinnslu í gegnum líf­ríkið ógnar mat­væla­ör­yggi. Þetta er nið­ur­staða nýrrar rann­sóknar íslenskra og erlendra vís­inda­manna sem greint er frá í vís­inda­tíma­rit­inu Ambio: A Journal of the Human Environ­ment. Þetta kemur fram í frétt á vef Háskóla Íslands.

Fyrsti höf­undur grein­ar­innar er Eduard Nedelciu, dokt­or­snemi við Háskóla Íslands og Stokk­hólms­há­skóla, en auk hans koma Kristín Vala Ragn­ars­dóttir, pró­fessor við Jarð­vís­inda­deild Háskóla Íslands, og Ingdrid Sternquist, pró­fessor emeritus, og Marie Schellens dokt­or­snemi, báðar við Stokk­hólms­há­skóla, að grein­inni.

Fosfór er eitt af helstu nær­ing­ar­efnum jurta og er meðal ann­ars nýtt í fos­fa­tá­burð við mat­væla­fram­leiðslu. Efnið er unn­inn úr bergi á örfáum stöðum í heim­inum, einkum í Marokkó og löndum í kringum Sahara-eyði­mörk­ina. Áætlað er árlega séu um 53 millj­ónir tonna af fos­fa­tá­burði nýtt í mat­væla­fram­leiðslu en til þess þarf um 270 millj­ónir tonna af fors­fór­bergi.

Hátt í milljarður manna vannærður

Í frétt HÍ um málið kemur fram að miklar áskor­anir séu framundan í mat­væla­fram­leiðslu. Höfundar rann­sókn­ar­innar benda á að sam­kvæmt áætl­unum Sam­ein­uðu þjóð­anna muni íbúum jarðar fjölga í níu millj­arða fram til 2050 og að eft­ir­spurn eftir fæðu auk­ist um 60 pró­sent á næstu 30 árum, sam­kvæmt áætl­unum Mat­væla­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna. Nú þegar sé hátt í millj­arður manna vannærður og mat­ar­sóun sé vanda­mál í heim­inum og því feli fjölgun mann­kyns í sér veru­legar áskor­anir í mat­væla­fram­leiðslu í heim­inum. Það kalli á enn meiri fos­fór­vinnslu og fram­leiðslu fos­fa­tá­burðar.

Téð rann­sókn sner­ist um að kanna hvort og þá hvaða upp­lýs­inga væri hægt að afla um stöðu fos­fór­birgða í heim­inum. „Með því að varpa ljósi á alla birgða­keðju fos­fórs getum við um leið kom­ist að því hvaða umhverf­is­legi, félags­legi, sið­ferði­legi og efna­hags­legi kostn­aður fylgir fram­leiðslu þess matar sem sækjum í hillur versl­ana. Þetta getur einnig hjálpað þjóðum heims, sem flestar eru háðar inn­flutn­ingi á fos­fór og áburði, að draga úr óvissu í land­bún­aði,“ segir Eduard Nedelciu, dokt­or­snemi og aðal­höf­undur rann­sókn­ar­innar í sam­tali við HÍ.

Umhverfis- og félagslegar hættur fylgja fosfórvinnslu

Rann­sóknin leiddi í ljós að að ósam­ræmi og ógagn­sæi í aðferða­fræði og hug­taka­notkun standi í vegi fyrir nákvæmu mati á fos­fór­birgðum heims­ins. Þá benda rann­sak­endur á að allt að 90 pró­sent af fos­fóri tap­ist í gegnum birgða­keðju frum­efn­is­ins í mat­væla­fram­leiðslu en skýra mynd skorti af því hvar tapið eigi sér nákvæm­lega stað. Með betri eft­ir­fylgni og rann­sóknum megi draga úr þessu tapi í keðj­unni.

Rann­sak­endur vekja enn fremur athygli á þeim umhverf­is­legu og félags­legu hættum sem fylgi fos­fór­vinnslu, en hún mengi bæði vatns­ból og sé hættu­leg heilsu manna. Einnig geti útstreymi of mik­ils fos­fórs frá bæði skólpræsum og rækt­un­ar­svæðum í land­bún­aði stuðlað að ofauðgun nær­ing­ar­efna í vatni og myndun svo­kall­aðra dauðra svæða í heims­höf­unum en þar geti líf ekki þrif­ist. Þá fari fos­fór­vinnsla fram í auknum mæli á umdeildum svæðum, eins og vest­ur­hluta Sahara.

Nauðsynlegt að almenningur átti sig á stöðunni

Höfundar rann­sókn­ar­innar telja að aðgang að gögnum um birgða­keðju fos­fórs skorti og slíkt geti leitt til fos­fór­skorts í heim­inum. Nauð­syn­legt sé að almenn­ingur átti sig á stöð­unni vegna þess hve miklu máli vinnsla efn­is­ins skipti fyrir mat­væla­fram­leiðslu. Með því að öðl­ast betri yfir­sýn yfir fos­fór­birgðir heims­ins megi jafn­framt stuðla að fram­gangi margra af heims­mark­miðum Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

rannsóknir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár