Fimm fjölmiðlamenn með yfir milljón á mánuði á RÚV

Egill Helgason var tekju­hæsti fjöl­miðla­mað­ur­inn á RÚV á síð­asta ári en þar á eftir kemur Rakel Þor­bergs­dóttir, frétta­stjóri.

Egill Helgason, dag­skrár­gerð­ar­maður á RÚV, var tekju­hæsti fjöl­miðla­mað­ur­inn á RÚV á síð­asta ári með rúmar 1,7 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði, sam­kvæmt Tekju­blaði Frjálsrar versl­unar. Þar á eftir kemur frétta­stjór­inn, Rakel Þor­bergs­dóttir, með rúmar 1,2 millj­ónir króna á mán­uði í tekjur.

[links]

Tekju­­blað­ið, þar sem tekjur 3.725 Íslend­inga eru opin­ber­aðar á grund­velli upp­­lýs­inga á greiddu útsvari sam­­kvæmt álagn­ing­­ar­­skrám Rík­­is­skatt­­stjóra, kom út í dag.

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, var með rúmar 5,3 millj­ónir króna á mán­uði í laun árið 2018 og eru tekjur hans þær lang­hæstu á árinu meðal fjöl­miðla­fólks á Íslandi. Þess má geta að hluti launa Davíðs eru eft­ir­laun frá því hann var ráð­herra og þing­maður. Eft­ir­laun Davíðs eru 80 pró­sent af launum for­sæt­is­ráð­herra en hann fær einnig eft­ir­laun vegna starfa sinna sem seðla­banka­stjóri eftir að hann hætti á þingi.

Á eftir Davíð kemur Haraldur Johann­esen, hinn rit­stjóri Morgun­blaðs­ins og fram­kvæmda­stjóri Ár­vak­urs, með tæpar 3,2 millj­ónir á mán­uði. Björn Ingi Hrafns­son, rit­stjóri Viljans, vermir þriðja sætið en hann var með rúmar 2,8 millj­ónir á mán­uði í fyrra í mán­að­ar­tekjur.

[adspot]

Alls eru tutt­ugu starfs­menn RÚV á lista yfir fjöl­miðla­menn í Tekju­blað­inu í ár. Þröstur Helgason, dag­skrár­stjóri Rásar 1, var með 1.072 þús­und krónur á mán­uði í tekjur í fyrra og Baldvin Þór Bergsson, dag­skrár­stjóri Rásar 2, með 1.055 þús­und krónur. Frétta­konan Jóhanna Vigdís Hjalta­dóttir var með 1 milljón króna að með­al­tali í mán­að­ar­laun í fyrra og Bogi Ágústs­son með 993 þús­und á mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár